Morgunblaðið - 27.01.1996, Page 26
26 LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 1996 27
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI
FRAMKVÆMDASTJÓRI
RITSTJÓRAR
Árvakur hf., Reykjavík.
Hallgrímur B. Geirsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
RUSSLAND OG
EVRÓPURÁÐIÐ
ÞING Evrópuráðsins í Strassborg samþykkti á fimmtudag
með 164 atkvæðum gegn 35 að veita Rússiandi aðild
að ráðinu. Tæp þijú ár eru liðin frá því aðildarumsókn
Rússa barst ráðinu en viðræður um aðild lágu að mestu
niðri á síðasta ári, þar sem Evrópuráðið vildi mótmæla hern-
aðaraðgerðum Rússa í Tsjetsjníju.
Aðild Rússlands er háð mörgum skilyrðum, sem rússnesk
stjórnvöld verða að uppfylla. Má nefna að þau skuldbinda
sig til að leysa innri vandamál á friðsamlegan hátt, til að
hlíta Mannréttindasáttmála Evrópu, gera umbætur á rétt-
ar- og fangelsiskerfi sínu, vernda réttindi minnihlutahópa
og afnema dauðarefsingar.
Mikilla efasemda hefur gætt um réttmæti þess að veita
Rússum aðild að Evrópuráðinu. Ráðið var stofnað til að
standa vörð um mannréttindi og lýðræði í álfunni. Þar hef-
ur það náð talsverðum árangri, sem bezt sést á því að
Mannréttindadómstóll Evrópu hefur margsinnis knúið fram
breytingar á réttarkerfi aðildarríkjanna, þar á meðal hér á
landi.
Rússland hefur vegna stærðar sinnar og fólksfjölda mikla
sérstöðu. Ríkið teygir sig um tvær heimsálfur og það byggja
margar þjóðir, sem vart er hægt að telja til Evrópuþjóða.
Gildismat lýðræðisríkja hefur heldur ekki alltaf átt upp á
pallborðið í Rússlandi.
Margir óttast að stærðar sinnar vegna muni Rússland
breyta ásjónu Evrópuráðsins um of. Lýðræði er skammt á
veg komið og engin söguleg hefð er fyrir virðingu fyrir
lýðréttindum.
Aðildarríkjum Evrópuráðsins hefur fjölgað hratt á síðustu
árum. Þau voru 22 árið 1989 en verða orðin 39 þegar Rúss-
land fær aðild. Undanfarin ár hefur Evrópuráðið í stóraukn-
um mæli gegnt því hlutverki að fylgjast með ástandi mann-
réttindamála í hinum nýju aðildarríkjum í Austur-Evrópu
og að gefa þeim góð ráð um breytingar á stjórnarskrá og
réttarkerfi.
Stofnanir ráðsins hafa hins vegar ekki að sama skapi
verið styrktar og hafá óafgreidd mál hrannast upp hjá
Mannréttindanefndinni og dómstólnum. Sú hætta er vissu-
lega fyrir hendi að fjölgun aðildarríkja ein og sér geri stofn-
anir Evrópuráðsins óskilvirkari, auk þess sem menn hafa
velt fyrir sér hvort niðurstaða mála geti orðið önnur vegna
aðildar nýrra ríkja, sem eiga litla sem enga lýðræðishefð.
Kostirnir við aðild Rússlands að Evrópuráðinu vega þó
þyngra. Framferði Rússa í stríðinu í Tsjetsjníju er vissulega
gagnrýnisvert, en ekki má gleyma því að eftir að Evrópuráð-
ið var stofnað hafa sum aðildarríki þess beitt hervaldi til
að varðveita einingu ríkisins eða til að reyna að halda í
nýlendur sínar. Þess vegna er ekki hægt að útiloka Rússa
vegna Tsjetsjníju-deilunnar og raunar er sennilegt að aðild
Rússlands að Evrópuráðinu muni auka þrýsting á stjórnvöld
í Moskvu að leysa deiluna með friðsamlegum hætti.
Með ákvörðun sinni sýndu þingmenn á þingi Evrópuráðs-
ins stuðning við lýðræðisöflin í Rússlandi. Það ber vott um
pólitískt raunsæi að reyna fremur að binda Rússa inn í
samstarf Evrópuríkja með því að taka þá inn í Evrópuráðið
en að loka á þá og hafna samstarfi við þá er þeir sækjast
eftir því. Inntaka Rússlands í Evrópuráðið er um leið yfirlýs-
ing Vestur-Evrópu um að hún líti á Rússland sem vestrænt
ríki. Ein helzta deilan í rússnesku þjóðlífi snýst einmitt um
það, hvort Rússland sé vestrænt ríki eða ekki og hvort það
eigi sameiginlega hagsmuni með Vesturlöndum eða sé nátt-
úrulegur andstæðingur þeirra. Bezta leiðin til að halda frið-
inn við Rússa til lengri tíma er að ýta undir þau öfl, sem
eru hlynnt vestrænum viðhorfum. Þátttaka í vestrænum
stofnunum ætti að stuðla að því að skapa það traust, sem
nauðsynlegt er í samskiptum Rússlands við Vesturlönd.
Það á auðvitað eftir að koma í ljós hvort Rússar hafi
áttað sig til fulls á skuldbindingunum, sem felast í því að
starfa nú með öðrum ríkjum undir merki Evrópufánans.
Þannig munu menn fylgjast af athygli með því hvort rúss-
neskum lögum verður á næstunni breytt til samræmis við
kröfur Evrópuráðsins. Jafnframt verða viðbrögð rússneskra
stjórnvalda við fyrstu dómum Mannréttindadómstólsins í
málum, er varða Rússland, prófsteinn á hollustu þeirra við
mannréttindi og lýðræði. En þegar á allt er litið getur það
ekki annað en orðið friðsamlegri sambúð ríkja í Evrópu til
framdráttar að þetta mikla- stórveldi í austri gangi nú til
samstarfs við ríkin á vettvangi Evrópuráðsins.
Ríkisspítalar áforma að segja upp samningi um rekstur vistheimilisins Bjargs
SKÓLAMÁL
TILKYNNING um að Rík-
isspítalar hyggist segja
upp samningi sínum við
Hjálpræðisherinn um
rekstur vistheimilisins Bjargs um
næstu mánaðamót með sex mánaða
fyrirvara hefur vakið mikla at-
hygli. Rannveig Höskuldsdóttur,
forstöðumaður vistheimilisins, hef-
ur sagt í Morgunblaðinu að verið
sé að splundra heimili og slíta 28
ára farsælu samstarfí. Hún hefur
sagt að heildarkostnaður Ríkisspít-
alanna sé aðeins 5.244 kr. á dag
fyrir hvem heimilismann og því sé
ógerningur að ná fram sparnaði
vegna umönnunar þeirra. Tómas
Helgason, forstöðumaður geðdeilda
Landspítalans, lýsir ábyrgð á hend-
ur fjárveitingarvaldsins. Geðdeild-
irnar hafi einfaldlega staðið frammi
fyrir því að velta því fyrir sér hvort
einhver starfsemi ætti betur heima
hjá öðrum aðilum. Niðurstaðan
hefði orðið sú að eðlilegt gæti talist
að umönnun fatlaðra, eins og
byggju á Bjargi, væri á vegum fé-
lagsmálastofnana og annarra
slíkra. Ólafur Ólafsson landlæknir
segir í bréfi til Ingibjargar Pálma-
dóttur heilbrigðisráðherra að segja
megi að verkefnið sé á mörkum
heilbrigðisþjónustu og félagsþjón-
ustu.
Vistmenn á Bjargi hafa verið 12
til 14 aðjafnaði og meðaldvalartími
tólf ár. Einn vistmannanna hefur
verið á Bjargi frá upphafi eða í 28
ár. Tveir hafa verið lengur en 23 ár.
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigð-
isráðherra sagði í samtali við Morg-
unblaðið að sér fyndist afar slæmt
hvað fjölmiðlaumræða í tengslum
við tilkynningu um lokun Bjargs
hefði valdið miklum óróleika meðal
heimilsmannanna. „Þó svo ráðu-
neytið skipti sér ekki af rekstri ein-
stakra deilda Ríkisspítalanna lýsi
ég því yfir að ef Bjargi verður lok-
að verður fundið öruggt skjól fyrir
alla heimilismenn. Margir hafa bent
mér á að vistheimilið, eins og sam-
býli geðfatlaðra, ætti frekar að til-
heyra félagsmálaráðuneyti en á
meðan málefni vistheimilisins eru í
heilbrigðisráðuneytinu berum við
ábyrgð á því að fínna úrræði fyrir
heimilismennina,“ sagði Ingibjörg
og útilokaði ekki að hugað yrði að
því í framtíðinni undir hvaða ráðu-
neyti eðlilegt væri að vistheimilið
heyrði. Hún tók fram að samningi
Ríkisspítalanna og Hjálpræðishers-
ins hefði enn ekki verið sagt form-
lega upp. Ekki mætti heldur gleyma
því að uppsagnarfrestur samnings-
ins væru 6 mánuðir og því væri
nokkur tími til stefnu.
Heimilismönnum
verði hlíft
Hjálpræðisherinn hefur sent frá
sér fréttatilkynningu vegna tilkynn-
ingar um lokun vistheimilisins
Bjargs. í henni tekur hann fram að
fyrirhuguð lokun Bjargs hafi verið
mjög til umræðu í fjölmiðlum að
undanförnu og viðbrögð almennings
við þessari umfjöllun mun meiri en
nokkurn hafi órað fyrir og margir
hafi viljað leggja þessum málstað
lið. Heimilismenn og aðstandendur
þeirra séu ákaflega þakklát fyrir
þann stuðning sem þeim hafi verið
sýndur. Hins vegar leggi stjórnendur
heimilisins áherslu á að nauðsynlegt
sé að nú fari að minnka sú opinbera
umfjöllun sem hafi verið, til að hlífa
heimilismönnum við því álagi sem
því fylgir.
„Sem stendur er þetta mál enn í
höndum stjórnar Ríkisspítalanna en
uppsagnartími samnings þeirra við
Hjálpræðisherinn eru 6 mánuðir.
Væntum við þess að sá tími verði
vel nýttur til að finna farsæla lausn
á þessu máli og vill Hjálpræðisherinn
ítreka að hann ber fullt traust til
ráðamanna að svo verði.“
Vistheimilið verði
ekki leyst upp
Landlæknir hefur í bréfi til heil-
brigðisráðherra mælst til að reynt
verdi að koma í veg fyrir að leysa
þurfi vistheimilið á Bjargi upp. Hann
rekur í upphafi að ein af sparnaðar-
Eðlilegur styrkur eða
misnotkun skattpeninga?
Djúpstæður ágreiningur hefur verið um skipan
skólamála í Mývatnssveit. Ibúar suðurhluta
sveitarinnar vilja ekki senda böm sín í skóla
í Reykjahlíð vegna óhóflega langs aksturs
þangað og stofnuðu því sl. haust einkaskóla
á Skútustöðum. Nú er deilt um hvort sveitarfé-
lagið eigi að sækja um framlag úr jöfnunar-
sjóði sveitarfélaga vegna rekstrar skólans.
Margrét Þóra Þórsdóttir kynnti sér skóla-
mál í Mývatnssveit.
SVEITARSTJ ÓRN Skútu-
staðahrepps í Mývatnssveit
tekur á fundi á mánudag
afstöðu til þess hvort greiða
eigi einkareknum skóla að Skútu-
stöðum rekstrarstyrk. Fyrir liggur
úrskurður formanns stjórnar jöfnun-
arsjóðs sveitarfélaga þess efnis að
greiði hreppurinn rekstrarstyrk til
skólans geti sveitarfélagið sótt um
grunnskólaframlag úr jöfnunarsjóði
vegna aksturs barna í einkarekna
skólanum. Hefur sveitarstjórnin ósk-
að eftir úrskurði á túlkun á lögum
og reglugerð jöfnunarsjóðsins, þar
sem hún telur sér ekki heimilt að
sækja fé í sjóðinn til að afhenda í
rekstur einkarekins skóla.
Deilur um skólaskipan
Mývetningar hafa deilt um skipan
skólamála í sveitinni um nokkurt
skeið. Aðalskóli sveitarinnar var
lengst af á Skútustöðum, miðsvæðis
í sveitimji, en eftir að fólki fjölgaði
og þéttbýli myndaðist í norðurhluta
sveitarinnar, umhverfis Reykjahlíð,
var farið að kenna yngstu börnunum
þar. Sumarið 1994 tók sveitarstjórn
þá ákvörðun að flytja allt skólahald
í sveitinni undir eitt þak í skólanum
í Reykjahlíð. Sveitarstjórn var tilbúin
til að fresta flutningi skólabarna í
1. til 3. bekk tvö næstu skólaár á
eftir. Suðursveitungar töidu rétt
brotin á börnunum með óhóflega
löngum skólaakstri, en 95 kílómetra
leið var fyrir þau sem lengst áttu í
skólann fram og til baka. Foreldrar
barna úr suðurhluta sveitarinnar
sendu börn sín ekki í skóla í Reykja-
hlíð þá um haustið, eða fram i byrj-
un október þegar lausn fannst í deil-
unni, en hún fólst í því að foreldrar
ráku skólasel á Skútustöð-
um fyrir börn í 1. til 7.
békk. Var það rekið á fag-
lega ábyrgð sveitarstjórn-
ar en hvað kostnaðinn
varðar greiddu foreldrar
barnanna það sem vantaði
á fjárframlög ríkisins.
Mikil vinna var lögð í það síðasta
vetur að ná fram sáttum um skóla-
skipan í sveitinni. Starfshópur sem
vann að málinu skilaði tillögum í
maí í fyrra og lagði til að gerð yrði
tilraun til fjögurra ára en hún fólst
í því að skólaárin 1995-1997 yrði
aðalskóli sveitarinnar í Reykjahlíð
og skólasel að Skútustöðum fyrir
börn í 1. til 7. bekk sem búa í meira
en 10 kílómetra fjarlægð frá Reykja-
hlíð. Tvö næstu skólaár þar á eftir,
1997-1999, yrðu allir nemendur í
skólanum í Reykjahlíð. Sveitarstjórn
ætlaði á þessum tíma að beita sér
fyrir vegabótum á þessum tíma sem
miðuðu að því að auka öryggi í vetra-
rakstri.
Tillagan var borin undir samtök
foreldra, kennara og skólanefnd og
það skilyrði sett af hálfu sveitar-
stjórnar að allir samþykktu að gera
þessa tilraun. Samtök for-
eldra barna í Skútustaða-
skóla sáu sér ekki fært að
samþykkja tillöguna eins
og hún var fram sett. Um
mitt síðasta ár voru skóla-
málin því aftur komin í
uppnám í sveitinni, en
lyktir urðu þær að suðursveitungar
reka einkaskóla á Skútustöðum þar
sem eru rúmlega 20 börn, en um
50 börn eru í Reykjahlíðarskóla.
Ekki einkaskóli ef
rekinn fyrir almannafé
Nú er sú staða komin upp að sveit-
arstjórn þarf að taka afstöðu til þess
hvort hún greiði einkarekna skólan-
um rekstrarstyrk og sæki um fram-
lag úr jöfnunarsjóði til að standa
straum af akstri nemendanna.
„Sveitarstjórn hefur skilið lögin
þannig að við teljum okkur ekki eiga
rétt á að sækja skattpeninga til að
afhenda þá þriðja aðila. Einkaskólinn
er ekki rekinn af Skútustaðahreppi
og það er lítið einka við skólann ef
hann er rekinn fyrir skattpeninga
almennings," sagði Sigurður Rúnar
Ragnarsson, sveitarstjóri í Skútu-
staðahreppi, en hann sagði
það mikil vonbrigði að suð-
ursveitungar vildu ekki
þiggja þá grunnskólaþjón-
ustu sem sveitarfélagið
byði upp á.
Það væri stefnan að
reka skóla á einum stað,
en slíkt væri talið til bóta fyrir skóla-
starfið faglega og fjárhagslega væri
það einnig mun hagkvæmara. „Við
töldum að hægt væri að bjóða það
góða þjónustu-að menn gætu sætt
sig við hana, en það var mismetið,"
sagði Sigurður Rúnar.
Hann sagðist meta mál svo að
átök í sveitinni snerust um það hvar
byggja ætti upp þjónustuna. Fólk
hafi verið flest kringum Skútustaði
í eina tíð, en þegar þéttbýli myndað-
ist um Reykjahlíð handan vatnsins
hefði þjónustan byggst upp þar,
bæði af viðskipta- og hagkvæmnis-
sjónarmiðum.
Skiljum ekki á
hverju strandar
Eyþór Pétursson, talsmaður for^
eldra barna í einkarekna skólanum
á Skútustöðum, sagði að skólinn
yrði ekki rekinn án þessa framlags,
sem nemur tæpum 1,7 milljónum
króna. Forsvarsmerin skólans hefðu
sótt um framlagið á sínum tíma, en
fengið þær upplýsingar að ekki væri
heimilt að greiða það öðrum er sveit-
arfélögum eða með þeirra leyfi. Hann
sagði að nægilegt væri að sveitar-
stjórn gæfi viljayfirlýsingu þess efn-
is að hún væri því fylgjandi að grunn-
skólaframlagið væri greitt til skól-
ans.
Eyþór sagði að síðasta haust hefði
sveitarstjóm lýst því yfir í bókun að
jöfnunarsjóðsframlag svo og önnur
framlög sem kynnu að koma í sveif^-
arsjóð skyldu greidd til skólans á
Skútustöðum. Félagsmálaráðuneytið
teldi ekkert því til fyrirstöðu lagalega
að greiða framlagið, nema þá að
sveitarstjórnin vildi ekki taka við
því. „Við skiljum þess vegna ekki á
hveiju strandar," sagði Eyþór.
„Við teljum að oddvita sveitarinn-
ar sé ekki stætt á öðru en að að-
stoða okkur við að ná þessu fé inn
í sveitarfélagið. Ef hann er enn odd-
viti allrar sveitarinnar þá sækir hann
það að sjálfsögðu með okkur, því
þetta mál skaðar ekki á nokkurn
hátt hagsmuni hins skólans í sveit-
inni,“ sagði Eyþór.
Jafnræðisreglan brotin?
Um hugsanleg viðbrögð suður-
sveitunga afgreiði sveitarstjórn mál-
ið á þann veg að sækja
ekki um rekstrarstyrkinn,
sagði Eyþór að menn
myndu alvarlega skoða
hvort þeir ættu samleið
með sveitungum sínum
norðan vatns. „Manni
finnst þá eins og maðui
tilheyri ekki neinu sveitarfélagi. Það
er einkennileg staða í siðuðu þjóðfé-
lagi ef meirihluti sveítarstjórnar að-
stoðar okkur ekki við að sækja það
fé sem við eigum rétt á. Það hlýtur
þá að vera spurning um hvort hann
sé að bijóta jafnræðisregluna sem
kveður á um að allir þegnarnir sitji
við sama borð. Ég geri ráð fyrir af
við myndum íhuga að leggja frair
stjórnvaldskæru verði rnálið afgreitl
þannig á hreppsnefndarfundinum/'
sagði Eyþór.
Ekki einka-
skóli sem
rekinn er fyrir
almannafé
Skaðar ekki
hagsmuni
hins skólans
í sveitinni
Vistmöimum
verður tryggt
öruggt skjól
Tilkynnt hefur verið að Ríkisspítalar hyggist
segja upp samningi sínum við Hjálpræðisher-
inn um rekstur vistheimilisins Bjargs. Formleg
tilkynning hefur hins vegar ekki borist og er
uppsagnarfrestur sex mánuðir. Framtíð vist-
heimilisins er því enn óljós.
hugmyndum Ríkisspítala sé að hætta
rekstri vistheimilis fyrir geðsjúka í
samvinnu við Hjálpræðisherinn. Á
heimilinu hafi 12 til 14 vistmenn
dvalist á lágum daggjöldum (5.255
kr./dag) og standi daggjöldin undir
viðhaldi og endurbótum á húsnæði.
Stöðugleiki hafi verið í starfseminni
og þótt um verulega fatlað fólk sé
að ræða sé nánast óþekkt að vist-
menn leggist inn á bráðageðdeild.
„Skiljanlegt er að Ríkisspítalar
grípi til þess að loka heimili sem
þessu þegar í harðbakka slær og
þeim er gert að skera niður útgjöld,
enda má segja að verkefnið sé á
mörkum heilbrigðisþjónustu og fé-
lagsþjónustu. Endurskoða má til
hvors þessara málaflokka heimilið
heyrir í framtíðinni og undir hvaða
yfirstjórn það verði,“ segir í bréfi
Ólafs Ólafssonar landlæknis til Ingi-
bjargar Pálmadóttur heilbrigðisráð-
herra. Ólafur tekur fram að víða
erlendis myndi stofnun eins og Bjarg
flokkast undir félagsmál enda fyrst
og fremst um fatlaða einstaklinga
að ræða.
Fram kemur að álit landlæknis sé
að þótt útgjöld Ríkisspítala myndu
með lokun heimilisins minnka um
tíma myndi lokunin ekki fela í sér
neinn sparnað fyrir hið opinbera.
Aukin veikindi vistmannanna gætu
þegar til lengri tíma væri litið vegið
upp tímabundna lækkun útgjalda.
Vistmenn á Bjargi hefðu sumir verið
þar í fjölda ára og margir þoli eflaust
Tómas lagði áherslu á að farið
hefði verið yfir alla möguleika til að
ná fram verulegum sparnaði og upp-
sögn samningsins við Hjálpræðisher-
inn væri því miður eini möguleikinn.
Hann lýsti yfir ábyrgð fjárveitingar-
valdsins. „Fjárveitingarvaldið virðist
skera niður fjárframlag til heilbrigð-
ismála án þess að gera sér grein
fyrir afleiðingunum. Fólk veikist jafn
mikið og kostnaðurinn við lækning-
una minnkar ekki. Eftir að reynt
hefur verið í botn á hagræðingu eig-
um við ekki annars úrkostar en að
reyna að velta kostnaðinum yfir á
aðra, t.d frá ríki til sveitarfélaga,
en kostnaðurinn hverfur ekki. Við
verðum að gera okkur grein fyrir
því að til að halda velferðinni við
verðum við að leggja til hennar fjár-
muni,“ sagði Tómas.
Tómas sagðist ekkert kjósa frem-
ur en 22 milljónir fengjust til að
hægt væri að halda rekstri Bjargs
áfram. Ef fram heldur sem horfir
eru hins vegar miklar líkur á að
hætta verði starfseminni í haust.
Fram hefur komið að sú röskun
kunni að hafa afdrifadríkar afleið-
ingar fyrir íbúana. „Eins og ég hef
sagt væri ég auðvitað hlynntur því
að hægt væri að finna aðra lausn.
Flutningar valda alltaf röskun. Að
flytja frá Kleppsspítala var erfitt
fyrir marga vistmenn á sínum tíma.
Ánnar flutningur myndi ekki síður
reyna á,“ sagði Tómas um flutning-
ana.
Hann sagði að byijað væri að at-
huga hvert vistmenn á Bjargi gætu
flutt en treysti sér ekki til að svara
því hvort möguleiki væri á ódýrara
úrræði. „Hvað þjónustan kostar fer
mikið eftir því hversu mikil hún er
og því er erfitt að segja til um hvort
hægt væri að ná fram sparnaði við
vistun heimilsmanna á Bjargi annars
staðar. Hitt er ljóst að starfsemi á
vegum Geðhjálpar, Geðverndar og
vernduð heimili sveitarfélaganna er
ódýrari.“
illa það rask sem fylgi í kjölfar lokun-
ar. Landlæknir mælist að lokum til
að fundin verði önnur lausn á málinu
en að leysa upp heimilið.
Sárt hvernig komið er
„Mér þykir afar sárt að sjá hvern-
ig komið er enda barðist ég fyrir því
sjálfur að gerður yrði samningur við
Hjálpræðisherinn um rekstur Bjargs
fyrir nær 28 árum. Hjálpræðisherinn
hefur staðið sig vel og ekkert nema
gott um Bjarg að segja. Nú er hins
vegar komið svo að fjárveitingar-
valdið hefur gert Ríkisspítölunum að
skera rekstrarkostnað niður um 400
milljónir miðað við rekstrarkostnað-
inn á síðasta ári. Sú upphæð skiptist
niður á deildir og koma 42 milljónir
í hlut okkar,“ sagði Tómas Helga-
son, forstöðumaður geðdeilda Land-
spítalans, um uppsögn samningsins
við Hjálpræðisherinn um rekstur
Bjargs.
Hann sagði að staðreyndin væri
einfaldlega sú að geðdeildirnar næðu
ekki að skera niður um svo háa fjár-
hæð nema leggja niður einhveija
starfsemi. „Við getum ekki hagrætt
meira enda hafa fjárframlög hvorki
fylgt auknum íbúafjölda landsins né
fjölgun sjúklinga síðustu 15 ár. Núna
stöndum við s.s. frammi fyrir því að
velta því fyrir okkur hvort einhver
starfsemi ætti frekar að vera á veg-
um einhverra annarra. Niðurstaðan
varð sú að eðlilegt gæti talist að
umönnun fatlaðra, eins og búa á
Bjargi, væri á vegum félagsmála-
stofnana, svæðisstjórna og annarra
slíkra,“ sagði hann og nefndi að ár-
legur kostnaður við hvern íbúa á
Bjargi væri 2 milljónir eða 22 milljón-
ir á ári miðað við 11 íbúa.“
„Annar mögleiki til að ná inn sömu
upphæð væri t.d. að loka móttöku-
deild í hálft ár,“ segir hann. „Ef sú
leið væri farin yrði ekki hægt að
taka á móti 200 til 300 bráðveikum
einstaklingum með þeim afleiðingum
að hættan á að þeir yrðu verulega
fatlaðir til langs tíma og þyrftu á
svipaðri umönnun að halda til langs
tíma og veitt er á Bjargi ykist veru-
lega,“ sagði Tómas.
Ábyrgð fjárveitingar-
valdsins
Morgunblaðið/Kristj án
FJÖR í frímínútum í einkarekna skólanum á Skútustöðum. Á mánudag tekur sveitarstjórn Skútustaðahrepps ákvörðun um hvort hún ætli
að greiða skólanum rekstrarstyrk, en þá væri hægt að sækja um grunnskólaframlag úr jöfnunarsjóði sem notað yrði til að greiða akstur
nemenda. Forsvarsmenn skólans segja ekki hægt að reka hann án styrksins.
Morgunblaðið/Sverrir
ÞÓTT Bjarg sé að mörgu leyti líkt venjulegu heimili og sumir
heimilismenn hafi búið þar í yfir tuttugu ár er starfandi hjúkrunar-
fræðingur á heimilinu. Hér er Sigríður Auðunsdóttir hjúkrunar-
fræðingur að tala í símann. Læknir sinnir vistmönnum
á Bjargi einu sinni í viku.
RÍKISSPÍTALAR sömdu um rekstur vistheimilisins Bjargs við
Hjálpræðisherinn fyrir um 28 árum.