Morgunblaðið - 30.07.1982, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ1982
„Brjálaði Mike“ fékk
20 ára fangelsisdóm
l’ielermaritzhurg, Suóur-Afríku, 29. júlí. AF.
HINN þekkti málaliðaforingi
„Brjálaði \like“ Hoare var í dag
da-mdur til 20 ára fangelsisvistar, 10
ár skilorösbundið, fyrir að ræna
þotu frá Air India á Sechelles-eyjum
eftir misheppnaða byltingartilraun
þar í nóvember siðastliðnum.
Félagar Hoare í ráninu fengu
vægari dóma, frá 6 mánuðum og
upp í 5 ár. Dómur var kveðinn upp
í máli þeirra tveimur dögum eftir
að þeir voru sekir fundnir um
a.m.k. eitt lögbrot hver.
Dómarinn lét þess getið þegar
hann kvað upp úrskurð sinn að
hann teldi þá seku vera sómamenn
innst inni, sem fallið hefðu S
freistni þar sem miklir fjármunir
voru í boði. Sagðist hann hafa tek-
ið tillit til þess og margir þar af
leiðandi fengið vægari dóma.
Sagði hann ennfremur að hann
vonaðist eftir því að þeir seku
sæju að sér í framtíðinni og bættu
ráð sitt.
Eru sígarettur
geislavirkar?
Bóslon, 29. júlí. AP.
ÖRSMÁAR, geislavirkar agnir í
sígarettum geta valdið krabbameini,
hjartasjúkdómum og ótímabærri
ellihrörnun hjá stórreykinga-
mönnum að því er segir i áliti nokk-
urra bandarískra lækna og visinda-
manna.
Sá, sem reykir einn sígarettu-
pakka á dag, verður fyrir jafn
mikilli geislun og „sá, sem er
Veður
víða um heim
Akureyri 10 alskýjaó
Amsterdam 24 heióskírt
Aþena 34 heiósklrt
Barcelona 25 mistur
Berlín 26 heióskirt
Brtissel 24 heiósklrt
Chicago 26 skýjaó
Dyflinni 20 heiðskírt
Feneyjar 27 léttskýjaó
Frankturt 17 rigning
Færeyjar 2 vantar
Genf 21 heióskírt
Helsinki 18 skýjaó
Hong Kong 35 heióskirt
Jerúsalem 27 skýjaó
Jóhannesarborg 20 heióskírt
Kairó 33 heióskfrt
Kaupmannahöfn 25 heiðskfrt
Las Palmas 25 léttskýjaó
Líssabon 24 skýjaó
London 23 heióskírt
Los Angeles 29 heiöskfrt
Madrid 29 heióskfrt
Malaga 28 skýjaó
Mallorca 30 skýjaó
Miami 33 skýjaó
Moskva 24 skýjaó
Nýja Delhi 32 skýjaó
New York 29 heióskfrt
Osló 28 heiðskfrt
París 24 skýjaó
Perfh 11 heióskírt
Rio de Janeiro 31 heióskfrt
Reykjavík 8 alskýjaó
röntgenmyndaður daglega“, segir
dr. R. T. Ravenholt, forstöðumað-
ur stofnunar, sem fylgist með og
berst gegn sjúkdómum um heim
allan, en hann er einn nokkurra
lækna, sem eiga grein um geisla-
virkni í sígarettum í nýjasta hefti
hins virta tímarits New England
Journal of Medicin. Þessi umræða
kemur í kjölfar rannsókna tveggja
annarra vísindamanna, Joseph R.
di Franza og Thomas H. Winters,
við læknaháskólann í Massachus-
setts.
Síðastnefndu mennirnir tveir
segja, að í köfnunarefnisáburði,
sem notaður er á tóbaksekrunum,
sé geislavirkt efni, polonium, sem
valdi alfa-geislun til jafns við 300
röntgenmyndanir á einu ári — 100
sinnum meira en eðlilegt er.
Anne Browder, talsmaður tób-
aksframleiðenda, hefur mótmælt
þessum niðurstöðum og segir, að
rannsóknir vísindamannanna séu
að mörgu leyti úreltar. „Það virð-
ist vera í tísku að kenna reyking-
um um allt milli himins og jarðar
og nú eru þær meira að segja
orðnar geislavirkar," sagði hún.
Missýn olli
ítarlegri leit
Stokkhólmi, 29. júlí. AP.
TVÖ skip og þyrla sa nsku landhelgis-
gæslunnar leituðu i dag ákaft tveggja
óþekktra kafbáta innan skerjagarðsins
norðan Stokkhólms.
Leitin hófst þegar þrjú ungmenni,
sem voru á siglingu, gerðu viðvart í
landi og sögðust hafa séð tvær sjón-
pípur upp úr sjónum um miðnættið í
gær. Brást landhelgisgæslan hart
við og sendi þegar í stað tvö skip út
til Ieitar og síðar bættist þyrla í hóp-
inn. Síðar í dag var svo frá því skýrt
að líklegast hefði verið um missýn að
ræða hjá unglingunum og þau séð
baujur.
Úr ísnum eftir 500 ár
Litli Inka-drengurinn á myndinni fannst fyrir
skömmu í ís hátt uppi í Andesfjöllum í Chile og telja
vísindamenn, að honum hafi verið fórnað sólinni fyrir
500 árum. Unnið er nú að því að varðveita líkamsleif-
arnar sem best. AP
Millisvæðamótið:
Ribli
sigraði
Las Pilmu, 29. júlí. AP.
UNGVERSKI stórmeistarinn
Zoltan Ribli sigraði á milli-
svæðamótinu í Las Palmas í
dag. Hlaut Ribli 9 vinninga af
13 mögulegum og tapaði engri
skák. Hann gerði í dag jafn-
tefli við stórmeistarann
Psakhis frá Sovétríkjunum í
15 leikjum. Smyslov, fyrrum
heimsmeistari, varð í öðru
sæti á mótinu, en hann gerði í
dag jafntefli við Bouaziz frá
Túnis í aðeins 11 leikjum og
hlaut samtals 8,5 vinninga.
Ribli og Smyslov komast einir
áfram í áskorendaeinvígin um
heimsmeistaratitilinn í skák.
Önnur úrslit í síðustu um-
ferð mótsins í dag urðu þau
að Suba vann Larsen, Mestel
vann Pinter, en Petrosjan og
Karlsson gerðu jafntefli.
Skákir Tukmakovs og
Timmans og Netos og
Brownes fóru í bið.
Suba varð í þriðja sæti á
mótinu með 8 vinninga,
Petrosjan fékk 7,5, Tuk-
makov er með 7 og biðskák,
Larsen 6,5, Timman 6 og
biðskák, Pinter, Psakhis og
Mestel 6 vinninga, Karlsson
og Bouaziz 5,5, Neto 4,5 og
biðskák og Browne 3 og
biðskák.
Friðargöngufólk segir
frá skilmálum Rússa
Moskvu, 29. juli. AP.
FRIÐARFERÐ 300 Norðurlandabúa um Sovétríkin lauk í dag og hafði þá
staðiö í 13 daga og fundir verið haldnir í sex borgum. Skipuleggjendur
ferðarinnar sögðu í dag frá því hvaða skilyröi sovésk stjórnvöld settu áður en
þau leyfðu hópnum að koma til landsins.
Aðstandendur friðarferðarinn-
ar áttu í mánaðarlöngum samn-
ingaviðræðum við Sovétmenn um
tilhögun ferðarinnar og féllust
loks á eftirtalda skilmála:
- Fjöldi friðargöngufólksins var
takmarkaður við 300 eða 75 frá
hverju landi, Finnlandi, Svíþjóð,
Danmörku og Noregi.
- Aðeins var leyft að hafa uppi
þrjár kröfur, sem sovésk stjórn-
völd hefðu áður lagt blessun sína
yfir.
- Ekki mátti ljúka ferðinni í
Moskvu eins og Norðurlandabú-
arnir vildu, því að þá kynni að
verða litið svo á, að mótmælunum
væri beint gegn ráðstjórninni.
- Aðeins yrði farið með sérstök-
um langferðabifreiðum og lestum
og í fylgd með fulltrúum stjórnar-
innar.
Sovétmenn lögðu einnig blátt
bann við fundi Norðurlandabú-
anna og þeirra Moskvubúa, sem í
júní sl. tilkynntu um stofnun
sjálfstæðrar friðarhreyfingar í
Sovétríkjunum, og var farið eftir
því af hálfu göngufólksins. Tveir
leiðtogar þessarar hreyfingar voru
fangelsaðir fyrir nokkru, aðrir
tveir reknir úr borginni og hinir
hafðir í strangri gæslu lögregl-
unnar.
í yfirlýsingu frá göngufólkinu í
dag er skorað á ríkisstjórnir og
fólk um allan heim að láta nú
hendur standa fram úr ermum og
hefja raunverulega afvopnun, ekki
bara í orði heldur einnig á borði.
Sheffield sökk vegna mis-
lesturs á ratsjármerkjum
— segir í grein í New Scientist um mistök Breta í Falklandseyjastríðinu
Ixindan, 29. júlí. AP.
ARGENTÍNSKUM flugvélum tókst að sökkva tundurspillinum Sheffield
vegna þess, að yfirmenn skipsins töldu ratsjármerkin frá flugvélunum
vera frá Harrier-þotum, þeirra eigin flugvélum, að því er segir í dag í
breska tímaritinu New Scientist.
í tímaritinu segir, að þessi
mistök og önnur álíka hafi átt
meginþátt í að Argentínu-
mönnum tókst að sökkva sex
breskum skipum í Falklands-
eyjastríðinu. Sagt er, og vitnað í
heimildamenn innan vopnaiðn-
aðarins, að yfirmenn á Sheffield
hefðu átt að vita með 17 mínútna
fyrirvara, að argentínskar Super
Etendard, búnar Exocet-
flugskeytum, voru að nálgast
skipið. „En vegna þess hve rat-
sjármerkin voru lík þeim frá
Harrier-þotunum ákvað viðkom-
andi yfirmaður, að allt væri með
felldu," segir í tímaritsgreininni.
„Þá leyfði hann, að haft væri
samband við London um gervi-
hnött en slökkti ekki á ratsján-
um eins og haldið hefur verið
fram. Hins vegar voru þær í
raun óvirkar vegna sambandsins
við London."
Að því er segir í New Scientist
var sveit Lynx-þyrlna fengið það
verkefni að trufla ratsjá Exoc-
et-flugskeytanna með villandi
merkjum og hefði það tekist vel
og líklega beint tveimur þeirra
frá flugmóðurskipinu Hermes.
Hins vegar hefðu þær, að Herm-
es slepptu, fundið sér annað
skotmark, birgðaskipið Atlantic
Conveyor, sem sökk ásamt fjór-
um mönnum og 15 þyrlum. Tíma-
ritið segir, að mestu mistök
Breta hafi verið, að þá skorti
nógu langdrægt ratsjárkerfi í
líkingu við það, sem er í Awacs-
flugvélunum bandarísku. Til
þess megi rekja næstum öll áföll
Breta í stríðinu um Falklands-
eyjar.
Danir skila
Grænlendingum
fornminjum
Mexíkóhorg, 29. júlí. AP.
AÐ SÖGN Lisu Östergaard, menn-
ingarmálaráðherra Dana, hefur
Margrét Ilanadrottning II í hyggju
að skila Grænlendingum aftur um
200 málverkum frá „gullöld“ græn-
lenskrar málaralistar í næsta mán-
uði.
Þá er ennfremur ætlunin að
sögn Östergaard að skila Græn-
lendingum aftur fjölda annarra
fornmuna, sem nú eru til sýnis á
þjóðminjasafninu í Kaupmanna-
höfn.
Flestir þessara muna voru flutt-
ir til Danmerkur snemma á þess-
ari öld til varðveizlu. Samkvæmt
lögum frá í fyrra, þar sem kveðið
er á um stjórn Grænlendinga á
eigin menningarmálum, verður
mununum skilað aftur þar sem
þeim verður komið fyrir í þjóð-
minjasafni Grænlendinga í Nuuk
(áður Godthaab).