Neytendablaðið - jún. 2017, Blaðsíða 14
Sp
ur
t &
sv
ar
að
NEYTENDABLAÐIÐ // JÚNÍ 2017
Stefán Hrafn Jónsson er prófessor í félagsfræði
við Há skóla Íslands og stjórnarmaður í Neytenda
samtökunum.
Áttu gott neytendaráð sem þú vilt deila?
Vertu vingjarnlegur við afgreiðslufólkið. Sýndu starfi þess
áhuga og spjallaðu smá við það. Verslunarferðin verður
skemmtilegri og þjónustan verður smátt og smátt betri.
Hvað lætur þú fara í taugarnar á þér sem neyt-
andi?
Misræmi milli hilluverðs og kassaverðs fer afar illa í mig. Ef
verslunareigendur geta ekki haft það í lagi ættu þeir ekki að
breyta verði á opnunartíma. Eins fer í taugarnar á mér þegar
verslanir hækka vöru tímabundið til að lækka það aftur og
auglýsa afslátt eða tilboð.
Hvenær keyptir þú síðast köttinn í seknum?
Í fljótu bragði er tvennt sem ég man eftir. Annars vegar
þegar ég keypti í Rúmfatalagernum plastdrasl með hand
fangi sem vildi vera fægiskófla. Brúnin var svo sveigð að
allur sandurinn fór undir hana við notkun. Startkaplar í
Verkfæralagernum gerðu aldrei neitt gagn nema til að binda
utan um ruslapoka. Það er ekki alltaf sparnaður að kaupa
ódýrasta draslið.
Hvar fékkst þú síðast frábæra þjónustu?
Það er svo víða sem fyrirtæki eru með frábært starfsfólk
og því af mörgu að taka. Í Elko úti á Granda var ungur af
greiðslumaður sem sagði mér allt sem ég þurfti að vita um
eldavélar þó ég hefði sagt honum skýrt að ég ætlaði ekki að
kaupa, bara skoða. En ég fer líklega þangað aftur. Eins er ég
afar ánægður með þjónustuna í Pixlar, eitt síðasta vígið sem
framkallar filmur.
Getur þú nefnt góð kaup sem þú gerðir nýlega?
Já, ég keypti í vor afar góða og vonandi sígilda vetrarúlpu
á útsölu í 66 gráðum. Það er góður tími að kaupa úlpu á
vorútsölum. Mér skilst að það komi annar vetur síðar.
Hvar liggur sérfræðiþekking þín sem neytanda?
Þetta er erfið spurning. Ég tel að áhuga minn á gegnsæi í
öllu starfi, rannsóknum og rekstri megi yfirfæra á neytenda
mál. Aukið gegnsæi í viðskiptum gæti bætt neytenda
umhverfi veru lega. Lögmálið um framboð og eftirspurn
virkar illa ef við takmörkum aðgengi að upplýsingum eins
og t.d. um verð og gæði.
14