Morgunblaðið - 27.01.1996, Side 16
16 LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
Morgunblaðið/Albert Kemp
Loðna til Fáskrúðsfjarðar
Fáskrúðsfirði - Loðnuvinnslan
hf. á Fáskrúðsfirði fékk fyrstu
loðnuna í á fimmtudag þegar
Bergur VE landaði þar 215
tonnum. Löndunin gekk vel.
Sævald Pálsson skipstjóri tók
við tertu úr hendi Gísla Jóna-
tanssonar framkvæmdastjóra
fyrirtækisins og Steinþór Pét-
ursson sveitarstjóri aflienti
skipstjóranum mynd af Fá-
skrúðsfirði. Þetta magn er ekki
nægilegt til að hefja vinnslu, en
þess er vænzt að meiri loðna
berist fljótlega á land, svo hægt
verði að hefja vinnslu í nýju
verksmiðjunni.
Góður gangur hjá IS
austur á Kamtsjatka
Myndband
um HB hf.
MYNDBÆR hf. lauk nýlega
gerð kynningarmyndar á mynd-
bandi um sjávarútvegsfyrirtæk-
ið Harald Böðvarsson hf. á
Akranesi. Myndin er notuð til
kynningar fyrir gesti, sem koma
og heimsækja fyrirtækið. Jafn-
framt verður gerð ensk útgáfa
myndarinnar, sem notuð verður
til kynningar innan lands og
utan. Myndin er unnin í nánu
samstarfí við starfsmenn og
stjórnendur fyrirtækisins.
Mælingar
á hrogna-
fyllingn
UNDANFARNAR loðnuvertíðir
hafa útibú Rannsóknastofnunar
fískiðnaðarins í Vestmannaeyj-
um og Neskaupstað boðið við-
skiptavinum sínum mælingar á
hrognafyllingu loðnu. Sýni hafa
reglulega verið tekin úr loðnu-
förmum til mælinga og niður-
stöður sendar þeim sem þess
óska. Að sögn Sigmars Hjartar-
sonar, útibússtjóra RF í Vest-
mannaeyjum, munu útibúin
halda þessu áfram á komandi
loðnuvertíð og geta þeir sem
áhuga hafa snúið sér til útibú-
anna um skráningu.
„UPPBYGGINGU á Kamsjatka
miðar eftir áætlun,“ segir Gunn-
laugur Júlíusson í fréttabréfi sem
gefið er út í Kamtsjatka og ætlað
vinum og vandamönnum starfs-
manna ÍS sem þar eru staddir.
Þar kemur fram að góð veiði
hafi verið undanfarið í Ohkotsk-
hafi vestan við Kamtsjatka og að
framleiðsla fyrstu vikuna á árinu
hafí verið 1.320 tonn, mestmegnis
heilfrystur Alaskaufsi.
Ennfremur segir að þrjú móður-
skip séu komin á miðin, 12 ísfisk-
togarar famir út til að veiða fyrir
þau og starfsfólk ÍS á skipunum
virðist þegar hafa náð mjög góðu
sambandi við samstarfsmenn sína
um borð.
Móttökur hjá
UTRF góðar
„Móttökur hér hjá UTRF hafa
verið mjög góðar,“ segir Gunn-
laugur. „í upphafi hafði fólk ákveð-
inn fyrirvara gagnvart þessari
„innrás" þar sem upplýsingar um
hana höfðu verið af heldur skom-
um skammti. Þeir hafa hins vegar
verið fljótir að átta sig á því hvaða
möguleikar fylgja breyttum vinnu-
brögðum og öðrum hugsunar-
hætti.“
Hann nefnir sem dæmi að stór
hópur af starfsfólki fyrirtækisins
sitji á mánaðarnámskeiði í ensku
og geri ekkert annað á meðan.
Að því loknu verði næsti hópur
tekinn fyrir og þannig koll af kolli.
„Við helltum okkur fljótlega út í
rússneskunám og er það farið að
skila örlitlum árangri, en leiðin til
árangurs er bæði langsótt og tor-
sótt,“ segir hann.
Miklar vonir bundnar við
samstarfið
Hann heldur áfram: „í blaðinu
„Fiskimaðurinn" birtist um jólin
heilsíðugrein um starf okkar þar
sem farið var yfir í hverju það
væri fólgið og þá forsögu sem að
baki því liggur. Það var ekkert
verið að liggja á því að miklar
vonir væru bundnar við þá þekk-
ingu og reynslu sem á að flytjast
hingað með veru okkar hér.
Einnig var fjallað um starf ann-
arra íslenskra fyrirtækja hér í
Petropavlovsk, meðal annars
byggingu og vígslu sundlaugarinn-
ar „Bláa lónið“ sem vígð var í
desember og hve mikils er um vert
í þeirra augum að sjá áþreifanleg-
an árangur af samstarfi við íslend-
inga.“
Fundur smábátafélagsins Bárunnar í Hafnarfirði
Eigendur krókabáta fái að
velja milli fiskveiðikerfa
FUNDUR Smábátafélagsins Bár-
unnar í Hafnarfirði beinir þeim ein-
dregnu tilmælum til sjávarútvegs-
nefndar Alþingis og ráðherra að
krókabátar fái að velja á milli nú-
verandi fiskveiðikerfis og svo ein-
göngu handfæraveiða með sömu
banndögum og voru á síðasta fisk-
veiðiári. Á fundi félagsins nú í jan-
úar kom fram sú skoðun fundar-
mannaað ekki þyrfti aflaþak á
handfærabáta vegna þess að engin
lína væri um borð sem væri talin
stórvirkara veiðarfæri.
Þá væri ljóst að krókabátar sem
eingöngu hefðu stundað handfæra-
veiðar undanfarin ár hefðu orðið
undir í baráttunni um afla. Aukið
aflamagn línubáta ætti aftur á
móti að bitna til jafns á króka- og
línubátum að mati ráðamanna.
Fundurinn hafnaði alfarið allri
kvótasetningu smábáta. Hann taldi
að offjölgun smábáta væri vanda-
mál stjórnvalda og tilkomið vegna
illa grundaðrar stefnu þeirra í mál-
efnum greinarinnar og vítaverðs
andvaraleysi.
í ályktun fundarins segir: „Því
er gerð sú krafa að stjórnvöld í sjáv-
arútvegi breyti sinni stefnu, án þess
að níðast á einstökum mönnum,
með því gerræði sem nú hefur opin-
berast.“
Loks hélt fundurinn því fram að
sjávarútvegsráðherra ætti að efast
um gildi fiskifræðinnar sem full-
þroska fræðigreinar og minnsta
kosti ekki fálma í blindni eftir henn-
ar forskriftum, sér í lagi þegar deilt
væri um afkomu hundruða smá-
bátaeigenda og fjölskyldna þeirra.
FRÉTTIR: EVRÓPA
Framkvæmdast] órnin
vill óháðan evrópsk-
an hergagnaiðnað
Brussel. Reuter.
FRAMKVÆMDASTJORN Evrópu-
sambandsins vill efla -evrópskan
hergagnaiðnað og sjá til þess að
Evrópa verði í auknum mæli sjálfri
sér nóg um varnarvopn um leið og
aðildarríki ESB taki upp sameigin-
lega varnarmálastefnu. Eitt mark-
mið framkvæmdastjórnarinnar er
að ESB-ríki verði ekki jafnháð
Bandaríkjunum og þau hafa verið
um vopn til að veija sig.
Martin Bangemann, sem fer með
iðnaðarmál í framkvæmdastjórn-
inni, sagði á blaðamannafundi að
nýrra aðferða væri þörf til að
tryggja að vopnaiðnaður ESB hefði
tæknilega getu til að styðja við
bakið á stefnumótun sambandsins
í utanríkis- og öryggismálum. „Ör-
yggismálastefnan er ekki jafntrú-
verðug ef við getum ekki framleitt
okkar eigin vopn,“ sagði Bange-
mann.
Framkvæmdastjórnin hefur í ár-
anna rás látið vopnaiðnaðinn af-
skiptalausan, þar sem grein 223 í
Rómarsáttmálanum veitir aðildar-
ríkjunum einum lögsögu yfir her-
gagnaframleiðslu og -viðskiptum.
Nú segir framkvæmdastjórnin hins
vegar að þessi grein hafi verið túlk-
uð of rúmt. Aðildarríkin verði að
fórna eigin stefnu varðandi her-
gagnaframleiðslu og vopnakaup í
þágu sameiningar kraftanna í evr-
ópskum vopnaiðnaði. Það sé for-
senda þess að atvinnugreinin sé
samkeppnishæf nú á tímum sí-
minnkandi útgjalda til varnarmála.
Mun koma niður á
bandarískum
hergagnaframleiðendum
Tillögur framkvæmdastjórnar-
innar munu eflaust verða teknar
óstinnt upp í Bandaríkjunum, þar
sem það mun augljóslega koma nið-
ur á markaðshlutdeild bandarískra
hergagnaframleiðenda, verði þeim
hrint í framkvæmd. í skýrslu fram-
kvæmdastjórnarinnar kemur fram
að á árunum 1988-1992 hafi ESB-
ríki aðeins keypt 3-4% af hefð-
bundnum vopnum sínum frá öðrum
aðildarríkjum. Hins vegar keyptu
þau vopn frá Bandaríkjunum fyrir
1.170 milljarða króna, en fluttu
aðeins út vopn fyrir andvirði 110
milljarða króna á móti. „Þið sjáið
að þetta er algert ójafnvægi," sagði
Bangemann.
Á meðal tillagna framkvæmda-
stjórnarinnar er að settar verði regl-
ur um að stórir vopnakaupasamn-
ingar verði boðnir út í öllum ESB-
ríkjum, í stað þess að ganga beint
til samninga við Bandaríkin eins
og oft hefur tíðkazt. Framkvæmda-
stjórnin telur að með þessu mætti
jafnframt ná fram umtalsverðum
sparnaði hjá heijum aðildarríkj-
anna.
EUROCOPTER er herþyrla, sem smíðuð er í samvinnu franskra
og þýskra flugvélaverksmiðja.
Reynt að sætta
Norðmenn og Svía
Brussel. Reuter.
TALSMAÐUR framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins segir að ná verði
samkomulagi við Norðmenn um að
þeir hverfi frá hækkun tolla á unnum
landbúnaðarafurðum áður en hægt
verði að ræða önnur mál, sem ágrein-
ingur er um milli Noregs og ESB.
Tollar á ýmsar vörur, s.s. morgun-
korn, súkkulaði og margvíslegar
fæðutegundir, voru hækkaðir í októ-
ber sl.
Franz Fischler, sem fer með land-
búnaðarmál í framkvæmdastjóm-
inni, átti á fímmtudag fund með
norska landbúnaðarráðherranum,
Gunhild Oyangen og sagði talsmaður
Fischlers að fundinum loknum að
þær hefðu verið gagnlegar.
Fischler hefur gefíð Norðmönnum
þriggja mánaða frest til að breyta
stefnu sinni.
Norðmenn settu á tollana í stað
viðskiptahindrana á borð við inn-
flutningskvóta er voru felldir úr gildi
með gildistöku nýs GATT-samkomu-
lags. Tollarnir hafa fyrst og fremst
bitnað á innflutningi frá Svíþjóð og
segir Jerzy Glucksman, landbúnaðar-
ráðunautur sendinefndar Svíþjóðar
hjá Evrópusambandinu, að tollar á
margar sænskar afurðir hafí hækkað
um 56% að meðaltali.
Svíar flytja út unnar landbúnað-
arafurðir til Noregs fyrir um fímmtán
milljarða íslenskra króna árlega.
Margareta Winberg, landbúnað-
arráðherra Svíþjóðar, hefur krafíst
þess að lausn þessa máls, auk deilu
Svía og Norðmanna um fískveiði-
heimildir, verði sett sem skilyrði fyr-
ir frekari viðræðum um landbúnaðar-
afurðaviðskipti.
Áform Norðmanna um að draga
úr fískveiðiheimildum Svía í lögsögu
sinni komu þó ekki til umræðu á
fundinum á fímmtudag.
Connolly rekinn
BRESKA hagfræðingnum Bern-
ard Connolly hefur verið sagt upp
stöðu sinni sem yfirmaður deildar
innan framkvæmdasljórnarinnar
er fer með peningamál.
Connolly gaf á síðasta ári út
bókina „Hinn rotni kjarni Evrópu"
þar sem hann ræðst harkalega að
áformum Evrópusambandsins um
efnahagslegan og peningalegan
samruna. Færði hann rök fyrir
því í bókinni að hætta væri á að
þessi áform leiddu til togstreitu
milli Frakklands og Þýskalands
er gætu endað með styrjöld.
Eftir útkomu bókarinnar var
Connolly samstundis sendur í
ótímabundið leyfi og nú hefur
Nickolaus van der Pas, aðaltals-
maður framkvæmdasljórnarinn-
ar, staðfest að Connolly muni ekki
snúa aftur til starfa.
V-
)
I
I
I
>
*
>
>
I
i
i
i
i
>
i
I
>