Morgunblaðið - 27.01.1996, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 1996 21
Sendas í Ríó de Janeiró í Brasilíu
Úrvalið er breyti-
legt en ekki verðið
Ríó de Jeneiró. Morgunbladið.
STÓRMARKAÐINN Sendas er víða
að finna í Ríó. Þetta er verslunar-
keðja og sá markaður sem ég gerði
verðkönnun í er i hverfinu Bota-
logo. Þar býr miðstéttarfólk en rétt
hjá er hinsvegar húsaþyrping í
fjallshlíð þar sem lágstéttarfólk býr
við kröpp kjör.
Sendas er líka að finna í fínum
hverfum þar sem hástéttarfólkið
býr. Verðið breytist ekki mikið milli
búðanna en úrvalið er mun meira
þar sem hástéttin kaupir inn.
Þessi búð sem ég fór í í Botalogo
selur ferskt kjöt, fisk, hvítt brauð,
vín, ávexti, grænmeti auk annars
sem markaðir bjóða uppá. Þar að
auki bjóða þeir upp á sérstakar
„Sendas" vörur, þ.e.a.s. gijón, kaffi
og fleira merkt þeim.
Búðin er illa loftræst og því
ónotalegt að kaupa inn þar á sumar-
tíma eins og núna. Afgreiðslan er.
að auki hæg og ekki alltaf sem
afgreiðslufólkið sýnir þjónustulund.
Kannski má tengja það við léleg
laun eða það hveijum er verið að
þjóna.
Sigríður Hulda Geirlaugsdóttir
Vel búnar matvörubúðir
keppa við kassabúðirnar
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
í ÞETTA skiptið var keypt inn í
stórri Irma-búð við Austurport-
brautarstöðina. Irma hefur löngum
haft gott vöruval, en nú dugir ekki
annað en að keppa líka við kassa-
búðirnar, það er búðir, sem bjóða
ódýrar vörur við ódýrar aðstæður i
stórum búðum með fáum starfs-
mönnum. Innan um aðrar vörur
býður Irma því upp á sérstaklega
merktar afsláttarvörur, vörur á
lágu verði, sem eiga að keppa við
kassabúðirnar.
Það er gaman að kaupa inn í
þessari stóru og fínu Irmu-búð. Nóg
pláss, ekki síst fyrri hluta dags og
alltaf eitthvað nýtt á boðstólum.
ítalskur matur hefur slegið í gegn
í Danmörku eins og víðar og nóg
úrval af öllu til ítalskrar matargerð-
ar, að ógleymdri austurlenskri mat-
argerð. Irma mætir einnig vaxandi
eftirspurn eftir vistvænum mat, svo
þarna er úrval af lífrænt ræktuðu
grænmeti, bæði dönsku og inn-
fluttu, vistvænum pylsum og öðru
kjötmeti, að ógleymdum lifrænum
gosdrykkjum og bjór. Flestar teg-
undir matvæla fást nú í lífrænum
útgáfum. Sigrún Davíðsdóttir
Ansoco á Kanaríeyjum
I búðina daglega
Playa del Ingles. Morgunblaðið. ^
ALLT virðist miklu ódýrara
hér en heima á „Klakan-
um“. Ég fór í Hagkaup
þeirra heimamanna og
kíkti á verðlagið. Stór-
markaðurinn heitir Ansoco
og er einna líkastur því sem
við eigum að venjast heima.
Hann er að finna í því sem
íslendingar hafa kallað
Spænska hverfið eða í San
Fernando hverfínu þar sem
heimamenn búa aðallega
og minna er um ferðamenn.
Heimamenn fara yfirleitt í
búðina á hveijum degi eða eins oft
og þeir komast og kaupa helst
ferskar vörur enda nóg af þeim á
boðstólum. Það er bæði ferskt kjöt-,
og fiskmeti jafnt og grænmeti og
ávextir. Hér eru jafnan daglega
eldaðar stórar máltíðir sem mikið
er í • lagt og því nauðsynlegt að
kaupa inn á hveijum degi.
En það er auðvitað margt sem
þarf að taka með í myndina þegar
verðlag er skoðað og borið saman.
Hér á Gran Canaría vinna langflest-
ir við ferðamannaiðnað eða aðra
þjónustu. Þetta er ferðamannapara-
dís og allt sem þarf í fríinu við
hendina. Það gleymist hins vegar
oftar að minnast á að þeir sem hér
búa og starfa við þjónustu fá að
sjálfsögðu greidd laun í samræmi
við annað verðlag hér. Meðallaun
eru um 100.000 pesetar á mánuði
eða um 54.000 krónur sem er
reyndar ekki ósvipað lágmarkslaun-
um á íslandi.
Jóhanna Símonardóttir
Albertsons, Ft Lauderdale á Flórída
Odýrari innkaup
í stærri eininffum
rl n M r, i*m inlil'i Aið
Flórída. Morgunblaðið.
FARIÐ var í Albert-
sons sem er stór
verslunarkeðja og
hefur verið til í mörg
ár. Verð þykir frekar
hagstætt þar þótt
finna megi lægra
verð annars staðar,
m.a. í heildsölu-
klúbbunum en þar
þarf þá oft að kaupa inn í stærri
einingum.
Hrísgijónin voru á tilboði að þessu
sinni og eru því dýrari alla jafna. í
annarri verslun var kílóið af þeim á
bilinu 80-90 krónur.
í Bandaríkjunum
eru eggin seld í
bökkum, 36 stykki í
hveijum, mjólkin er
oft seld í 3,6 lítra
pakkningum, appels-
ínusafínn í tveggja
lítra fernum og svo
framvegis. Mæliein-
ingarnar eru aðrar en á Islandi. Verð-
ið er því oft fundið með því að deila
í stærri pakkningu.
Þórir Gröndal
MIÐALDRA?
ENGAN
VEGINN
Álag. Stress. Ofþreyta.
Meira og minna hluti af daglegu lífi.
Þess vegna Gericomplex.
Sérstaklega samansett til að halda þér í
og andlegu toppformi fram eftir
öllum aldri. Gericomplex inniheldur
yfir 20 vítamín og steinefni
og hið frábæra Ginseng
þykkni Ginseng G115.
Éh
eilsuhúsið
Skólavörðustig & Kringlunni
GLÆDDU
ÞITT
Áhrifin?
Aukin líkamleg og
andleg vellíðan.
Bætt úthald.
Árangurinn?
Þú lítur vel út.
Þér líður vel.
Þú glæðir líf þitt lifi.