Morgunblaðið - 25.09.1998, Side 18
18 FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
HEIMILISFÓLK í Brekkugerði og á Droplaugarstöðum stöð við færiband kartöfluupptökuvélarinnar og tíndi burt rusl og staka steina er slæddust
upp á færibandið. Talið frá vinstri Agnes Helgadóttir bóndi á Droplaugarstöðum, Jóhann F. Þórhallsson bóndi í Brekkugerði, Þórhallur Jóhannsson
sonur hans, og Sigrún Ólafsdóttir bóndi í Brekkugerði og móðir Þórhalls.
Morgunblaðið/KVM
FRÁ uppsetningu
ljósakrónunnar.
Grundarfjarðar-
kirkja
Gullljósa-
krónan
komin
upp
Grundarfirði - Búið erað setja
upp gullljósakrónuna sem Þor-
kell Sigurðsson gaf Grundar-
fjarðarkirkju í minningargjöf á
dögunum. Guðni Hallgrímsson
rafvirkjameistari annaðist
verkið en honum til aðstoðar
var skipstjórinn og sóknar-
nefndaiTnaðurinn Runólfur
Guðmundsson.
I messu á sunnudeginum 27.
september kl. 14 mun hr. Sig-
urður Sigurðarson vígslubisk-
up predika og helga ljósakrón-
una í messu þar sem sr Karl V.
Matthíasson mun þjóna fyrir
altari.
Erfiðleikar í rekstri
Djúpbátsins á Isafirði
ísafirði -Kristinn Jón Jónsson, fyrrv.
bæjarfulltrúi og bæjarstjóri í Isa-
fjarðarbæ, var kjörinn formaður
stjómar Hf. Djúpbátsins í stað Eng-
ilberts Ingvarssonar á aðalfundi fé-
lagsins í síðustu viku. Auk' Engil-
berts gekk Björgvin A. Björgvinsson
úr aðalstjórn og var Eiríkur Kristó-
fersson kosinn í hans stað. Reynir
Ingason, sem verið hefur fram-
kvæmdastjóri félagsins um nokkurt
skeið, hefur sagt starfi sínu lausu.
Framtíð félagsins er í óviss.
Rekstur Hf. Djúpbátsins hefur um
árabil verið erfiður, þrátt fyrir mikla
ríkisstyrki í einu eða öðru formi.
Rekstrargjöld félagsins á síðasta ári
voru 57,6 milljónir króna en rekstr-
artekjur 30 milljónir. Tap á reglu-
legri starfsemi var því 27,6 milljónir
króna. Ríkisstyrkir á síðasta ári
námu 16,2 milljónum og rekstrartap
eftir styrki var því 11,4 milljónir.
Nýkjörin stjóm mun þegar í þess-
ari viku hefjast handa við að fara ná-
kvæmlega yfir rekstrargrundvöll
skipsins og leita leiða til þess að
komast fram úr fjárhagsvanda fé-
lagsins. „Það er ekki grundvöllur
fyrh- rekstrinum í því formi sem ver-
ið hefur,“ sagði Kristinn Jón. „Vem-
legar breytingar verða að koma til ef
hann á að geta gengið. Vandinn er sá
að finna rekstrargrundvöll fyrir
skipið og nýjar leiðir til tekjuöflun-
ar.“
Auk þeirra Kristins Jóns Jónsson-
ar og Eiríks Kristóferssonar sem nú
komu nýir í stjórn Hf. Djúpbátsins
eiga þar sæti þeir Jónas Ólafsson,
Hinrik Rristjánsson og Halldór Ant-
onsson.
Kartöfluupp-
skera þokkaleg
Vaðbrekka, Jökuldal - Bændur í
Brekkugerði og á Droplaugar-
stöðum í Fljótsdal eru um þessar
mundir að taka upp kartöflur.
Bændur á þessum tveimur bæj-
um hafa samstarf um að taka
uppúr görðum sínum og voru að
enda við að taka uppúr görðun-
um í Brekkugerði, síðan átti að
halda áfram úti á Droplaugar-
stöðum.
Að sögn Sigrúnar Ólafsdóttir í
Brekkugerði er uppskeran held-
ur lakari en á síðasta ári, þó er
hún betri en Sigrún bjóst við
vegna þess að kaldara var í sum-
ar en undanfarin sumur og
sprettutíð ekki eins góð þar af
leiðandi.
Morgunblaðið/Atli Vigfusson
Eldri borgarar á
faraldsfæti
Laxamýri - Félagsstarf eldri
borgara í Þingeyjarsýslu hefur
aukist mikið á undanfórnum ár-
um og er það einkum eftir að
dvalarheimilið Hvammur á Húsa-
vík tók til starfa.
Fyrir utan kórstarf, dans og
fóndur er farið í ferðalög, bæði
dagsferðir sem og lengra, og er
eldra fólk duglegt að drífa sig
með og taka þátt í því sem er að
gerast. Um helgina fóru eldri
borgarar á Húsavík og Akureyri í
rútur og heimsóttu Laxárdal og
síðan lá leiðin í Mývatnssveit, þar
sem drukkið var miðdagskaffi.
A myndinni má sjá góða félaga
frá Húsavík, þá Kjartan Jóhann-
esson t.v. og Guðmund G. Hall-
dórsson, sem létu vel af sér í blíð-
viðrinu við kirkjuna á Þverá í
Laxárdal.
Kynningarfundur Landsbankans haldinn í Stykkishólmi
Aukin
samkeppni
um spariféð
Stykkishólmi - Forráðmenn Lands-
banka íslands voru á yfirreið um
Vesturland og héldu kynningarfund í
Stykkishólmi í vikunni. Þangað var
boðið forsvarsmönnum fyrirtækja^á
Snæfellsnesi. .
Birgir Jónsson, svæðisstjfe:
Landsbankans á Vesturlandi, sagði
frá að sitt svæði næði frá Akranesi
að Barðaströnd. Landsbankinn er
með útibú flestum þéttbýlisstöðum á
Vesturlandi. Markaðshlutdeild úti-
búanna á Snæfellsnesi hefur aukist
mikið á síðustu árum og hefur tvö-
faldast á Hellissandi og Olafsvík. Út-
lán Landsbankans á Vesturlandi
voru á síðasta ári 4,1 milljarður sem
er 37% markaðshlutdeild og innlán
voru 3,1 milljarður.
Halldór J. Kristjánsson banka-
stjóri fór yfii- þróun í bankastarfsemi
í Evrópu og hér á landi. Bönkum
hefur fækkað mikið í Evrópu eða um
35% á tímabilinu 1980-1995, að hans
sögn. Einingamar hafi orðið stærri
og hafi m.a. á þann hátt verið náð
fram hagræðingu í rekstri. Það sama
muni gerast hér á landi og sú gerjun
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
FORSVARSMENN Landsbankans heimsóttu Stykkishólm, litu inn hjá
fyrirtækjum og héldu kynningarfund, þar sem framtíðaráætlanir bank-
ans voru kynntar. Á myndinni er Halldór Kristjánsson bankastjóri með
sínu fólki fyrir framan Tang og Riis, skrifstofu Sigurðar Ágústssonar.
sé þegar hafin. Það sé nauðsynlegt
að ná niður rekstrarkostnaði bank-
anna, það sé ein mikilvægasta leiðin
til að gera þá samkeppnihæfari í
þeirri miklu samkeppni sem er orðin
um lánastarfsemi. Með því að koma
ríkisbönkunum á hlutafjármarkað
skapist miklir möguleikar til hag-
ræðingar.
Halldór sagði að Landbankinn
mundi nýta eigið fé betur, en nú er
gert. Lögð verður áhersla á að
styrkja útibúin, þau verða sérhæfari,
boðleiðir styttri og aukinn af-
greiðsluhraði. I framhaldi af þessari
stefnu sagði Halldór að áhugi væri
hjá Landsbankanum að setja upp
útibú í Stykkishólmi og Borgarnesi,
sem eru þeir þéttbýliskjarnar á
Vesturlandi þar sem bankinn hefur
ekki afgreiðslu í dag og auka en sína
markaðshlutdeilda á Vesturlandi.
Akvörðun um slíkt verður tekin á
næsta ári.