Morgunblaðið - 21.12.1985, Blaðsíða 76
' 76
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. DESEMBER1985
Hindrunarhlaup
Kvikmyndir
Árni Þórarinsson
Regnboginn: Hetjulund, sagan
af Terry Fox — Heart of a Champ-
ion. **
Kanadísk. Árgerð 1983. Handrit:
Edward Hume. Leikstjóri: Ralph
L. Thomas. Aðalhlutverk: Eric
Fryer, Robert Duvall, Michael
Zelniker, Rosalind Chao.
íslenski titillinn Hetjulund
segir mikið um hvers konar
mynd er hér á ferðinni — hetju-
saga um baráttu manns við eigin
örlög, í þessu tilviki krabbamein.
Krabbamein er býsna algengur
örlagavaldur í kvikmyndum, eins
og í raunveruleikanum, en þessi
óhugnanlegi sjúkdómur er vand-
meðfarið dramatískt hráefni og
hefur dregið flestar þessara
mynda niður í botnlaust væmnis-
glassúr. Ekki bætir úr skák þegar
þetta hráefni er tekið beint úr
raunveruleikanum eins og í þess-
ari mynd. Sagan af Terry Fox
er sönn saga og myndin í eðli
sínu leikin heimildamynd. En
miðað við þær þröngu listrænu
skorður sem myndinni eru settar
að þessu leyti standa aðstand-
endur hennar sig ekki illa.
Terry Fox var ungur Kanada-
maður með góða hæfileika til
iþrótta sem í blóma lifsins fær
krabbamein í annað hnéð og
MVRA^
Eric Fryer sem Terry Fox
félags Kanada í Hetjulund.
°8
%
Robert Duvall sem fulltrúi krabbameins-
missir fótinn. Hann býður þessu
hlutskipti sínu byrginn og ákveð-
ur að hlaupa einfættur þvert yfir
Kanada til að safna fé til krabba-
meinsrannsókna. Þetta er efni
myndarinnar og ekki verður um
það sagt að mikið svigrúm gefist
til sköpunar margra og flókinna
persóna eða spennu eða húmors
eða rómantíkur — þessara helstu
lífgjafa bíómynda gegnum tið-
ina. En Hetjulund er skilmerki-
lega gerð og hleypur yfir helstu
gryfjur tilfinningaseminnar.
Persóna Terry Fox er miðpunkt-
ur myndarinnar og hinn fatlaði
leikari Eric Fryer túlkar einkar
vel þennan uppstökka skaphund,
eigingirni hans, reiði og hug-
rekki. En eins og flestar leiknar
heimildamyndir á Hetjulund
heima í öðrum miðli, þ.e. sjón-
varpi og fyrir þann miðil var hún
gerð.
/TIGfk
mmeiríháttar
tryllitækil
meft stvri na nrvnnishremsum nn hú
með stýri og öryggisbremsum og þú
getur sveigt, beygt og bremsað að vild. Stiga
brunsleðinn er níðsterkur: Hann ber jafnt börn
sem fullorðna.
"\w
■ ■ \ 1
Með stýrisskíðinu nœrðu krappri beygju. örugg handbremsa við
Skíðin eru úr þrælsterku Etan-plasti og allar aðstæður og varn-
renna þvi mjög vel. argrind fyrir framan
fœturna.
Með sérhönnuðum útbúnaði
sveigir sleðinn til hliðar og
stöðvast sjálfkrafa ef þú mlssir
hann.
ÖRNINN
Spítalasfíg 8 vió Óóinsíorg simar: 14661,26888