Morgunblaðið - 12.05.2000, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 2000 39
LISTIR
Morgunblaðið/Jenný
Sigríður Björnsdóttir frá Kleppustöðum tekur hér lagið með Kvenna-
kórnum Norðurljós sem heimsótti m.a. Drangnesinga á dögunum.
Kvennakór gerir víðreist
Árneshreppi. Morgnnblaðið.
KVENNAKÓRINN Norðurljós frá
Hólmavík hefur gert víðreist að
undanförnu og haldið tónleika í Ár-
neskirkju hinni njju og Sam-
komuhúsinu Baldri á Drangsnesi.
Einsöngvari var Sigríður Björns-
dóttir frá Kleppustöðum og tvísöng-
ur í höndum þeirra systra Mariola
og Elzbieta Kowalczyk, undirleik-
arar voru Elzbieta Kowalcyk og
Gunnlaugur Bjarnason.
Kórinn var stofnaður síðasta
haust og báru tónleikarnir það með
sér að vorið er komið en dagskráin
var Qölbreytt og lagavalið fjölþjóð-
iegt.
Þing norrænna rit-
höfunda í Yilnius
ÞING norrænna rithöfunda var
haldið í norrænudeild Vilníusarhá-
skóla 3. til 7. maí. I tengslum við
þingið sendi Bókmenntakynningar-
sjóður Islands Laxnesssýninguna til
Vilníus. Sýninguna undirbjuggu
menntamalaráðuneyti íslands,
Landsbókasafn Islands, Bók-
menntakynningarsjóður og Vaka-
Helgafell.
Sýningin var sett upp í Lands-
M-2000
Föstudagur 12. maí.
Sjóstangaveiðimót
Akranesi.
Sjávarlist - Akranesi er eitt
af samvinnuverkefnum Menn-
ingarborgar og sveitarfélaga.
Hluti af þeirra dagskrá er
sjóstangaveiðimót, sem bæjar-
búum verður boðið upp á föstu-
dagoglaugardag.
Dagskráin er liður í menn-
ingarborgarárinu.
www.reykjavik2000.is.
wap.olis.is.
bókasafni Litháens en hún var opn-
uð 4. maí. Halldór Guðmundsson, út-
gáfustjóri Máls og menningar,
opnaði sýninguna. Halldór flutti fyr-
irlestur um ævi Laxness og verk
hans. A meðal gesta sýningarinnar
voru þátttakendur rithöfundaþings-
ins Mártha Tikkanen (Finnlandi),
Inger Edelfeldt (Svíþjóð), Soren Ul-
rik Thomsen (Danmörku), Ari Behn
(Noregi) og einnig fyrsti þýðandi
Laxness a litháísku, rithöfundurinn
Vytautas Rudokas. Þýðing hans á
Sjálfstæðu fólki kom út 1956.
Heimsljós og fslandsklukkan hafa
einnig verið þýddar á litháísku.
Laxnesssýningin hefur vakið
mikla athygli í Litháen og að sögn
starfsmanna Þjóðbókasafnsins er
hún vel sótt. Sýningin stendur til
16.maí.
Halldór Guðmundsson flutti einn-
ig fyrirlestur um íslenskar samtíma-
bókmenntir í Vilníusarháskola.
Um þessar mundir er Kristín Óm-
arsdóttir, rithöfundur og ljóðskáld, í
Vilníus og verður leikrit hennar
„Segðu mér allt“ frumsýnt í Leik-
húsi æskufólks í dag, föstudag.
Leikstjóri er Ásdís Þórhallsdóttir.
Vortónleikar barnakórs
BARNAKÓR Háteigskirkju lýkur
vetrarstarfí sínu með tónleikum í
Háteigskirkju í kvöld, föstudags-
kvöld, kl. 20.
Kórfélagar eru um 60 á aldrinum
6-13 ára og starfa í tveimur deildum.
Stjórnandi kórsins er Bima Björns-
dóttir. Undirleikari er Ari Agnars-
son. Gunnhildur Vala Hannesdóttir
leikur á þverflautu og Magdalena
Olga Dubik á fíðlu.
Aðgangseyrir er 700 kr.
Nýjar plötur
• GÖMUL visa um vorið er með 12
lögum og þjóðlagaútsetningum eftir
Gunnstein Ólafsson. A diskinum
koma fram þrír
kórar. Flest lögin
eru sungin af
Kammerkór
Kópavogs en auk
hans syngja
Kammerkór
Biskupstungna,
sem er barna- og
unglingakór, og
Kór Menntaskól-
ans að Laugar-
vatni sem að þessu sinni er ein-
göngu skipaður stúlkum. Stjórnandi
allra kóranna á diskinum er Gunn-
steinn Ólafsson. Þá syngur Ágústa
Sigrún Ágústsdóttir tvö lög við und-
irleik Kristins Arnar Kristinssonar.
Kammerkór Kópavogs ber hitann
og þungann af útgáfunni. Hann var
stofnaður árið 1998 og syngur nú í
fyrsta sinn lög inn á geisladisk.
Tónsmíðarnar eru við ljóð kunnra
skálda á borð við Stein Steinarr, Jó-
hannes úr Kötlum, Guðmund Böð-
varsson, Tómas Guðmundsson og
Ólaf Jóhann Sigurðsson, en einnig
eftir kornungt ljóðskáld, Valgerði
Benediktsdóttur.
Geisladiskinum fylgir 24 síðna
bæklingur með textum á íslensku,
ensku og þýsku.
Útgefandi er Gunnsteinn Ólafs-
son en framleiðandi er Skref.
Dreifíngu annast verslunin 12
tónar. Tónlistin er fáanleg á nótum
hjá Islenskri tónverkamiðstöð.
Hönnun var í höndum Ragnars
Helga Ólafssonar. Um upptökur sá
Ólafur Elíasson og fóru þær fram í
Digraneskirkju, Fella- og Hóla-
kirkju og Skálholtskirkju. Verð
1.999 kr.
Spialibræðir
Það er leitarvél á Strikinu
05-
Mitt Strik
en lika fjármálaráðgjöf, mataruppskriftir og
upplýsingar um kvikmyndir, fþróttaviðburði,
heilsu, veður og færð.
mammmmmnm