Morgunblaðið - 12.05.2000, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 2000 1 3
FRÉTTIR
Visitala neysluverðs hækkar um 0,4%
Jafngildir tæplega
5% verðbólgu á
ársgrundvelli
VÍSITALA neysluverðs miðuð við
verðlag í maíbyrjun 2000 var 198,4
stig og hækkaði um 0,4% frá fyrra
mánuði, en þetta jafngildir 4,97%
verðbólgu á ársgrundvelli. Vísitala
neysluverðs án húsnæðis var 197,1
stig og hækkaði um 0,2% frá apríl.
Að því er fram kemur í frétt frá
Hagstofu íslands hækkaði verð á
mat og drykkjarvöru um 1,3% (vísi-
töluáhrif 0,21%) og ræður þar mestu
verðhækkun á ávöxtum um 7,9%
(0,08%) og grænmeti um 7,4%
(0,09%). Markaðsverð á húsnæði
hækkaði um 1,7% (0,16%). Bílar
lækkuðu í verði um 1,8% (0,17%) sem
stafar aðallega af lækkun vörugjalds.
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísi-
tala neysluyerðs hækkað um 5,9% og
vísitala neysluverðs án húsnæðis um
4,0%. Undanfama þrjá mánuði hefur
vísitala neysluverðs hækkað um
1,8% sem jafngildir 7,4% verðbólgu á
ári.
Verðbólgan í ríkjum EES frá mars
1999 til mars 2000, mæld á sam-
ræmda vísitölu neysluverðs, var
1,9% að meðaltali. A sama tímabili
var verðbólgan 2,3% í helstu við-
skiptalöndum íslendinga en 4,6% á
íslandi. Sambærilegar verðbólgutöl-
ur fyrir ísland eru 5,1% í apríl og
5,0% í maí 2000.
Birgir Isleifur Gunnarsson, seðla-
bankastjóri, segir hækkun neyslu-
verðsvísitölunnar í samræmi við nýja
verðbólguspá Seðlabankans og að
hún komi ekki á óvart. „Þessi undir-
liggjandi verðbólga er á mjög svip-
uðu róli og verið hefur.“
Sl. 12 mánuði hefur vísitala
neysluverðs hækkað um 5,9% en við
síðustu mælingu vai' 12 mánaða
hækkunin 6%. Birgir ísleifur segir
þennan mun of lítinn til að hægt sé að
fullyrða að verðbólga fari minnkandi
en telur að aðgerðir Seðlabankans í
formi vaxtahækkana hafi þar áhrif.
Morgunblaðið/Kristinn
Vilborg heiðruð og kvödd
ÞRIR rithöfundar voru á miðviku-
dag sæmdir bókmenntaverðlaunum
IBBY á íslandi fyrir störf sín í þágu
barna og framlag sitt til bama-
menningar. Um er að ræða þau Vil-
borgu Dagbjartsdóttur, Stefán Að-
alsteinsson og Yrsu Sigurðar-
dóttur. Vilborg hefur kennt
börnum í Austurbæjarskóla í 45 ár.
Hún er núna að ljúka sínu síðasta
starfsári við skólann og af því til-
eftii komu nemendur Vilborgar í 5.
bekk í Austurbæjarskóla til at-
hafnarinnar í Norræna húsinu og
sungu og fóru með (jóð eftir hana.
'
:
mm#
• • •
Vélarstærð
1800 cc
Hestöfl ABS Loftpúðar Hnakkapúðar CD Hátalarar Lengd I
112 já 2 5 já 4 4,60 m
Verð frá
1.589.000 kr.
Peugeot 406 er aðlaðandi bifreið hvernig sem á hana er litið. Sumir heillast af
frábærum aksturseiginleikum, aðrir af fágaðri útlitshönnuninni og öryggi bílsins
er ( margra augum það sem skiptir mestu máli. Peugeot 406 er stór bíll á verði
smábíls, - kjörgripur á hjólum.
Gunnar Bernhard ehf.
Vatnagörðum 24 • s. 520 1100
Sýningar og prufubílar eru einnig á eftirtöldum stöðum: Akranes: Bílver s. 431 1985, Akureyri: Bilasala Akureyrar s. 461 2533,
Vestmannaeyjar: Bílaverkstæðið Bragginn s. 481 1535, Keflavík: Bilavík ehf. s. 421 7800.
-
PEUGEOT