Morgunblaðið - 21.12.1985, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1985
25
Ekki búið úr bollanum
eða Bolli hreykir sér enn
— eftir Jóhann
Hjálmarsson
Séra Bolli Gústavsson hreykir
sér enn á síðum Morgunblaðsins
(18.12. sl.) og er ekki sáttur við
umsögn mína um Litið út um ljóra
og athugasemdina Illa innrættur
prestur? sem var svar við þykkju-
þungri ádrepu hans sjálfs. Það er
satt að segja ástæða að sjá eftir
að hafa ekki farið mildari höndum
um Bolla eins brothættur og hann
virðist vera. Auk þess tekur Bolli
það að sér óbeðinn að ritdæma
umsagnir eftir mig um aðra höf-
unda og einkennast vinnubrögð
hans sem gagnrýnanda fremur af
óskhyggju en fræðimennsku. Til-
vitnanir í umsagnir slitnar úr
samhengi geta hljómað sem þver-
sagnir, ekki síst þegar „túlkandi"
á borð við Bolla fjallar um þær.
En nú dugar honum ekkert minna
til bjargræðis en Jón Vídalín að
sanna orð min séu ómerk og
sprottin af heiftrækni. Bolli er
hinn versti, gnístir tönnum út af
greinarkorninu Illa innrættur
prestur? sem birtist hér í blaðinu
í því skyni að leiðbeina honum
ofurlítið og skýra ranghermi.
Hörundsár að vanda beinir prest-
urinn orðum sínum til ritstjóra
dagblaðanna í því skyni að fá
hæfari gagnrýnendur til starfa,
vafalaust til að skrifa af meiri
sanngirni um það apparat sem
slær undir hempunni og andríkið
sem blaktir bak við ljórann.
Bolli hefur dregið nokkra menn
inn í þessa umræðu og verður að
segja eins og er að ekki græða
þeir á umfjöllun hans. Það er ekki
skemmtilegt hlutskipti fyrir þá að
fá rullu í hinum guðdómlega gleði-
leik Bolla. Líklega hefur hann þó
ekki ætlað sér að sverta minningu
Steins Steinars, en ummæli þau
sem hann vitnar til I bók sinni eru
engum til sóma. Nú hefur Bolli
lesið í umsögn minni um Fram-
haldslíf förumanns eftir Hannes
Sigfússon að ég telji Magnús Ás-
geirsson meðal þeirra fáu manna
sem Steinn virti. Steinn gerði ekki
alla að vinum sínum og var vand-
fýsinn í mati sínu á skáldskap. í
umsögninni er fyrst og fremst
verið að tala um manninn Magnús
Ásgeirsson, félaga Steins og vin.
En vissulega virti Steinn Magnús
líka fyrir skáldskap hans og reynd-
ar fleiri skáld eins og dæmin
sanna. Steingrímur Thorsteinsson
var meðal uppáhaldsskálda hans
og alltaf talaði Steinn vinsamlega
um yngri skáld þótt hann teldi
nauðsynlegt að veita þeim aðhald.
Nægir að lesa Framhaldslíf föru-
manns til að sannfærast. En stríð-
inn var Steinn, það fer ekki á milli
mála. Dapurlegt er engu að síður
að lesa í Litið út um ljóra að Steini
hafi þótt lítið koma til allra ís-
lenskra skálda, nema eins. Slfkt
eiga menn ekki að setja á prent
nema þeir vilji ólmir opinbera fá-
visku sína. Þetta ætti Bolli að
skilja, en líklega er það til of
mikils mælst að krefjast slíks.
Bolli er enn kominn með sömu
tilvitnun í umsögn eftir mig
(tryggur lesandi Bolli) þar sem
talað er um að ungir menn vænti
s
terkurog
. _ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
sér einskis af miðaldra skáldum
og eldri, þau geti gælt við form í
friði. Bolli tekur þetta greinilega
til sín. En þá skal Bolli upplýstur
um það að ég hef hann ekki alltaf
í huga (þótt hann sé að verða mér
æ kærari) þegar ég skrifa í Morg-
unblaðið. Eg verð kannski að fara
að breyta um stefnu í þessum
efnum og hugsa jafnan hlýlega til
prestsins. Aftur á móti felst í
margtilvitnuðum orðum hvatning
til ungra skálda að yrkja með
öðrum hætti en eldri skáld, verða
ekki sporgöngumenn eins og svo
títt er í íslenskum bókmenntum.
Þetta skilur Bolli vitanlega ekki,
enda ekki til þess ætlast af honum.
Hvað Sigurbjörn Einarsson
biskup varðar mun ég ekki ræða
þátt hans frekar. Biskupinn þarf
ekki á skjalli Bolla að halda. Aldrei
stóð til að móðga hann. En að
móðga prestinn í Laufási og
eflaust fleiri verður víst ekki
komist hjá. Ég læt mér það í léttu
rúmi liggja.
Enginn nema Bolli Gústavsson
hefur lesið það út úr athugasemd
minni í Morgunblaðinu að ég hafi
verið reiður þegar ég skrifaði
hana, allra síst heiftugur. Hún var
m.a. gerð til þess aðr koma í veg
fyrir að hann, presturinn, stæði
uppi berskjaldaður án manngæsku
og umburðarlyndis samkvæmt
eigin yfirlýsingu. Hvers konar
prestur væri það? En Bolli er
greinilega ekki í miklum önnum
fyrir norðan meðan hann hefur
tíma til að setja saman þrasgjarn-
ar langlokur og senda stærsta
blaði landsins til birtingar. Það
vill svo til að hann er leiklistar-
H'W''
Jóhann Hjálmarsson
gagnrýnandi blaðsins fyrir norð-
an, sérgrein hans leikhús á Akur-
eyri. Getur verið að ekki sé nógu
mikið að gerast i leiklistinni þar
um slóðir, leiklistargagnrýnand-
ann skorti verkefni? Þá er gripið
til þess ráðs að leika sjálfur. Án
þess að nokkuð sé fullyrt um þetta
er Bolli Gústavsson mjög efnilegur
kverúlant og má mikils vænta af
honum sem slíkum.
Undir lok greinarinnar er Bolli
loksins kominní viðeigandi jóla-
skap og sendir mér góðar kveðjur.
Ég þakka og óska honum sömuleið-
is gleðilegrar hátíðar og farsældar
á nýju ári og vona að honum
auðnist að setja saman gagnlegar
bækur þrátt fyrir fjálglega til-
burði að ævistarfi. Ég met öll
heilbrigð störf að jöfnu og uni því
ekki illa að lesa sundur póstinn til
Bolla. Borgaraleg störf mín hafa
ekki sligað mig að marki. En að
syngja með Bolla líst mér ekki
alltof vel á. Ég iæt hann um sálma-
sönginn og blessunarorðin. Mann-
gæskan verður honum vonandi
ekki ofraun.
Er ekki eitthvað eftir í bollan-
um?
Höfundur er bók-
menntagagnrrnandi.
HAGKAUP
Póstverslun: Simi 91-30980 Reykjavik Akureyri Njarðvik