Morgunblaðið - 21.12.1985, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. DESEMBER1985
Barnaguðs-
þjónusta
í Dómkirkj-
unniá
sunnudag
ÞAÐ ER orðin föst venja, að síð-
asta sunnudag fyrir jól er aðeins
ein messa í Dómkirkjunni og er
það barnamessa. Hún hefst kl. 11
f.h. Börn úr kirkjuskólanum sýna
þar helgileik undir stjórn sr.
Agnesar M. Sigurðardóttur,
Barnakór Álftamýrarskóla syngur
aðventu- og jólalög, en stjórnandi
hans er Hannes Baldursson, sem
leikið hefur undir söng á barna-
samkomum Dómkirkjunnar und-
anfarin ár. Sr. Þórir Stephensen
les jólasögu og einnig verður al-
mennur söngur. Organisti verður
Marteinn H. Friðriksson.
Eldri sem yngri eru hvattir til
þátttöku. Frá Dómkirkjunni.
Hugmyndin um sameiningu yinstri blaðanna:
„Sameining myndi bjarga blöðunum
þremur frá að falla í gleymskua
SAMEINING Alþýðublaðsins, NT og Þjóðvilj-
ans „myndi vekja verulega athygli í fjölmiðla-
heimi og bjarga blöðunum þrem frá því að
falla í gleymsku,“ segir m.a. í hugmyndum,
sem voru til umræðu meðal forystumanna
stjórnmálaflokkanna þriggja, sem nú standa
að útgáfu þessara blaða. Þessi hugmynd virð-
ist nú vera úr sögunni, eftir að Ijóst varð að
Þjóðviljinn vill ekki sameinast Alþýðublaðinu
og NT ? sem raunar er gert ráð fyrir að fái
aftur sitt gamla nafn, Tíminn, um áramót.
I áðurnefndu plaggi, sem mun einkum
vera samið af ritstjórunum Árna Gunnars-
syni á Alþýðublaðinu og Helga Péturssyni á
NT, segir að virkir áskrifendur blaðanna
þriggja séu nú um 20 þúsund en að gera
mætti ráð fyrir að þeim fjölgaði verulega
og að upplag nýs blaðs gæti verið á bilinu
35-40 þúsund eintök daglega. 1 plaggi þeirra
segir undir yfirskriftinni „Grunnhugmynd":
„Stofnað verði nýtt fyrirtæki um rekstur
á fréttablaði, sem nýti sameiginlega núver-
andi aðstöðu, áskrifendakerfi, dreifikerfi og
tæki NT, Þjóðviljans og Alþýðublaðsins.
Blöðin þrjú fylgi nýja blaðinu daglega, hvert
umsigfjórar síður.
Ritstjórar verði þrír, ábyrgðarmenn nýja
blaðsins, en hver um sig ábyrgir fyrir efni
og ritstjórnargreinum Tímans, Þjóðviljans
og Alþýðublaðsins.
Ráðinn verði sérstakur fréttaritstjóri
fyrirnýjablaðið.
Gerður verði samningur um að Alþýðu-
blaðið, Þjóðviljann og Tímann megi stækka
og dreifa sérstaklega, t.d. í kosningabaráttu.
sameiningu vinstri blaðanna svokölluðu.
Tæknideild verði sameinuð á ný.
Dreifikerfi verði sameinað.
Nýja blaðinu verði deilt í fréttadeild,
innblað og helgarblað.
Auglýsingadeild verði ein og skrifstofu-
hald sameinað.
Daglegt upplag blaðsins verður á bilinu
35 til 40 þúsund eintök."
Undir yfirskriftinni „Nokkur atriði til
viðbótar" segir ennfremur.
„Flokkarnir reka saman fyrirtækið Blaða-
prent, Síðumúla 14. Eignarhlutar eru: Nú-
tíminn hf. 40%, Útgáfufélag Þjóðviljans 40%
og Alþýðublaðið 20%. Eðlilegt má telja að
sameina þann rekstur nýja blaðinu.
Virkir áskrifendur blaðanna þriggja eru
nú um 20 þúsund. Ekki er óeðlilegt að ætla,
að um tíu þúsund bættust við ef af sameigin-
legum rekstri yrði. Það er jafnvel varlega
áætlað.
Blaðið myndi sækja fram á smáauglýs-
ingamarkaði og ná til sín fasteignaauglýs-
ingum.
Blaðið myndi gerast aðili að upplagseftir-
liti til þess að sanna dreifingu sína fyrir
augiýsingastofum.
Starfsmenn blaðanna þriggja eru nú um
150. Nokkur fækkun yrði við sameiningu.
Sameiginleg dreifing blaðsins yrði betri
um landið allt en DV og Morgunblaðið geta
boðið auglýsendum. Dreifing Tímans er
mest út um land, en Þjóðviljans og Al-
þýðublaðsins meiri í þéttbýlinu.
Framundan er „ár útvarps og sjónvarps",
eins og það hefur verið kallað, gildistaka
nýrra laga um útvarp. Sameining í þessum
rekstri myndi vekja verulega athygli f fjöl-
miðlaheimi og bjarga blöðunum þrem frá
því að falla í gleymsku. Samruninn myndi
einnig vekja mikla athygli f stjórnmálaheimi
og efla umræðu um stöðu vinstri hreyfingar
í landinu," segir að lokum í plöggum þeim,
sem Morgunblaðið hefur undir höndum.
Frumsýning
28.
des.