Morgunblaðið - 21.12.1985, Blaðsíða 9
öhpj aaaKaaaa is guDAQHaouaj .aiqAJgvtuoHO1
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 21. DESEMBER1985
8
9
^ HERRASKYRTUR
Vorum aö taka upp glæsilegt
úrval af enskum herraskyrtum.
QEísiP
H
7
Bladburðarfólk
óskast!
Kopavogur
Hraunbraut
Marbakkabraut
Grafarvogur
Fannarfold
Austurbær
Barónsstígur
Hverfisgata 63—
Vesturbær
Tjarnargata frá 39
Suðurgata29—41
Tjarnargata 3—40
Suöúrgata2—26
Skerjafjörður
Gnitanes
120
3JLi
Samþvkkt
framkvæmda
stjómar
Á mánudaginn gerði
rramkvæmdastjórn Ak
þýðubandalagsins, sem lýt-
ur forystu Olafs Ragnars
Grímssonar, samþykkt um
bankaráðsmál, sem valdið
hefur miklum óróa innan
flokksins. í þessari sam-
þykkt eru þrjú atriði, sem
veita ber athygli. í fyrsta
lagi er því lýst yfír, að
óeðlilegt sé að fráfarandi
bankaráö Útvegsbankans
verði endurkjörið. End-
urnýja beri allt bankaráð-
ið. I annan stað er sú
meginregla sett, að þing-
flokkur bandalagsins til-
nefni ekki menn í banka-
ráð ríkisbankanna. Er lagt
til að þessi háttur verði
tekinn upp jafnóðum og
núverandi bankaráðsmenn
fíokksins úr þingmanna-
hópi víkja fyrir endurnýj-
unarreglu fíokksins eða að
eigin ósk. Loks kemur
fram í samþykkt fram-
kvæmdastjórnarínnar ný
túlkun á lögum um banka-
leynd. Telur stjórnin að
lögin komi ekki í veg fyrir
að „bankaráðsmenn,
bankastjórar eða ráðherra
bankamála komi skil-
merkilega á framfæri við
alþingi og almenning öll-
um almennum upplýsing-
um er varða stöðu viökom-
andi ríkLsbanka_“ Orð-
rétt segir síðan: „Fram-
kvæmdastjórn leggur
áherslu á að bankaráðs-
fulltrúar AB gegni þessari
upplýsingaskyldu."
Svavar niður-
lægður
Ályktun framkvæmda-
stjórnar var gerð með 11
atkvæðum gegn 2. Það
voru aðeins Svavar Gests-
son, formaður fíokksins,
og Steingrímur J. Sigfús-
son, alþingismaður, sem
greiddu atkvæði gegn
henni, en nokkrir sátu hjá.
Úrslit þessi eru talin sigur
fyrír Olaf Ragnar Gríms-
son og fylgismenn hans,
sem staðið hafa í miklu
stríði við „flokkseigend-
ur“, sem svo eru nefndir.
Að sama skapi er niður-
staðan ósigur fyrir Svavar
Gestsson, og er þetta ekki
í fyrsta sinn sem Ólafur
Ragnar niðurlægir hann í
framkvæmdastjórninni.
Garðar Sigurðsson, ak
Fólkið vill opna rannsókn
SSSSSscstrs
j . _.t . .
■Hbi
aarj
Err
Átök í Alþýðubandalagi
Svavar Gestsson var endurkosinn for-
maður Alþýðubandalagsins á síöasta
landsfundi flokksins, en atburðir síöustu
daga hafa staðfest að hann er ekki leið-
togi flokksins. í vikunni varð hann undir
í atkvæðagreiðslum í framkvæmdastjórn
flokksins og þingflokki og frekari tíðinda
af valdabaráttunni í flokknum er að
vænta. Þeir Ólafur Ragnar Grímsson og
Ragnar Arnalds virðast ætla að sjá til
þess að flokksformaðurinn fari ekki í
grafgötur um það hver raunveruleg staða
hansí flokknumer.
þingtsmaður, á ekki sæti f
framkvæmdastjórninni, en
hann situr í bankaráði Út-
vegsbankans fyrir Alþýðu-
bandalagið og það er gegn
honum, sem samþykktin
beinist fyrst og fremst.
Hún er ótvírætt vantraust
á Garðar, en Alþýöubanda-
lagsmönnum hefur þótt
það ákaflega óþægilegt að
í allri umræðunni um mál-
efni Hafskips og Útvegs-
bankans skuli hafa veríð
unnt að benda á það að
fulltrúi flokksins sitji í
bankaráði bankans og beri
nákvæmlega sömu ábyrgð
á stöðu mála og aörír sem
þar sitja. Garðar hefur
verið ófáanlegur til að
ríúfa bankaleyndina, sem
Ólafur Ragnar Grímsson
hefur gagnrýnt með stór-
um orðum á þingi, og ólík-
legt er að hann taki sinna-
skiptum þegar hin nýja
túlkun framkvæmdastjórn-
arinnar á bankaleyndinni
liggur fyrir. „Þetta er
rugl," sagði Garðar í sam-
tali við Morgunblaðið þeg-
ar hann var spurður álits á
samþykktinni. Hann benti
á að þetta væri mál þing-
fíokksins og framkvæmda-
stjórnin hefði ekkert með
málið að gera.
Framkvæmdastjórn Al-
þýðubandalagsins gerði
ályktunina um bankaráös-
málin síðdegis á mánudag,
en það var ekki fyrr en um
hádegisbil á þriðjudag sem
hún var gerð heyrin kunn-
ug. Er það mjög óvanalegt,
en til marks um þann úlfa-
þyt er varð í fíokknum er
Ijóst varð að formaöur
fíokksins hafði verið bor-
inn ofurliði i atkvæða-
greiðslu og vantraust sam-
þykkt á einn þingmanninn.
Þingflokkur Alþýðu-
bandalagsins er i mikilli
klípu vegna samþykktar
framkvæmdastjórnarinnar.
Sumir þingmenn vilja fall-
ast á hana og draga Garð-
ar Sigurðsson út úr banka-
ráði Útvegsbankans og
Helga Seljan út úr banka-
ráði Búnaðarbankans, en
aðrir telja að það komi
ekki til greina. Úrslit í
þeirri þrætu verða væntan-
lega ekki kunn fyrr en í
dag, er sameinað þing kýs
í bankaráð ríkisbankanna.
En það er hins vegar Ijóst
að hver sem niðurstaðan
verður mun hún draga dilk
á eftir sér.
Enn klofning
uríþing
flokknum
Alþýðubandalagsmenn
eru líka klofnir í afstöðu
til rannsóknarnefndar
þeirrar, sem Alþingi hefur
samþykkt að Hæstiréttur
skipi til að rannsaka við-
skipti Hafskips og Útvegs-
bankans. Samkomulag
náðist um það með stjórn-
arandstæóingum og stjórn-
arliðum að útvíkka starf-
semi nefndarinnar og veita
henni aukin réttindi, en
tillaga Alþýðubandalagsins
um að sjö þingmenn fylgd-
ust að auki með starfsemi
nefndarinnar var felld. í
Ijósi þessa varð ágreining-
ur um það í þingflokki
Alþýöubandalagsins hvort
styðja ætti frumvarpið um
rannsóknarnefndina í
hinni breyttu mynd eða
sitja hjá og láta þannig
óánægju í Ijós. Við at-
kvæðagreiðslu í þing-
flokknum varð sú skoðun
ofan á að greiða atkvæði
með frumvarpinu, og mun
Ragnar Arnalds, formaöur
þingflokksins, hafa átt
mestan þátt i því. Svavar
Gestsson, Steingrímur J.
Sigfússon og Skúli Alex-
andersson voru því and-
snúnir. Þegar frumvarpið
kom til atkvæða í efrí
deild skipti Skúli um skoð-
un og greiddi atkvæði með
því eins og aðrir Alþýðu-
bandalagsmcnn í deild-
inni. Þegar frumvarpið
kom svo fyrír neðri deild í
fyrrinótt sátu Svavar,
Steingrímur og Guðrún
Helgadóttir hjá, en Garðar
Sigurösson, Geir Gunnars-
son og Guðmundur J.
Guðmundsson fylgdu
meirihlutanum.
Gagnrýni
Þjóðviljans
í forystugrein Þjóðvilj-
ans í gær, sem Össur
Skarphéðinsson ritar, er að
fínna gagnrýni á afstöðu
meirihluta þingflokks AÞ
þýðubandalagsins til skip-
unar rannsóknarnefndar-
innar. Krafíst er opinnar
rannsóknar (sem fer auð-
vitað þvert á allar hefðir
réttarríkja) og staðhæft aö
meirihluti Alþingis og rík-
isstjórnar vilji fela eitt-
hvað. „Hvað óttast menn?
Hvað er það sem Sjálf-
stæðisflokkurinn hræðist
að komi fram í dagsljós-
ið?“ spyr Óssur. Menn
þurfa ekki mikla skarp-
skyggni til að sjá hvert
þessum skeytum er í raun-
inni beint. Það er meiri-
hluti þingfíokks Alþýðu-
bandalagsins sem þarna
fær kaldar kveðjur fyrir að
hafa gugnað í Hafskips-
málinu og greitt atkvæði
með rannsókn sem Þjóð-
viljinn telur að eigi að
„sópa óhreinu mjöli undir
gólfteppið". Og nú bíða
menn spenntir eftir við-
brögðum Ólafs Ragnars,
sem haft hefur hljótt um
sig undanfarna daga. Inn-
anflokksátökunum f Al-
þýðubandalaginu er sann-
arlega ekki lokið.
«>•**$»
EINLEIKUK
ÆKÍ4RS/TRUR
Einstæðar veggmyndir
eftir RAX Ijósmyndara. Um er aö ræöa 10
mismunandi myndir (50x70 cm) þar af tvær
með Ijóöum eftir Matthías Johannessen
skáld. Óvenjuleg og falleg jólagjöf. Myndirnar
fást í eftirtöldum verslunum.
Myndin, Dalshrauni 13, Hafnarfirði / Hjá Hirti, Laugavegi /
Katel, Klapparstíg / Habitat, Laugavegi / Penninn, Hallarmúla
/ Bókhlaðan, Gtnsibæ / Vesturröst, Laugavegi (laxamynd) /
JL-húsið, Hringbraut (húsgagnaverslun) / Róm, Keftavík /
AB-búðin, Akureyrí / Héraðsmyndir, Egilsstöðum / Börkur,
Vestmannaeyjum.
L