Morgunblaðið - 27.01.1996, Side 36
36 LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
••
Oryg'gistrúnaðarmenn
FBM á námskeiði
NÁMSKEIÐ fyrir öryggistrúnað-
armenn, öryggisverði og stjórn-
endur fyrirtækja í prentiðnaði var
haldið hjá Vinnueftirliti ríkisins
dagana 22. og 23. janúar sl., seg-
ir í fréttatilkynningur frá Félagi
bókagerðarmanna. Þátttakendur
voru um 25 talsins.
Öryggisnefnd prentiðnaðarins
og Vinnueftirlit ríkisins stóðu að
námskeiðinu en öryggisnefndin er
ein af fáum starfandi sérgreina-
nefndum sem byggir starfsemi sína
á lögum um aðbúnað, hollustu-
hætti og öryggi á vinnustöðum.
Félag bókagerðarmanna og Sam-
tök iðnaðarins eiga sína tvo fulltrúa
hvort í stjóm nefndarinnar. Mörg
ný mál vom tekin fyrir svo sem
augnvemd og vandamál sem koma
upp í sambandi við tölvuvinnslu,
en nýjar reglur gengu í gildi nýlega
um það efni. Göran Söderlund frá
Grafiska Fackförbundet í Svíþjóð
kynnti vinnuvemd þar og skipulag
hennar á vinnustöðum. Ragnar
Jóhannsson efnafræðingur hjá Iðn-
tæknistofnun kynnti nýja tækni í
hreinsun prentvéla. Verkefni þetta
heitir Subsprint og er rekið með
fé frá Evrópusambandinu. Þá var
íjallað um. mörg fleiri efni, t.d.
vellíðan og heilsuvemd á vinnu-
stöðum, hávaða, merkingu og með-
Morgunblaðið/Sverrir
ÞÓRÐUR Sverrisson augnlæknir, einn fyrirlesara á námskeiðinu, flytur erindi sitt.
ferð varasamra efna, vinnuslys, Morgunblaðið og skoðaði vinnu- verndarmálum hafa verið teknar
förgun spilliefna o.fl. stað félaga sinna þar en ýmsar þar í notkun, t.d. í meðferð leysi-
Að lokum heimsótti hópurinn nýjungar í umhverfis- og vinnu- efna og í förgun spilliefna.
W* ÆI.M* Al /m/ 1^2: A D
Fiskvinnsla
Starfsfólk óskast í snyrtingu og pökkun hjá
fiskiðjunni Freyju, Suðureyri.
Upplýsingar í síma 456 6105.
Flugmenn
Óskum eftir að ráða flugmenn til starfa
sem fyrst.
Umsækjendur þurfa að hafa:
- Atvinnuflugmannsskírteini.
- Blindflugsáritun fyrir tveggja hreyfla
flugvélar.
- A.m.k. 2.500 flugstundir.
- Flugstjóraskírteini eða uppfylla til þess
öll skilyrði.
Skriflegar umsóknir berist félaginu eigi
síðar en 5. febrúar nk.
Flugfélag Norðurlands hf.,
pósthólf400,
602 Akureyri.
Varnarliðið
- laust starf
Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli óskar að ráða
lærðan kjötiðnaðarmann til starfa hjá
Matvöruverslun varnarliðsins.
Mjög góð enskukunnátta nauðsynleg.
Vinnutími: Þriðjudaga til laugardaga
kl. 08.00-17.00.
Starfið er ótímabundið.
Umsóknir berist til ráðningardeildar Varnar-
málaskrifstofu, Brekkustíg 39, Njarðvík, sími
421-1973, eigi síðar en 9. febrúar 1996.
Starfslýsing liggur þar frammi til aflestrar
fyrir umsækjendur og er þeim bent á að lesa
hana áður en sótt er um.
Umsóknareyðublöð fást einnig á sama stað.
Garðbæingar
Munið viðtalstíma baejarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í dag, laugardag-
inn 27. janúar, kl. 10.30-11.30 í Sjálfstæðishúsinu, Lyngási 12.
Stjórn sjálfstæðisfélagsins.
Uppboð
á bifreiðum verður haldið í dag, láugardaginn
27. janúar 1996, á Eldshöfða 4, athafna-
svæði Vöku hf., og hefst það kl. 13.30.
Sýslumaðurinn í Reykjavík.
Leiðbeiningar
við framtalsgerð
Verkakvennafélagið Framsókn gefurfélögum
sínum kost á leiðbeiningum við gerð skatt-
framtala með sama hætti og undanfarin ár.
Þeir, sem hug hafa á þjónustu þessari, eru
beðnir um að hafa samband við skrifstofu
Framsóknar og láta skrá sig til viðtals eigi
síðar en 2. febrúar 1996.
Ekki er unnt að taka við viðtalsbeiðnum eftir
þann tíma.
Verkakvennafélagið Framsókn,
Skipholti 50A,
símar 568 8930 og 568 8931.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum i Bolungarvík verður háð
á þeim sjálfum sem hér segir:
Hreggnasi, norðurendi, e.h., þingl. eig. Guðbjartur Kristjánsson,
gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins og Sparisjóður Bolungar-
víkur, miðvikudaginn 31. janúar 1996 kl. 13.30.
Skólastígur 20, þingl. eig. Stefán Ingólfsson, gerðarbeiðendur Bygg-
ingarsjóður ríkisins og sýslumaðurinn í Bolungarvík, miðvikudaginn
31. janúar 1996 kl. 13.50.
Sýslumaðurínn í Bolungarvík,
26. janúar 1996.
Jónas Guðmundsson, sýslum.
Allsherjar-
atkvæðagreiðsla
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjar-
atkvæðagreiðslu við kjör stjórnar og í önnur
trúnaðarstörf félagsins fyrir árið 1996, og
er hér með auglýst eftir tillögum um félags-
menn í þessi störf.
Frestur til að skila listum er til kl. 12.00 á
hádegi föstudaginn 2. febrúar 1996.
Hverjum lista þarf að fylgja meðmæli 100
fullgildra félagsmanna.
Listum ber að skila á skrifstofu félagsins
í Skipholti 50A.
Verkakvennafélagið Framsókn,
Skipholti 50A,
símar 568 8930 og 568 8931.
Sænsk-íslenski
samstarfssjóðurinn
Markmið sjóðsins er að efla sænsk-íslenska
samvinnu og menningarsamskipti og stuðla
að upplýsingamiðlun um þjóðfélagsmál og
menningarlíf í Svíþjóð og á íslandi. I því skyni
veitirsjóðurinn einstaklingum, félagasamtök-
um og stofnunum styrki til verkefna, einkum
á sviði menningar-, vísinda- og menntamála.
Umsóknarfrestur um styrki úr sjóðnum á
árinu 1996 er til 28. febrúar 1996. Áritun á
íslandi er: Menntamálaráðuneytið, Sölvhóls-
götu 4, 150 Reykjavík. Sérstök umsóknar-
eyðublöð fást þar og hjá Norræna félaginu,
Norræna húsinu, 101 Reykjavík.
Stjórn sænsk-íslenska
samstarfssjóðsins.
SHACI auglýsingor
Klukku- og úraviðgerðir
Hermann Jónsson,
úrsmiðirsíðan 1891,
Ingólfstorgi, sími551 3014.
Aðventkirkjan í Reykjavík,
Ingólfsstræti 19.
Laugard. kl. 9.45 biblíuleshópar.
Efni ársfjórðungsins:
Að rannsaka ritningarnar.
Kl. 11.00 almenn guðþjónusta.
Ræðumaður: Einar V. Arason.
Allir velkomnir.
FERÐAfÉLAG
# ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533
Ferðafélag íslands
Esjuhlíðar
Sunnudaginn 28. janúar verður
gengið um Esjuhlíöar. Ekið að
Mógilsá og gengin hringferð um
göngustíga í Esjuhlíðum. Brott-
för er kl. 11.00 frá Umferðarmið-
stöðinni og Mörkinni 6 og til
baka verður komið um kl. 15.00.
Þægileg gönguleið fyrir fólk á
öllum aldri. Verð kr. 800.
Frítt fyrir börn.
Ferðafélag íslands.
Skyggnilýsingarfundur
Þórhallur Guðmundsson, miðill,
og Inga Magnúsdóttir halda
skyggnilýsingarfund og Tarot-
lestur þriðjudaginn 30. janúar
kl. 20.30 í Akoges-salnum, Sig-
túni 3. Húsið opnað kl. 19.30.
Allir velkomnir.
Miðar seldir við innganginn.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.30 vegna sameiginlegrar
bænaviku kristinna safnaða.
Ræðumaður sr. Magnús Björns-
son frá Kristilegu félagi heilbrigð-
isstétta. Kaffiveitingar í lok sam-
komunnar í neðri sal kirkjunnar.
Allir hjartanlega velkomnir.
Dagskrá vikunnar framundan:
Sunnudagur: Almenn samkoma
kl. 16.30.
Ræðumaður Hafliði Kristinsson.
Miðvlkudagur: Lofgjörð, bæn
og biblíulestur kl. 20.00.
Föstudagur: Krakkaklúbbur kl.
17.30. Skrefið ki. 19.00.
Unglingasamkoma kl. 20.30.
Skíðadeild Víkings
Félagsfundur verður mánudag-
inn 29. janúar kl. 20.
Rætt verður um vetrarstarfið.
Nýir félagar velkomnir.
Dalvegi 24, Kópavogi
Vitnisburðarsamkoma í dag kl.
14.00. Allir hjartanlega velkomnir.