Morgunblaðið - 30.07.1982, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ1982
Elo-skákstiginn:
Friðrik kominn
niöur fyrir
2500 Elo-stig
KKIDKIK Olafsson er enn stiga-
hæstur islenzkra skákmanna, en
Elo-stigum hans hefur mjög fækkað
að undanförnu. Ilann hefur nú 2495
Elo-stig og er í 99. sæti á lista yfir
sterkustu skákmenn heims. Guð-
mundur Sigurjónsson er í öðru sæti
2470 stig, og er í 166. sæti á lista yfir
sterkustu skákmenn heims.
Röð 20 efstu skákmanna ís-
lenskra samkvæmt Elo—stiga er
nú: Friðrik Ólafsson 2495, 2. Guð-
mundur Sigurjónsson 2470, 3. Jón
L. Arnason 2455, 4. Ingi R. Jó-
hannsson 2430, 5. Helgi Ólafsson
2430, 6. Margeir Pétursson 2420, 7.
Haukur Angantýsson 2415, 8.
Ingvar Asmundsson 2415, 9. Jó-
hann Hjartarson 2400, 10. Jón
Kristinsson 2390, 11. Sævar
Bjarnason 2380, 12. Elvar Guð-
mundsson 2360, 13. Benóný Bene-
diktsson 2355, 14. Björn Þor-
steinsson 2330, 15. Jón Þor-
steinsson 2320, 16. Jóhannes G.
Jónsson 2315, 17. Karl Þorsteins
2310, 18. Gunnar Gunnarsson
2305, 19. Ásgeir Ásbjörnsson 2295,
20. Bragi Kristjánsson 2295.
Skorað á ungl-
inga að
búa sig vel
í tilkynningu, sem Morgunblað-
inu hefur borist frá starfsfólki
Utideildar Reykjavíkurborgar, eru
unglingar hvattir til að búa sig vel
í útilegur helgarinnar. Þar segir
að reynslan hafi sýnt, að fólk sé
misjafnlega vel búið til útilegu og
sérstaklega eigi það vel við nú, að
fólk búi sig vel, þar sem spáin sé
ekki of góð.
Níu Jijónustubifreið-
ir FIB úti á vegum
UM verslunarmannahelgina, 31.
júlí—2. ágúst, veróa vegaþjónustu-
bifreiðir FIB staðsettar sem hér seg-
in
Vegaþjónustubifreið FÍB 1: í Þrast-
arlundi og á Þingvöllum
Vegaþjónustubifreið FÍB 2: í Víði-
gerði í Víðidal, V-Hún,. og nágr.
Vegaþjónustubifreið FÍB 3: í Galta-
læk og Þjórsárdal.
Vegaþjónustubifreið FÍB 4: Bíla-
verkst. Hofi í Öræfum.
Jón Baldvinsson við bryggju í Reykjavík skömmu áður en skipið var dregið
utan til Noregs. Ljósni. Mb|. K()K.
„Náðum mjög góðum samn-
ingum við Wichman"
segir Ragnar Júlíusson
„VIÐ náðum mjög góðum samn-
ingum við Wichmann-verksmiðjurn-
ar að mínu mati. Verksmiðjurnar
ábyrgjast aðalvélina í Jóni Baldvins-
syni í eitt ár eftir aö viðgerð líkur, en
vélin, sem er tveggja ára, hefur verið
meira og minna biluð frá upphafi,"
sagði Kagnar Júlíusson, stjórnar-
1.500 manns á tónleikum
• •
Oldutúnsskólakórsins
„ÞAi> KR ekki oft, sem íslenzkur kór
fær slíka aðsókn að tónleikum og Kór
Oldutúnsskóla fékk á miðvikudags-
kvöldið hér í Kanton," segir i skeyti,
sem Morgunblaðinu hefur borizt frá
kórnum, sem nú er í tónleikaferðalagi
í Kína. „Hátt í 1.500 manns svo til
fylltu hinn mikla sal „Leikhúss þjóð-
anna“ hér og fögnuðu kórnum eftir
hvert lag og að söngnum loknum."
Síðan segir í skeytinu: „Móttökur
allar hér í Kanton hafa verið ein-
staklega þægilegar og elskulegar.
Kórinn hefur farið víða, skoðað fjöl-
margt og kynnzt mörgu, m.a. hinu
fræga Kantonfæði. Óttast fólk að
hér verði safnað kílóum, þrátt fyrir
mikinn hita, sem er 36 gráður á
hverjum degi.
Kórinn kemur fram í útvarpi á
fimmtudag og um kvöldið verða síð-
ustu tónleikar kórsins hér í borg, en
haldið til Peking á morgun."
Steingrímur Sigurðsson
með sýningu á Hótel Isafirði
Fimmtugasta sýning Steingríms á sextán árum
ísafirAi, 29. júlí.
Ai) BYKJA að mála fjörutíu og eins
árs og halda fimmtugustu málverka-
sýninguna sextán árum síðar er
sennilega ekki á margra færi. En
Steingrimur Sigurðsson, listmálari, er
kominn vestur til að halda fimmtug-
ustu málverkasýningu sína hér á ísa-
firði.
Hann opnar á Hótel ísafirði,
föstudaginn 30. júlí, kl. 13.30. Á
sýningunni, sem stendur til mánu-
dagskvölds, eru 26 myndir, flestar
nýjar. Myndirnar eru málaðar ým-
ist vestur við Djúp eða á götum
Parísar, en listamaðurinn er ný-
kominn úr fimm landa Evrópuferð
þar sem hann, auk þess að mála,
hélt sýningu í London í tilefni þjóð-
hátíðardagsins.
í stuttu spjalli sagði Steingrím-
ur, að hann hefði ákveðið það, eftir
að hafa setið sextugsafmælisveislu
vinar síns, Friðriks Bjarnasonar
málarameistara, hér í vor, að halda
fimmtugustu málverkasýningu
sína á Isafirði, í því sérstæða
andrúmslofti, sem umlykur Vest-
firðinga.
Hann hafði orð á því, að það
hefði verið sér mikil lífsreynsla,
þegar hann hélt síðast sýningu á
Isafirði, en það var árið 1978. Hann
hafði sett upp sýningu hjá pólitísk-
um skoðanabræðrum sínum að
Uppsölum á kjördegi, en fyrir ein-
hvern misskilning var hann rekinn
þaðan út með látum. Þá komu til
pólitískir fjandmenn hans, með Jón
Baldvin og Ingibjörgu Guðmunds-
dóttur söngkonu í broddi fylkingar,
og varð sýningin flutt hraðfari af
Uppsölum á bókasafnið, þar sem
hann fékk góða aðsókn.
„En þó mér hafi sárnað þetta við
mína ágætu skoðanabræður í
Sjálfstæðisflokknum á sínum tíma,
þá ætla ég þó að senda þeim boðs-
kort á þessa sýningu," sagði Stein-
grímur.
Héðan heldur Steingrímur norð-
ur í Trékyllisvík á Ströndum, þar
sem hann ætlar að mála, skrifa og
njóta einverunnar norður út við Is-
hafsrönd.
Úlfar
Gísli Gunnarsson
Sumartónleikar í Skálholts-
kirkju fjórar næstu helgar
— Arni Arinbjarnarson leikur um helgina
llm verslunarmannahelgina hefj-
ast „Sumartónleikar í Skálholts-
kirkju". Verða tónleikar laugardag,
sunnudag og mánudag kl. 15 og síð-
an næstu þrjár helgar í ágúst á sama
tíma. Að venju er mismunandi efn-
isskrá um hverja helgi.
Fyrstu tónleikahelgina (versl-
unarmannahelgina) mun Árni Ar-
inbjarnarson leika orgelverk eftir
Sweelinck, Buxtehude og Bach. 7.
og 8. ágúst flytja Halldór Vil-
helmsson og Gústaf Jóhannesson
nýja kirkjutónlist eftir Gunnar
Reyni Sveinsson. Helgina 14. og
15. ágúst verða flutt verk eftir
Hafliða M. Hallgrímsson fyrir
selló og sembal og mun Helga
Ingólfsdóttir leika með tónskáld-
inu. Síðustu tónleikahelgina sem
er 21. og 22. ágúst mun Orthulf
Prunner leika verk eftir Bach.
Þess má geta að aðgangur að
þessum tónleikum er ókeypis, og
að nú getur fólk fengið bæði gist-
ingu og fæði í húsnæði Lýðháskól-
ans í Skálholti. Messað er í Skál-
holtskirkju sunnudaga kl. 21.
Önundur Björnsson
Umsækjandi
hlaut öll
atkvæðin
ATKV/EÐI voru talin í gær á Bisk-
upsstofu í tvennum prestkosningum,
sem fram fóru sl. helgi.
í Glaumbæjarprestakalli í
Skagafirði var einn umsækjandi,
Gísli Gunnarsson cand theol. Á
kjörskrá voru 274, atkvæði
greiddu 203 og hlaut umsækjandi
öll atkvæði. Kosningin er lögmæt.
í Bjarnarnesprestakalli (Höfn,
Hornafirði) í Skaftafellsprófast-
dæmi voru tveir umsækjendur. Á
kjörskrá voru 1.185, atkvæði
greiddu 579. önundur Björnsson
cand theol hlaut 495 atkvæði og
Sigurður Arngrímsson cand theol
71 atkvæði. 13 seölar voru auðir.
Kosningin er ekki lögmæt.
formaður Bæjarútgerðar Reykjavík-
ur, i samtali við Morgunblaðið, en
hann kom til landsins i gerkvöldi
ásamt Björgvin Guðmundssyni
framkvæmdastjóra eftir viðræður
við forráðamenn Wichmann-verk-
smiðjanna i Noregi.
Ragnar sagði, að tjónið, sem nú
væri á vélinni, næði aðeins til eins
strokks af sjö. Verksmiðjurnar
hefðu samþykkt þá kröfu BÚR að
fara yfir alla vélina og ætla þær
að ljúka verkinu á fjórum vikum.
Kvað Ragnar að Wichmann ætlaði
að gera nokkrar endurbætur á vél-
inni og að ábyrgjast alla vélina í
eitt ár eftir að viðgerð líkur. Auk
þess sem farið verður yfir alla vél-
ina verður svartolíukerfið endur-
bætt til þess að komst í veg fyrir
frekari vandræði.
Vegaþjónustubifreið FÍB 5: I Borg-
arfirði.
Vegaþjónustubifreið FÍB 6: Frá Ak-
ureyri um Norðurland.
Vegaþjónustubifreið FÍB 7: Frá
Höfn í Hornafirði að Skaftafelli.
Vegaþjónustubifreið FÍB 8: Frá Vík í
Mýrdal að Klaustri og austur um.
Vegaþjónustubifreið FÍB 9: Frá Eg-
ilsstöðum um Austfirði.
Aðstoðarbeiðnum er hægt að
koma á framfæri á eftirfarandi
máta: FÍB 1 um veitingaskálana í
Þrastarlundi og Hótel Valhöll á
Þingvöllum og um rás 19 á CB-stöðv-
um. FÍB 2 um Bifreiðaverkstæðið
Víðigerði sem opið er allar helgar.
FÍB 3 um rás 19 á CB-stöðvum. FIB 4
um bifreiðaverkstæðið á Hofi í ör-
æfum, og á rás 19 á CB-stöðvum eða
um Fagurhólsmýri. FÍB 5 um veit-
ingaskálann á Hvítárbökkum og rás
19 á CB-stöðvum. FÍB 6 um rás 19 á
CB-stöðvum. FÍB 7 um rás 19 á
CB-stöðvum. FÍB 8 um rás 19 á
CB-stöðvum.
Athygli skal vakin á því að mikill
fjöldi bíla er útbúninn með CB-tal-
stöðvum og skal þeim er óska aðstoð-
ar bent á að stöðva slíka bíla og
biðja ökumenn þeirra að koma skila-
boðum áleiðis til vegaþjónustubíl-
anna. Bíla sem útbúnir eru með
talstöðvum má auðveldlega þekkja
úr á talstöðvaloftnetum þeirra.
Þeim sem óska aðstoðar skal bent
á að gefa upp númer bifreiðar og
staðsetningu, auk þess hvort menn
eru félagar í FÍB, en þeir ganga fyrir
með þjónustu. Þá skal bent á að
nauðsynlegt er að fá staðfest hvort
vegaþjónustubifreið fæst á staðinn,
því slíkar beiðnir verða látnar sitja
fyrir.
Vegaþjónusta FÍB vill benda öku-
mönnum á að hafa með sér viftu-
reimar af réttri stærð, varahjól-
barða og helstu varahluti í kveikju.
Verzlunarmannahelgin:
Umferðarráð og lögreglan
með upplýsingamiðstöð
AÐ VENJU starfrækja Umferðarráð
og lögreglan um allt land upplýs-
ingamiðstöð um helgina. Verður þar
safnað upplýsingum um hina ýmsu
þætti umferðarinnar, og öðru sem
ætla má að geti orðið ferðafólki að
gagni. Má þar nefna ástand vega,
veður, hvar vegaþjónustubílar FÍB
eru staddir hverju sinni og umferð á
hinum ýmsu stöðum.
I síma 27666 verður reynt að
miðla upplýsingum eftir því sem
tök eru á, en búast má við tals-
verðu álagi á þann síma og er fólk
beðið um að hafa það í huga.
Upplýsingamiðstöðin verður
starfrækt sem hér segir:
Föstudaginn 30. júlí kl.
13.00—22.00, laugardaginn 31. júlí
kl. 09.00—22.00, sunnudaginn 1.
ágúst kl. 13.00—18.00, mánudag-
inn 2. ágúst kl. 10.00—23.00.
í frétt frá Umferðarráði segir:
Þessa sömu daga verður beint
útvarp frá upplýsingamiðstöðinni
og munu þau Birna G. Bjarnleifs-
dóttir og Gunnar Kári Magnússon
annast útsendingar. Fólk sem hef-
ur útvarp í bíl sínum, er hvatt til
að hlusta á þessa útvarpspistla,
því aldrei er að vita, nema þar
komi eitthvað það fram, sem gæti
orðið ferðafólki til glöggvunar og
fróðleiks.
Um verslunarmannahelgina má
búast við mikilli umferð um allt
land og eru því vegfarendur hvatt-
ir til sérstakrar árvekni, tillits-
semi og varkárni um þessa mestu
ferðahelgi ársins. Án þess að ætla
að hafa áhrif á hvert fólk ferðast
má minna á að langt ferðalag er
ekki í öllum tilfellum nauðsyn.
Fallegir staðir og góð tjaldaðstaða
er oft rétt við bæjardyr fólks, og
því ástæöulaust að leita langt yfir
skammt.
Um leið og Umferðarráð óskar
öllum landsmönnum góðrar ferðar
hvort heldur þeir ferðast stutt eða
langt, minnir það góðfúslega á að
gott skap og gagnkvæm tillitssemi
gerir góða ferð betri, og notkun
bílbelta getur haft örlagarík áhrif
á ánægju ferðalags.
Valtýr sýnir í Þrastarlundi
SÝNING á verkum Valtýs Pét-
urssonar stendur nú yfir í Þrast-
arlundi. Á sýningunni eru 28 olíu-
málverk, öll ný. Ber mest á mynd-
um frá höfuðborginni, en einnig
eru þar landslagsmálverk. Sýning
á verkum Valtýs er orðinn árlegur
viðburður í Þrastarlundi, þar sem
þetta er 9. árið í röð, sem hann
sýnir þar. Sýningunni lýkur þann
9. ágúst.