Morgunblaðið - 21.12.1985, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. DESEMBER1985
Hæstiréttur:
Myndbandsspól-
ur eftirtökur og
máli vfsað frá
H/ESTIRÉTTUR hcTur vísað frá máli, þar sem deilt var um 240 mynd-
bandsspólur og krafist skaðabóta fyrir meintar vanefndir á samningi um
kaup á þeim. I Ijós kom að spólurnar voru eftirtökur en ekki frumgerðir.
I'ar sem stefnda tókst ekki að sanna að hann hefði haft heimild frá eigend-
um höfundarréttar að frumgerðum kvikmyndanna til að ráðstafa mynd-
bandsspólunum og selja var málinu visað frá og héraðsdómur ómerktur.
Málavextir eru þeir, að í tengsl-
um við sölu myndbandaleigu í
Keflavík í apríl 1982 var gerður
samningur um afhendingu 240 til-
tekinna myndbandsspóla fyrir árs-
lok sama ár og voru þær í vörslu
þriðja aðila. Til staðfestingar skil-
vísri afhendingu, lét seljandi af
hendi tryggingarvíxil að upphæð
liðlega 127 þúsund krónur og var
kaupendum heimilt að krefjast
greiðslu hans ef spólurnar yrðu
ekki afhentar fyrir árslok.
Á tilskildum tíma var kaupend-
um tilkynnt, að spólurnar væru
tilbúnar til afhendingar gegn
framsali víxilsins. Deilur risu upp
og neituðu kaupendur að taka við
spólununum, þar sem þeir töldu
þær ekki í samræmi við samning.
í framhaldi af því var víxillinn
settur í innheimtu.
Seljandi taldi sig hafa staðið við
samning í hvívetna og á sér brotið
og höfðaði skaðabótamál á hendur
kaupendunum og krafðist greiðsiu
tæplega 230 þúsund króna í skaða-
bætur. f undirrétti var fallist á
kröfur seljanda og honum dæmdar
tæplega 230 þúsund krónur i
skaðabætur auk vaxta.
Dómurinn var ómerktur í
Hæstarétti og málinu vísað frá
héraðsdómi ex officio og hvor aðili
um sig dæmdur til að bera kostnað
af málinu. Dóm Hæstaréttar
kváðu upp Björn Sveinbjörnsson,
Guðmundur Skaftason og Magnús
Thoroddsen.
Uppboði á Má
frestað í gær
— skipið stendur nánast í skilum við Fiskveiða-
sjóð sem hefur fallið frá kröfu um uppboðið
FISKVEIÐASJÖÐUR hefur nú falL
ió frá kröfu sinni um uppboð á tog-
aranum Má frá Olafsvík og var síó-
ara uppboð á skipinu, sem vera átti
í gær, frestað um tvo mánuði með
samkomulagi málsaðilja. Togarinn
stendur nú nánast í skilum við Fisk-
veiðasjóð og vonast heimamenn til
að halda skipinu.
Togarinn Már var á fyrra upp-
boði 15. október síðastliðinn sleg-
Gamall maður
fyrir bifreið
á Kleppsvegi
FULLORÐINN maður slasaðist al-
varlega, þegar hann varð fyrir bifreið
á Kleppsvegi laust fyrir klukkan tíu
á fimmtudagsmorguninn.
Maðurinn, sem er 79 ára gamall,
fótbrotnaði illa og hlaut höfuð-
áverka. Hann var á merktri gang-
braut á leið yfir Kleppsveginn
þegar hann varð fyrir bifreið, sem
ekið var í vesturátt.
Gamli maðurinn var fluttur í
slysadeild Borgarspítalans til að-
gerðar.
inn ríkisábyrgöasjóði á 110 millj-
ónir króna. Fiskveiðasjóður bauð
þá 106 milljónir i skipið og Lands-
bankinn 107. Þá námu skuldir
skipsins við Fiskveiðasjóð 105
milljónum á fyrsta veðrétti, 73
milljónum við ríkisábyrgðasjóð á
öðrum veðrétti og 80 milljónum
við Landsbankann með sjálfs-
skuldaábyrgð hluthafa. Skipið
hefur siglt með afla sinn síðan i
haust og sett tvö sölumet. Með
þessu hefur fengizt mun meira
fyrir aflann en ella og með þeim
hætti verið unnt að lagfæra
skuldastöðuna verulega.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaösins voru í gær mættir ein-
hverjir aðilar, sem hugðust bjóða
i skipið og virðist víða áhugi á
skipakaupum um þessar mundir
samanber fjölda tilboða í skipin
Helga S og Kolbeinsey.
mak*
MOROUNBLAOS I HS
JóUlesbók Morgunblsðsins
verður borin út á sunnudag og
mánudag.
Mikil aukning greiðslukorta:
Vetrarsólstöður
VETRARSÓLSTÖÐUR eru í dag og stystur sólar-
gangur á árinu. Nú tekur daginn að lengja á ný og
brátt er svartasU skammdegið að baki. Senn gengur
jólahátíðin í garð og
vetrardrunga.
MorKunblaðiö/OI.K.M.
þá gleyma flestir myrkri og
Nú rætt um sameiningu
NT og Aiþýðublaðsins
NT aftur alfarið í höndum Framsóknarflokksins
MÖGULEIKINN á samruna Þjóðviljans, NT og Alþýðublaðsins, er ekki lengur
fyrir bendi, eftir að andstaða starfsmanna Þjóðviljans við slíkan samruna varð
opinber. Er nú til skoðunar hjá forsvarsmönnum Framsóknarflokks og Al-
þýðuflokks bvort samruni þessara blaða, auk samstarfs við Þjóðviljann á sviði
prentunar, geti verið fýsilegur kostur. Fundur verður með þessum aðilum
föstudaginn milli jóla og nýárs.
„Það er lífsnauðsynlegt fyrir
okkur að hanga ekki lengi yfir þessu
og þær breytingar sem ákveðnar
verða, taka gildi frá áramótum
sagði Steingrímur Hermannsson
formaður Framsóknarflokksins í
samtali við Morgunblaðið.
Steingrímur sagði að engar
ákvarðanir hefðu verið teknar um
samstarf við Alþýöuflokkinn, en
slíkt samstarf kæmi i sínum huga
vel til greina. Hvort NT yrði látinn
heita Tíminn frá áramótum sagði
hann óráðið en ljóst væri að endur-
skipulagt málgagn Framsóknar-
flokksins myndi koma út frá þeim
tíma. „Það liggur ljóst fyrir að til-
raunin til þess að gera NT að stóru,
víðlesnu blaði hefur mistekist, og
því er þörf á endurskipulagningu.
Auk þess hefur Framsóknarflokk-
urinn þurft að leggja fram miklu
meira fé í rekstur blaðsins, en svar-
ar til hlutafjáreignar flokksins,
þannig að það liggur nú fyrir að
blaðið er að meira eða minna leyti
komið á herðar flokksins á nýjan
leik,“ sagði Steingrímur.
Steingrímur sagði að það lægi
ekki ljóst fyrir nú hversu mikið fé
flokkurinn hefði þurft að leggja
fram, en það væri verulegt. Fram-
sóknarflokkurinn hefur þurft að
veðsetja húseign sína við Rauðarár-
stíg að verulegu leyti, en Steingrím-
ur sagði engin áform um það í
flokknum að selja húseignina.
Helgi Pétursson, ritstjóri NT, og
Guðmundur Karlsson, fram-
kvæmdastjóri, vörðust allra frétta
þegar Morgunblaðið leitaði til
þeirra í gær. „Ég vil ekkert segja
um það hvað stendur til að gera,
en hitt er augljóst að eitthvað verð-
ur að gera. Ég tók við starfi ritstjóra
fyrir hálfu ári og hef verið að moka
flórinn síðan. En það gengur hægt
á hauginn, enda hafði sóun á fjár-
munum verið slik að skuldirnar
voru orðnar illviðráðanlegar," sagði
Helgi Pétursson.
Heildarupphæð á einni viku nem-
ur hundruðum milljóna króna
VIÐSKIPTI með greiðslukortum hafa
aukist mjög undanfarna daga, frá 18.
desember þegar nýtt greiðsiukorta-
tímabi) hófst og er talið að upphæð
þessara viðskipta þessa vikuna muni
nema hundruðum milljóna króna.
Þetta kom meðal annars fram í laus-
legri könnun sem Morgunblaðið
gerði í verslunum í borginni.
1 flestum tilfellum hafði notkun
greiðslukorta aukist um allt að
helming frá því á miðvikudaginn,
18. desember, og var búist við að
það hlutfall myndi enn hækka eftir
laugardaginn og Þorláksmessu. í
helstu stórverslunum í borginni var
áætlað að greiðslukortaviðskiptin
síðustu viku fyrir jól myndu nema
tugum milljóna á hverjum stað og
bar mönnum saman um að í heild
myndi upphæðin nema hundruðum
milljóna króna.
Mikil ásókn hefur verið í ný
greiðslukort hjá Visa tsland og
Kreditkortum sf. undanfarna daga.
Einar S. Einarsson hjá Visa ísland
sagði að greiðslukortaþjónustan
virkaði mjög örvandi á alla verslun,
þannig að jafnvel þótt kaupmenn
þyrftu að gefa greiðslufrest í þess-
um viðskiptum þá væri ljóst, að
þessi þjónusta gerði fólki kleift að
versla meira og kaupa vandaðri vöru
en ella. Það hefði sýnt sig, að sú
væri reynsian af greiðslukortaþjón-
ustunni.
Guðmundur Karlsson var spurður
hvort nafnbreyting væri á döfinni,
minnkun blaðsins og uppsögn
starfsmanna í tengslum við það.
„Málin hafa verið rædd frá ýmsum
sjónarhornum, en mér vitanlega
hafa ekki verið teknar neinar
ákvarðanir í þessa átt,“ svaraði
hann. Hann sagði hins vegar að
umræður í fjölmiðlum um slæma
fjárhagsstöðu NT hefði þegar komið
fram í minni áhuga á að auglýsa í
blaðinu.
Sjá ennfremur hugmynd að
samstarfsgrundvelli vinstri
blaðanna á bls. 30.