Morgunblaðið - 27.01.1996, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 1996 23
EKKI EINSAMALL - Pálma fylgja tlmm
manneskjur, þeirra á meðal stærsti indjáni
sem miðillitm hefur séð. Er Pálmi nokkuð
hugsi yftr því, og segir síðan: „Einkennilegt
Jóhann Sigurðarson lék, stóran indjána í
Gaukshreiðrinu, vin minn Bromden.“
Morgunblaðið/Kristinn
klípa utan af því,“ skýtur miðillinn
inn í og hlær.
„Hann á eftir að geta náð mjög
langt ef hann bara ákveður sjálfur
að þjóna þessum frumum eins og
þær hafa þjónað sál hans, huga og
tilfmningum oft við .slæmar aðstæð-
ur. (Pálmi hlær við og þykist vita
upp á sig skömmina. „Get ég ekki
bara fengið að hitta Magnús?“ spyr
hann síðan í gamni.) „Þú ert búinn
að því,“ svarar hún.
„Við ætlum aðeins að segja hon-
um að ef hann bara lærir að hræðast
aldrei snilld sína en lærir að taka á
henni með enn meiri krafti mun
hann geta haldið bæði sjálfum sér
ungum fram á endadægur og geta
gefíð þjóðinni ómælda ánægju."
„Fattarðu hvað hann er að segja
þér?“ spyr miðillinn. Pálmi virðist
vita hvað hann er að fara. „Þetta eru
mjúkar umbúðir en hann vill meina
að þú sért pínulítið hræddur og ráð-
leggur þér að halda aftur af ótt-
anum. Þeir biðja þig um að láta
angistina í hjartanu ekki komast að.
Þetta er auðvitað hægara sagt en
gert en þeir segja að angist og
hræðsla séu félagar sem við eigum
að afneita til að létta á huga og
hjarta.“
„A þetta við yfírleitt," spyr Pálmi.
„Já,“ segir hún „en einkanlega
um leikhæfileikana og þessi hræðsla
er það sem þú átt að takast á við.“
„Eg held ég skilji alveg hvað hann
er að meina,“ segir Pálmi þá.
MaBur sami/innu
Og Magnús heldur áfram: „Hann
þarf líka að gera sér ljóst að hæfí-
leiki hans í samvinnu er ofar flestum
og hann á að njóta þess afar vel að
geta alltaf samstillt ólíkan hóp þeg-
ar á móti blæs.
Nú er það maturinn. Hann þarf
að fá í þrjá mánuði afar fast fæði en
eftir það má hann slaka á ef hann
finnur að hann ræður vel yið það en
hann mun fljótt finna mun á krafti
ef hann fær fæðu sem ekki truflar
jafnvægi líkamans."
Miðillinn lýsir í smáatriðum á
hverju Pálmi á að nærast næstu
þrjá mánuði, treysti hann sér til. í
morgunsárið má hann fá sér heitan
næringardrykk með þrúgusykri og
fjórar möndlur. (Pálmi veltir þeim
nokkuð fyrir sér.)
Á hádegi á hann að leggja sér til
munns kjötseyði með miklu græn-
meti, dýfa í það heilhveitibrauði eða
hvítu, og má einnig bæta út i tún-
físki og sardínum. Honum leyfíst
ekki smurt brauð, eða með áleggi.
(Litlar undirtektir.)
Upp hefjast umræður um
fiskmetið og miðillinn greinir frá því
að í fyrstu hafi verið gantast með
sai-dínurnar í hennar hópi. „Hverri
einustu konu á breytingaskeiðinu
sem hingað kom var uppálagt að
borða sardínur árið um kring og við
gerðum mikið grín að þessu, þangað
til ég las grein í MS-blaðinu um
hvað þær veita mikla vörn gegn
beinþynningu. Túnfiskur kemur
einnig í veg fyrir sjúkdóma og er
alveg óskaplega góður fiskur. Hið
sama er ekki hægt að segja um
ýsuna.“
„Er það ekki?“ spyr Pálmi undr-
andi.
„Nei,“ segir miðillinn, „það er svo
erfitt að brjóta hana niður. Sjáðu öll
börnin sem eru með ofnæmi fyrir
fiski. Þorskurinn er helmingi betri.“
Bara hartöflurís*
„Þarf ég nokkuð að hætta að taka
lýsið mitt á morgnana?“ spyr Pálmi
skyndilega.
„Við sjáum til,“ segir hún.
Magnús heldur áfram: „Hann má
fá alla ávexti og eru sveskjur og
apríkósur mjög góð fæða fyrir alla.
Hann á að fá í miðdegiskaffi afar
heitan drykk sem .má vera kaffi.
(Pálma er sjáanlega létt.) Hann má
fá eina stóra könnu af gæðakaffi.
Hann á að fá líka einhverja köku-
sneið eða kex sem er sætt en bara í
litlu magni. Brauð má það vera líka
með sultu á eða einhverju sætu.“
Miðillinn spyr hvort hann hafi
orðið var við slen um kaffileytið.
„Já, seinnipart dags,“ segir hann
til samþykkis.
„Hann á að fá í kvöldmat eins
mikið af kartöfluréttum og mögu-
legt er ásamt soðnu grænmeti en
hrátt kálmeti má hann ekki
smakka."
„Þýðir þetta þá að ég eigi bara að
borða kartöflur?“ spyr Pálmi,
nokkuð áhyggjufullur.
„Hann á að fá afar mikið af fiski
en sleppa ýsu. Lax er honum
dásamleg fæða, rækjur og þorskur.
Hann þarf helst að sleppa kjötmeti í
þrjá mánuði... „ „Jahá,“ segir
Pálmi, verður hugsi nokkra stund
en bætir síðan við í merkjanlegri
örvæntingu „Hvað með þorrann?
„AJla ávexti má hann fá og þarf á
þeim að halda til að örva starfsemi
til heilans því hann er orðinn afar
þreyttur og má aldrei svelta.“
„Þetta er mjög athyglisvert með
þreytuna, ég hélt bara satt að segja
að ég væri orðinn svona mikill
vælukjói,“ segir Pálmi þá.
„Já,“ segh- miðillinn „ætli þú hafir
ekki verið sendur hingað af þeirri
ástæðu."
„Hann þarf að stunda böð alla
ævi, helst tvisvar á dag, og láta
renna vel á höfuð, herðar, bak,
brjóstkassa og maga. Þetta gæti
hjálpað við blóðrás hans sem er ekki
vel fjörug.“
„Hann er alveg ferlegur," skellir
miðillinn upp úr. („Ekki fjörug,“
endurtekur Pálmi með sjálfum sér.)
„Þetta gæti hjálpað honum meira
en orð fá lýst. Hann þarf að stunda
göngur alla ævi og hafa alltaf
súrefni mikið í vistarverum sínum
þegar mögulegt er,“ les miðillinn.
„En hvernig er það, fæ ég að eiga
það sem þú skrifar, þetta er svo
mikið?“ spyr Pálmi vongóður.
„Eg bið Guð um að blessa þennan
unga mann og hjálpa honum til að
endurvekja þann mikla kraft sem
líkami hans bjó yfir. Við biðjum Guð
um að blessa alla hans ættingja, vini
og samstai'fsmenn því í hans tilfelli
eru það samstarfsmenn sem ráða
miklu um lífsafkomu hans.
Hann er gæfumaður í einkalífi
sínu, þó að hann þurfi að taka þar
stundum á, eins og allir jarðarbúar
en Guðsgjafir hans eru ómælanleg-
ar. Ykkai- vinur Magnús, ásamt
indjánanum sem vill láta kalla sig
Sterka vininn. Hinir eru hér líka og
þakka fyrir þessa yndislegu stund.“
„Já, það er svo skrýtið," segir
Pálmi loks, „þótt mér finnist ég hafa
þurft að þola sitt af hverju, eins og
flestum væntanlega, hef ég það
samt á tilfinningunni að gæfan fylgi
mér.“
S j ávarútvegsr annsóknir
Landbúnaðar- og fiskveiðiáætlun ESB
Kynningarfundur á vegum Kynningarmiðstöðvar
Evrópurannsókna verður haldinn mánudaginn
29. janúar í Borgartúni 6 kl. 15.30.
Landbúnaðár- og fiskveiðiáætlun ESB er hluti af 4. ramma-
áætluninni urn rannsóknir, þróun og nýsköpun. Samkvæmt
EES-samningnum eiga íslenskir aðilar fullan aðgang að
sjóðum áætlunarinnar.
A fundinum gefst áhugasömum aðilum tækifæri til að kynnast
því hvaða áherslur ESB hefur á rannsóknum á sviði fiskveiða,
fiskeldis og fiskvinnslu og hvaða tækifæri íslendingar hafa til
samstarfs innan 4. rammaáætlunar ESB um rannsóknir á þessu
sviði.
Dagskrá:
15.30 Hr. Willem Brugge, fulltrúi Evrópusambandsins.
Kynning á rannsóknar- og þróunaráætlun ESB á
sviði fiskveiða, fiskeldis og tengsl þeirra við
fiskveiðistefnu bandalagsins.
16.30 Dr. Ólafur Ástþórsson, Haf rannsóknastofnun.
Yfirlit yfir alþjóðleg rannsóknarverkefni innan
Hafrannsóknastofnunar, m.a. evrópsk
samstarfsverkefni.
17.00 Umræður og fyrirspurnir.
Fundarstjóri: Vilhjálmur Lúðvíksson, framkvæmdastjóri Rannsóknarráðs íslands.
Hjartanlega þakka ég öllum, sem glöddu mig
meÖ heimsóknum, gjöfum og hlýjum kveÖjum
á 80 ára afmœli mínu.
Guð blessi ykkur öll.
Valborg V. Emilsdóttir.
Gunnar Bernhard hf., Vatnagörðum 24, Reykjavik, simi 568 9900
LJppiýsingar um Honda Civic 5 dyra '96!
kpaftmikill 90 hestafla léttmálmsvél
1 B venta og bein innspnautun
hnaöatengt vökva- og veltistýri
biófavönn
nafdnifnan núöun og speglan
viöaninnnétting í maelabonöi
1 4 tommu dekkjastsenð
■ útvanp og kassettuteeki
■ stynktanbitan í hunöum
■ sénstaklega hljóöeinangraður
■ fáenlegun sjálfskiptun
■ samlæsing é hunðum
— spontsæti
— núðuþunnka fynin aftunnúðu
— fnamhjóladnifin
— 4na hnaða miðstöð
með inntaksloka
— hæðanstillanlegun
fnamljósageisli
— stafnaen klukka
— bnemsuljós ( aftunnúðu
— eyðsla 5,B I á 90 km/klst.
— 4,31 metri á lengd
— nyðvönn og sknáning innifalir,
- boðar nýja tima -