Morgunblaðið - 27.01.1996, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 1996 33
BERGSTEINN
KRISTJÓNSSON
+ Bergsteinn
Kristjónsson
fæddist að Minna
Mosfelli, Grímsnesi,
22. mars 1907. Hann
andaðist á Ljós-
heimum, Selfossi,
20. janúar síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru: Kristjón Ás-
mundsson frá Neðra
Apavatni og Sigríð-
ur Bergsteinsdóttir
frá Torfastöðum,
Fljótshlíð. Þau
bjuggu í Útey í
Laugardal. Systkini
Bergsteins: Guðmundur, f. 22.
apríl 1906, d. 11 maí 1914. Kris-
Ijón, f. 8. okt. 1908, d. 8. jan.
1984. Baldur, f. 29. des 1909,
Guðmunda Sigrún, f. 18. feb.
1914. Axel, f. 26. feb. 1919.
Bergsteinn var tvíkvæntur,
fyrri kona hans var Anna Jóns-
dóttir, þau skildu,barnlaus. 1.
júní 1940 giftist Bergsteinn
seinni konu sinni Sigrúnu Guð-
mundsdóttur, f.8. feb. 1915,
dóttur Guðmundar Ara Gísla-
sonar og Sigríðar Helgu Gísla-
dóttur. Börn þeirra: 1. Sigríður
Bergsteinsdóttir, f. 12. apríl
1941, röntgentæknir, eiginmað-
ur Einar Elíasson, f. 20. júlí
1935, þau skildu, börn þeirra,
Bergsteinn f. 16. sept. 1960,
kvæntur Hafdísi J. Kristjáns-
dóttur f. 17. apríl 1959, þau eiga
3 börn, Guðfinna Elín, f. 14.
mars 1963, gift Einari Jónssyni
f. 28. jan. 1958, þau eiga 3 börn,
Örn, f. 16 feb. 1966, sambýlis-
kona Steinunn Sigurðardóttir,
Örn á einn son. Sigrún Helga,
f. 25. maí 1970, sambýlismaður
Sverrir Einarsson f. 3 mars
1967, þau eiga 1 barn. Sambýlis-
maður Sigríðar er Björn Jakobs-
son, f. 28. júlí 1946. 2. Hörður
Bergsteinsson, f. 4 okt. 1942,
læknir, eiginkona Elín Bac-
hmann Haraldsd., f. 18. okt.
1942, börn þeirra, Arna Harðar-
dóttir f. 1. júní 1966,
gift Hafsteini Sigm-
arssyni, f. 20. feb.
1967, þau eiga eitt
barn. Bergsteinn
Harðarson, f. 11.
nóv. 1970. Kona
hans erMargrét, f.
14. ágúst 1975. 3.
Kristín Bergsteins-
f.l. mars
1945, líffræðingur,
eiginmaður Hilmar
Eysteinsson, f. 26.
des. 1942, þau
skildu, sonur þeirra
Eysteinn Hilmars-
son, f.2 feb. 1967, sambýliskona
Susann Dagestad, f. 24. maí
1966, þau eiga 2 börn 4. Áslaug
Bergsteinsdóttir, f. 6. júlí 1948,
tónlistarkennari, sonur hennar
Sigursteinn R. Másson, f. 11.
ágúst 1967. 5. Ari Bergsteins-
son, f.6. sept 1950, sálfræðing-
ur, eiginkona Sigrún Skúladótt-
ir, f.20 maí 1949, þeirra börn,
Agnar Öm, f. 29. mars 1967,
sambýliskona Guðrún Óskars-
dóttir, f. 16. júní 1972, Berg-
steinn, f. 16. feb. 1975, Skúli, f.
4. ágúst 1977. Áður átti Berg-
steinn son, Hauk, f. 5. maí 1936.
Bergsteinn stundaði nám í Flens-
borgarskóla og tók þaðan gagn-
fræðapróf 1926, eitt ár, 1929-30
var hann í Ruskin College í Ox-
ford, kennarapróf 1931. Hann
var kennari við Héraðsskólann á
Laugarvatni frá 1931 til 1970,
stundakennari við Menntaskól-
ann að Laugarvatni í nokkur ár,
farkennari í Laugardal 1926-27.
Að auki var hann bókhaldari
fyrir skólana báða um áratuga
skeið. Oddviti Laugardalshrepps
var hann í tuttugu og fjögur ár.
Hann var hótelsljóri Sumarhót-
els Héraðsskólans 1937-45 og
1962-74.
Útför Bergsteins fer fram frá
Selfosskirkju í dag og hefst at-
höfnin kl. 13.30. Jarðsett verður
að Laugarvatni.
TENGDAFAÐIR minn, vinur og
yndislegur afi barnanna okkar, er
horfinn yfír móðuna miklu.
Hann lést á hjúkrunarheimilinu
Ljósheimum á Selfossi 20. janúar.
Þar dvaldi hann í tæpt ár í góðri
umönnun og í návist Sigrúnar konu
sinnar sem er orðin heilsutæp.
Ég kynntist Bergsteini fyrst fyrir
rúmum þijátíu árum þegar ég kom
með Hadda inná heimili hans Ey á
Laugarvatni.
Ég minnist Bergsteins sem
trausts og hlýs heimilisföður. Hann
var mikil barnagæla og sóttist eft-
ir því að fá að sinna börnunum
okkar sem ungabörnum, helst að
fá að skipta á þeim og gefa þeim
að borða. Þegar þau urðu eldri
spilaði hann gjarnan fyrir þau á
píanóið. Það var ekki svo sjaldan
sem við fórum á Laugarvatn í fríum
okkar, hvort sem það var um jól,
áramót eða á sumrin. Stundum
dvaldi ég með börnin langtímum
saman og naut lífsins, gufunnar,
skógarins og návistar tengdafor-
eldra minna.
Bergsteinn var mikill tónlistar-
unnandi. Hann var með eindæmum
vinnusamur, hvarf inná skrifstofuna
sína snemma morguns og vann oft-
ast fram á nótt. Hann var'af þeirri
kynslóð sem barðist fyrir því að
koma börnum sínum til mennta.
Heimili þeirra hjóna hafði yfir sér
sérstaklega friðsamlegan blæ. Þar
var oft margt um manninn og mik-
ið spjallað. Garðurinn var yndi bæði
Sigrúnar og Bergsteins, enda und-
urfagur og aspirnar stolt Berg-
steins.
Að leiðarlokum þakka ég dýr-
mæta og ógleymanlega samveru síð-
ustu þijátíu árin, elsku Bergsteinn,
og þátt þinn í að móta líf mitt og
minnar fjölskyldu. Ég mun sakna
þín.
Elín Bachmann
Haraldsdóttir.
Ef unnt er að segja um einhvern
að hann hafi helgað Laugarvatni
krafta síná, heila og óskipta, þá var
Bergsteinn Kristjónsson slíkur mað-
ur. Ætt hans og uppruni var héðan
úr Laugardal og Grímsnesi; hann
ólst upp í Útey, handan vatnsins,
og átti hér afar sterkar rætur; það
duldist engum sem heyrði hann rifja
upp atburði og lýsa mannlífi á þess-
um slóðum á fyrri hluta aldarinnar.
Hann aflaði sér kennaramenntunar
bæði í Flensborgarskóla og Kenn-
araskólanum og var auk þess við
nám í Oxford á Englandi veturinn
1929-30. Hálfþrítugur, árið 1932,
settist hann svo að á Laugarvatni
og starfaði hér upp frá því bæði
vetur og sumar, við kennslu, bú-
störf, bókhalds- og gjaldkerastörf,
hótelstjóm, að ógleymdri sveitar-
stjórn og oddvitastarfí áratugum
saman, féll nánast aldrei verk úr
hendi og gerði ekki víðreist. Síst
verður þó sagt að hann hafi átt sér
þröngan sjónhring; allt tal hans um
menn og málefni bar vitni um fjöl-
þætta menntun og víðsýni. Hann
unni sígildri tónlist og lék sjálfur á
hljóðfæri. Hann var mjög vel lesinn
í sígildum bókmenntum og gat haft
á hraðbergi tilvitnanir í ljóð og skáld-
sögur. í kennarastarfi þótti mér
hann umfram allt ljúflyndur, vand-
virkur leiðbeinandi og ákjósanleg
fyrirmynd, en ágengni og eftirrekst-
ur fór ekki alls kostar saman við
prúðmennsku hans og háttvísi.
Einna eftirminnilegust er mér
kennsla hans í bókfærslu sem lék
fullkomlega í höndum hans án þess
þó að hann þryti nokkurn tíma þol-
inmæði við þrauthugsaðar skýringar
og tilsögn.
Eins og vikið var að starfaði Berg-
steinn lengst af jafnframt kennslu
við bókhald, m.a. fyrir skólana á
Laugarvatni, einkum Héraðsskólann
en einnig um tíma fyrir Menntaskól-
ann. Allar fjárreiður mötuneyta
þeirra skóla annaðist hann einnig
og raunar lengi eftir að hann lét af
kennslu fyrir aidurs sakir, Mennta-
skólans til 1979,og Héraðsskólans
nokkur ár eftir það. Nemendum
kynntist hann öllum í þessu starfi,
var frábærlega mannglöggur og
mannþekkjari um leið. Um var að
ræða miklu meira en venjulegt
rekstrarbókhald því segja mátti að
gjaldkerinn væri fjárhaldsmaður
allra heimavistarnemenda og annað-
ist greiðslu alls áfallandi kostnaðar
fyrir þeirra hönd. Ógleymanleg er
sú vandvirkni og snyrtimennska sem
mætti uppburðarlitlum unglingum
sem komu með aleigu sína, knöpp
sumarlaun, og fengu gjaldkeranum
til varðveislu. Allt bar vitni um röð
og reglu og umfram allt virðingn
fyrir verðmætum. Færslur Berg-
steins myndu nú margir kalla
skrautritun, svo vandaðar voru þær.
Um langt skeið mun hann lítil sem
engin laun hafa þegið fyrir að bæta
svo miklu starfi við fulla kennslu,
skólamir og nemendur þeirra fengu
einfaldlega að njóta þeirrar hæfni
hans og afkasta sem hann hafði
umfram flesta aðra menn á þessu
sviði. Öll afgreiðsla var við eða inni
á heimili hans, fyrst í þröngum húsa-
kynnum skólans og síðar í húsi hans
sjálfs eftir að fjölskylda hans eignað-
ist eigið húsnæði. Þar nutu skólarn-
ir og nemendur velvildar og hlýs
viðmóts Sigrúnar konu hans sem
veitti honum mikilsverða aðstoð við
gjaldkerastörfin hin síðari ár.
Við stofnun Menntaskólans 1953
kom það af sjálfu sér að Bergsteinn
tók að sér kennslu í bókfærslu og
annaðist hana fram undir 1970 þeg-
ar hún var - illu heilli - felld út
úr kjarna menntaskólanáms. Mötu-
neytisrekstur og fjárhald mennta-
skólanema annaðist hann einnig til
ársins 1979 eins og getið var. Fyrir
þetta, auk allra annarra starfa fyr-
ir skólana beint og óbeint, stendur
skólinn okkar í meiri þakkarskuld
við Bergstein en lýst verði í fáum
minningarorðum. Sá sem hér skrif-
ar á honum sérstaklega að þakka
það drengskaparbragð að taka að
sér bókhald Menntaskólans frá því
að honum var falin ábyrgð þess
árið 1970 og þar til Ríkisbókhaldið
tók við því. Á sama ári var skilnað-
ur ger milli mötuneyta Menntaskól-
ans og Héraðsskólans og enn hljóp
Bergsteinn þar undir bagga, tók
nýstofnað mötuneyti Menntaskól-
ans að sér og miðlaði þekkingu sinni
og reynslu af sömu ljúfmennsku og
endra nær. Þrátt fyrir eðlislæga
hógværð hans og hlédrægni var
vandvirkni hans, elja og heiðarleiki
þekkt og rómuð meðal nemenda
hans og samstarfsmanna. Verk
hans mátu þeir þó mest sem þekktu
þau best.
Hér hef ég stiklað á stóru í stuttu
yfirliti um mikið ævistarf, sem ég
leyfi mér að þakka fyrir skólanna
hönd. Á hugann leita minningar og
persónuleg þakkarefni, - þakkir
fyrir að hafa eignast að vini svo
mikilhæfan mann af kynslóðinni
sem óx upp á fyrstu áratugum ald-
arinnar og man t.d. vel hin miklu
umskipti í sögu landsins árið 1918.
Það væri efni í langa grein ef rifja
ætti upp allt það sem Bergsteinn
miðlaði á góðum stundum af reynslu
sinni, frásagnarlist og traustu
minni. Dæmi Iangar mig að nefna:
Hann mundi vel þegar móðir hans,
yfirsetukona sveitarinnar, var sótt
að Reyðarmúla, hinum umtalaða bæ
í Laugarvatnshellum, 10-12 km
leið, til að taka þar á móti barni. -
Hann sagði við mig einn fagran
vormorgun þegar við ókum saman
um Þingvöll til Reykjavíkur: „Hér
var ég meðal þeirra sem puntaðir
voru í bláhvítt 1930“ - átti að sjálf-
sögðu við löggæslulið á Alþingishá-
tíð og vísaði um leið í þekkt Ijóð
eftir Laxness. Hann hafði verið við-
staddur þegar hópur í mótmæla-
göngu stóð við ráðherrabústaðinn í
Tjarnargötu 1931 og heyrði forsæt-
isráðherrann, Tryggva Þórhallsson,
segja - með vísun til vitrunar
Konstantíns keisara - „Undir þessu
merki muntu sigra“, og benda um
leið á þjóðfánann sem borinn var
fyrir göngunni. Hann sagði mér
ýmislegt af persónulegum kynnum
sínum af Halldóri Laxness sem
dvaldist hér oft um lengri eða
skemmri tíma á landsþekktu sumar-
hóteli Héraðsskólans á Laugarvatni
og vann að framlagi sínu til heims-
bókmenntanna.
Lifandi tengsl við liðna tíð, ómet-
anlega hjálp, gott samstarf og ljúft
í minningu þökkum við Rannveig
kona mín Bergsteini Kristjónssyni.
Sigrúnu ekkju hans, bömum þeirra
og fjölskyldum sendum við hugheilar
samúðarkveðjur.
Kristinn Kristmundsson.
Bergsteinn Kristjónsson frá Útey
í Laugardal er látinn hartnær níræð-
ur að aldri. Hann helgaði Laugar-
vatni orku sína og hollustu óskipta
á langri og gifturíkri starfsævi og
átti stóran hlut í uppbyggingu Laug-
arvatns sem skólaþorps auk þess að
vera á þriðja áratug oddviti Laugar-
dalshrepps.
Kynni okkar hófust, þegar undir-
ritaður var nemandi í Héraðsskól-
anum á Laugarvatni í stríðslok. Lítt
grunaði mig þá, að þessi glæsilegi
og ávallt prúðbúni maður ætti eftir
að vera hjálparhella mín og nánasti
samstarfsmaður, er ég tæpum ára-
tug síðar hóf starf sem samkennari
hans við Héraðsskólann á Laugar-
vatni.
Bergsteinn var kennari við Hér-
aðsskólann 'á Laugarvatni 1931-
1970 og síðan stundakennari 1970-
1977 eða 46 ár samtals. Stunda-
kennari í bókfærslu var hann á þriðja
áratug við Menntaskólann að Laug-
arvatni. Auk þess vann hann mörg
önnur störf, öll þýðingarmikil, í þágu
hins ört vaxandi skólaseturs eða
samfellt í 54 ár - lengur en nokkur
annar fyrr eða síðar. Hann stjórnaði
sumargistihúsi Héraðsskólans
1936-1945 og síðan aftur 1963-
1975, hann annaðist fjárreiður og
rekstrarbókhald fyrir Héraðsskólann
1938-1974 og fyrir mötuneyti sama
skóla frá 1939 og allar götur til
1985.
Árum saman annaðist Bergsteinn
heima hjá sér alla fjölritun fyrir
Héraðsskólann. Miklu ónæði af þeim
sökum tók hann með óbrigðulli ljúf-
mennsku. - Ósjaldan var til hans
leitað við að hjúkra sjúkum, ef ekki
náðist í lækni eða hjúkrunarkonu.
Hann þótti hafa „læknishendur“ og
handlék sprautuna góðkunnu með
öryggi atvinnumannsins.
Bergsteinn var harðduglegur og
útsjónarsamur verkmaður að hveiju
sem hann gekk. Glæsileg voru til-
þrif hans við garðyrkju. Þá leist mér
hann vera tveggja manna maki.
Bókhald var uppáhaldsiðja Berg-
steins, í það lagði hann sál sína og
metnað, nostraði við hvern stafkrók
- um tímakaup var aldrei rætt.
Bækurnar voru augnayndi, hand-
skrifaðar - í raun skrautritaðar,
ógleymanlegt öllum er sáu, og aldrei
barst minnsta athugasemd frá end-
urskoðendum.
Bergsteinn var frábærlega
skemmtilegur, hlýlegur og sam-
vinnuþýður í öllu dagfari. Hann var
gáfaður, músíkalskur og hafsjór af
fróðleik um flest milli himins og jarð-
ar, að okkur fannst. Sögur, kvæði
og ekki síst stökur hafði hann á
hraðbergi' við öll hugsanleg tæki-
færi. Aldrei tókst neinum - mér vit-
anlega - að punda á hann svo mergj-
uðu sögukorni eða stöku, að hann
gæti ekki gert ögn betur. í dagsins
önn mátti um Bergstein með sanni
segja, að hann „dreifði daga grárra
deyfð og þunga um sinn“, eins og
uppáhaldsskáld okkar beggja komst
að orði.
Ekki hafði ég þekkt Bergstein
ýkja lengi, þegar ég komst að því,
að hann kunni ótrúlega góð skil á
ýmsum merkum heimspekikenning-
um, sem uppi hafa verið með þjóðum
um aldir, og tel ég engan vafa, að
þekking Bergsteins í þeim fræðum
hafi stuðlað að hleypidómaleysi
hans, en mér þótti hann ávallt reiðu-
búinn - fyrstur manna - að sjá og
virða tvær eða fleiri hliðar á hveiju
máli.
í heimilislífi sínu var Bergsteinn
hinn mesti gæfumaður. Sem heimil-
isfaðir var hann ástríkur og um-
hyggjusamur svo að af bar. Börn
þeirra hjóna, gáfuð og vel menntuð,
eru sæmdarfólk og dugandi hvert á
sínu sviði.
Bergsteinn sagði eitthvert sinn
við mig fyrir mörgum árum, að hann
væri 1.000 ára gamall. Þetta var
hans gagnorði máti að höfða til þess,
að sem bóndasonur í sveit ólst hann
upp við svipuð kjör og starfshætti
pg tíðkast höfðu allt frá árdöguiff*
•íslandsbyggðar - verkfærin frum-
stæð og orkan einvörðungu vöðvaafl
mannsins með aðstoð þarfasta þjóns-
ins.
Bergsteinn hélt tryggð við sína
sveit - færði sig aðeins yfir á vestur-
bakka Laugarvatns og bjó þar æ
síðan, meðan heilsa entist, enda
vandfundið fegurra umhverfi.
Eftirlifandi fjölskyldu Bergsteins
votta ég einlæga samúð, fullur þakk-
lætis fyrir að hafa svo lengi mátt
njóta vináttu þess góða drengs sem
nú er kvaddur.
Benedikt Sigvaldason.
í dag er kvaddur Bergsteinn
Kristjónsson frá Laugarvatni.
Við leiðarlok langar mig til að
þakka fyrir allt það sem hann veitti
mér af kærleika sínum og vináttu.
Það varð gæfa mín að fá að dvelja
á heimiii hans og Sigrúnar að Laug-
arvatni tvo vetur á einhveijum við-
kvæmustu mótunarárum í lífi mínu.
Þegar ég hugsa til baka um dvöl
mína að Laugarvatni þá sé ég betur
og betur hversu mikil forréttindi það
voru að fá að umgangast þau á
þann hátt sem ég fékk. Þau reynd-
ust mér sem ástríkir og skilningsrílafc.
ir foreldrar og kenndu mér að tak-
ast á við lífið á þann hátt sem eng-
inn skóli getur kennt.
Samband þeirra hjóna var svo
fallega náið og sú gagnkvæma ást
og virðing sem þau báru hvort fyrir
öðru mun mér aldrei gleymast. Það
virðast fleiri hafa tekið eftir hversu
samhent þau voru því ávallt þegar
heimili þeirra er nefnt þá eru þau
alltaf nefnd bæði vegna þess að þau
stóðu saman sem ein persóna bæði
í gleði og sorg.
Bergsteinn var kennari af guðs-
náð með yfirburða þekkingu á því
sem hann íjallaði um og á undra-
verðan hátt gerði hann flókna hluti
einfalda og auðskilda. Hann hafði
einnig þann eiginleika sem kennari.
að nemendum leið vel í tímum hjá
honum og gátu tekist á við námið
þvingunarlaust. Ég veit það eru þús-
undir nemenda hans um allt land á
þessari stundu sem hugsa til hans
með mikilli hlýju og þakklæti.
Hann var glæsimenni útlits en
samt er það glæsileiki persónu hans
og mannkostir sem munu lifa í minn-
ingunni. Engum manni hef ég
kynnst sem á svo einstæðan hátt
og einlægan gaf bæði kærleik og
visku. Að hafa átt Bergstein Krist--
jónsson að vini er hlutur sem ég fæ
aldrei fullþakkað.
Ég votta hans góðu konu Sig-
rúnu, börnum þeirra og íjölskyldum
mína dýpstu samúð en minningin
um þennan góða mann mun aldrei
gleymast.
Gústaf H. Hermannsson.
• Fleiri minningargreinar um
Bergstein Kristjónsson biða birt-
ingar ogmunu birtast í blaðinu
næstu daga.
Erfidrykkjurv
Kiwanishúsið,
Engjateigi 11
s. 5884460
Sérfræðingar
í hltMiiaskroylingiiiu
við »11 (u‘kiiaM‘i
blómaverkstæði
INNAfcl
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sími 19090