Morgunblaðið - 12.05.2000, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 2000 31
ERLENT
Borgarstjóri New York og kona hans skilja vegna meints framhjáhalds hans
Kyndir undir efasemdum
um framboð Giulianis
New York. Reuters, AFP, The Washington Post.
RUDOLPH Giuliani, borgarstjóri
New York, og eiginkona hans skýrðu
frá því í fyrradag að þau hygðust
skilja að borði og sæng og talið er að
meint ástarsamband hans við aðra
konu sé meginástæðan. Hefur þetta
kynt undir efasemdum um að borgar-
stjórinn verði frambjóðandi repúblik-
ana gegn Hillary Clinton forsetafrú í
þingkosningunum í nóvember.
Hálfum mánuði áður hafði Giuliani
skýrt frá því að hann væri með
krabbamein í blöðruhálskirtli á byrj-
unarstigi.
Borgarstjórinn og kona hans,
Donna Hanover, fimmtug leikkona
og fyiTverandi sjónvarpsfréttamað-
ur, hafa verið gift í sextán ár en sjald-
an komið fram saman opinberlega á
síðustu árum.
„Ég er mjög dapur og mér líður
hræðilega," sagði Giuliani á tilfinn-
ingaþiungnum blaðamannafundi á
Manhattan þegar hann skýrði frá því
að þau hjónin hefðu slitið samvistir.
„í rauninni er mér sama um stjórn-
mál á þessari stundu. Ég hugsa að-
eins um fjölskyldu mína, fólkið sem
ég ann og hvað hægt sé að gera til að
vemda það.“
Hjónin eiga tvö börn, 10 og 14 ára,
og þau eiga að dvelja hjá móður sinni
i bústað borgarstjórans, Gracie
Mansion, næstu mánuðina „af örygg-
isástæðum", að sögn Hanover.
Orðaður við
tvær konur
Hanover ræddi við blaðamenn í
borgarstjórabústaðnum skömmu eft-
ir tilkynningu Giulianis og ýjaði að
því að þau hefðu slitið samvistir
vegna meints ástarsambands hans
við tvær konur. „I nokkm- ár vai- erf-
itt að taka þátt í opinberu lífi Rudys
vegna sambands hans við eina af
starfskonum hans.“
Talið er að Hanover eigi hér við
Cristyne Lategano, 35 ára fyrrver-
andi fjölmiðlafulltrúa borgarstjórans.
Tímaritið Vanity Fair hélt því fram
fyrir tæpum þremur árum að Lateg-
ano væri ástkona borgarstjórans en
hann hefur alltaf neitað því. Hún varð
seinna forstjóri ferðaskrifstofu borg-
arinnar og gifti sig í febrúar.
Hanover grét á blaðamannafund-
inum og kvaðst hafa reynt að bjarga
hjónabandinu en það hefði ekki tek-
ist. „Frá maí á síðasta ári reyndi ég
allt sem ég gat til að koma okkur
saman á ný og samband okkar var
orðið nokkuð náið um haustið. Hann
valdi þá aðra leið.“
Þessi „önnur leið“ mun vera Judith
Nathan, 45 ára hjúkrunarkona, sem
hefur oft sést með borgarstjóranum á
veitingahúsum frá því á síðasta ári og
jafnvel við opinberar athafnir síðustu
mánuði.
Kjósendurnir láta
sér fátt um finnast
Giuliani sagði að þau Nathan væiu
„mjög góðir vinir“. „Ég reiði mig á
hana, hún hefur veitt mér mikinn
Judith Nathan, vinkona borgarstjórans.
Rudolph Giuliani, borgarstjóri New York, skýrir
frá því að hann og eiginkona hans ætli að skilja að
borði og sæng.
AP
Donna Hanover, eiginkona borgarstjórans, staðfestir sambúðarslitin.
stuðning og ég þarfnast hennar
sennilega meira nú en áður,“ sagði
borgarstjórinn.
Giuliani hefur sagt að hann sé að
íhuga hvers konar meðferð hann vilji
við krabbameininu og líklegt þykir að
hann ákveði á næstu dögum hvort
hann gefi kost á sér í baráttuna við
Hillary Clinton um sæti öldunga-
deildai-þingmanns fyrir New York-
ríki í kosningunum í haust.
Skoðanakönnun, sem gerð var á
mánudag, bendir til þess að tveir
þriðju kjósendanna í New York telji
að meint framhjáhald Giulianis hafi
ekki áhrif á kosningabaráttu hans
gefi hann kost á sér. 77% aðspurðra
sögðu að kjósendum kæmi ekki við
hvað borgarstjórinn hefðist að í
einkalífinu og kvennamál hans
myndu ekki minnka sigurlíkur hans í
kosningunum.
Giuliani, sem er 55 ára, var kjörinn
borgarstjóri New York árið 1994 og
endurkjörinn 1998. Hann hefur notið
mikilla vinsælda í borginni fyrir að
skera upp herör gegn glæpum en sú
barátta hefur þó sætt gagnrýni að
undanfornu vegna meints harðræðis
lögreglunnar.
Flestar skoðanakannanir, sem
gerðar hafa verið að undanförnu,
benda til þess að Hillary Clinton hafi
saxað á forskot Giulianis.
George Arzt, pólitískur ráðgjafi í
New York, sagði að orðrómur væri á
ki'eiki í ráðhúsinu um að borgarstjór-
inn hygðist hætta við framboð í þing-
kosningunum. Giuliani yrði að ákveða
innan tíu daga hvort hann gæfi kost á
sér til að repúblikönum gæfist tími til
að koma framboðsmálum sínum á
hreint fyrir flokksþing þeirra 30.
þessa mánaðar.
Margir forystumenn repúblikana í
New York lýstu yfir stuðningi við
Giuliani og sögðu að fréttirnar um
sambúðarslitin myndu ekki hafa áhrif
á hylli hans meðal kjósenda. Ljóst
var þó að þeir höfðu miklar áhyggjur
af því að vandamál hans í einkalífinu
yrðu til þess að hann hætti við fram-
boð eða veiktu framboð hans ef hann
ákvæði að gefa kost á sér.
Nokkrir repúblikanar efuðust um
að Giuliani væri vel til þess fallinn að
vera frambjóðandi fiokks sem hefur
lagt áherslu á hefðbundin fjölskyldu-
gildi.
Tveir repúblikanar
hugleiða framboð
Foi-ystumenn repúblikana hafa
þegar beint sjónum sínum að tveimur
mönnum sem hafa hug á að etja kappi
við Hillary Clinton ef Giuliani hættir
við framboð.
Annai- þeirra er Rick A, Lazio, full-
trúadeildarþingmaður frá Long Is-
land, sem ræddi hugsanlegt framboð
sitt við formann repúblikanaflokks-
ins í New York í fyrrakvöld. Hinn er
Theodore F. Forstmann, auðugur
fjárfestir á Wall Street, sem hefur
stofnað sjóð til að gera fátækum
börnum kleift að ganga í einkaskóla.
Hvorugur þeirra ætlar að gefa.kost á
sér ef Giuliani ákveður að hætta ekki
við framboðið.
10.000 bjargað
úr klóm mann-
ræningja
Peking. AFP.
KÍNVERSKA lögreglan hefur á
undanförnum vikum bjargað
10.000 konum og börnum sem rænt
hafði verið, að því er eitt hinna rík-
isreknu dagblaða greindi frá, en
staðið hefur verið fyrir herferð í
landinu öllu til að bjarga fólki úr
ánauð.
Liu Hairong, formaður vinnu-
nefndar um konur og börn, sagði
herferð ríkisins hafa hafist í byrjun
aprilmánaðar og hefði sérstök „ör-
yggisnefnd almennings“ haft yfir-
umsjón með leit víðsvegar um
landið.
Hann neitaði að veita nánari
upplýsingar um málið, en að sögn
dagblaðsins Sing Tao, sem gefið er
út í Hong Kong, er heildsölumark-
aður með ungabörn meðal þeirrar
starfsemi sem herferðin leiddi í
ljós. Grunur hefði vaknað vegna
skyndilegra auðæfa Niu Xiangni,
ekkju á miðjum aldri sem býr í
Henan héraðinu í mið-Kína, og
hefði hún í kjölfarið verið handtek-
in og ákærð fyrir sölu 110 ung-
barna.
Frá því herferð yfirvalda hófst
hafa reglulega birst sögur í kín-
verskum fjölmiðlum af börnum
sem hefur verið rænt og konum
sem neyddar hafa verið til að
stunda vændi. Samkvæmt opinber-
um tölum yfirvalda hefur 7.600
konum og 1.814 börnum verið rænt
á síðasta ári, sem telst 11,4% aukn-
ing frá árinu áður og er gangverð á
dreng eða stúlku almennt um 8.000
kr.
Lögregla telur þó líklegt að her-
ferðin muni leiða í ljós að mannrán
séu ennþá algengari. Margir þeirra
sem verði fyrir barðinu á mann-
ræningjum séu nefnilega í hópi 150
milljón farandverkamanna sem
ferðist um landið í leit að vinnu.
Þetta fólk hiki gjarnan við að leita
til lögreglu, sérstaklega ef kín-
versk fjölskyldulöggjöf hafi ekki
veitt leyfi fyrir getnaði barnsins.
NÝJA BÍLAHÖLLIN
Funahöfða 1,
www.notadirbilar.is
8 þ. km.
g„ 38" dekk. breynur fyrir 44" o.fl.
OMW 32SM, árg.08, ek. 1Z5 (|. km, ssk„ grænn,
vindskeii, álfelgur, græjur o.ll. Verð 790 |)ós.. gullmoli.