Morgunblaðið - 27.01.1996, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 1996 13
LANDIÐ
Morgunblaðið/Kristján
FUNDUR Halldórs Blöndals samgönguráðherra og þingmannanna Arnbjargar Sveinsdóttur og Egils
Jónssonar var vel sóttur og voru umræður fjörugar.
Halldór Blöndal samgönguráðherra á fundi á Vopnafirði
Betri áranffur en áður
í sögu lýðveldisins
„ÞAÐ ER skemmtilegt að
vera íslendingur um þess-
ar mundir, þvi ekki er
hægt annað en að viður-
kenna að okkur hefur tek-
ist að ná mjög merkilegum
árangri í efnahags- og at-
vinnumálum og í raun
betri árangri en nokkru
sinni áður í sögu lýðveldis-
ins,“ sagði Halldór Blönd-
al, samgönguráðherra í
framsögu sinni á opnum
fundi á Vopnafirði sl. fimmtudags-
kvöld. Með ráðherra í för voru þing-
menn Sjálfstæðisflokksins á Austur-
landi, Egill Jónsson og Arnbjörg
Sveinsdóttir. Fundurinn var vel sótt-
ur og voru umræður líflegar.
Halldór sagði að tekist hefði að
ná efnahagslegum jöfnuði og á síð-
ustu árum hefur verðbólga hér á
landi verið minni en í nálægum lönd-
um. „Okkur hefur tekist að styrkja
innviði atvinnulífsins, bæði með því
að breyta skattalögum, svo að jafn-
vel Vinnuveitendasambandið viður-
kennir að skattalegt umhverfi sé
ekki verra hér í löndunum í kringum
okkur og eins er gengisskráningin
mjög hagstæð. Þetta þýðir að at-
vinnureksturinn stendur betur en
ella. Sjávarútvegurinn í heild sinni
er rekinn með nokkrum hagnaði, þó
einstakar greinar hans standi betur
en aðrar. Hins vegar eru erfiðleikar
í botnfiskvinnlsunni og ég man held-
ur ekki eftir því að allar greinar sjáv-
arútvegsins hafi á sama tíma verið
reknar með hagnaði.“
Framkvæmdir í Hofsárdal
kosta um 600 milljónir
Þingmenn Norðurlands eystra og
Austurlands hafa átt erfitt með að
fóta sig á því hvemig eigi að tengja
byggðarlögin saman að sögn Hall-
dórs. Hann segir að verði fyrir valinu
að fara í framkvæmdir eftir endilöng-
um Hofsárdalnum, muni það kosta
um 600 milljónir króna og svipaða
upphæð kostar að byggja upp Tjör-
nesveginn.
„Ég tel óhjákvæmilegt annað en
að leita eftir samstöðu um það með-
al þingmanna úr öðrum kjördæmum
að gerð verði áætlun um það hvernig
þessi samgöngulega einangrun hér
verði rofin.“
Halldór ræddi einnig möguleikana
í ferðaþjónustu og hvernig hægt
væri að nýta þetta einstaka og fjöl-
breytta svæði í náttúru landsins. „Ég
tel að sveitarfélögin fyrir norðan og
austan eigi að taka höndum saman
um gæslu alls landsins norðan
Vatnajökuls. Hér er nóg af fólki sem
hefur þekkingu á því hvernig eigi
að standa að landgæslunni og fólk
sem er reiðubúið að leggja mikið á
sig til að þessi landssvæði megi nýt-
ast til ferðaþjónustu og hjálpa til að
fólk nái sómasamlegum lífskjörum
með fjölbreytilegri hætti en áður.“
Sigríður Sveinsdóttir, formaður
menningarmálanefndar Vopnafjarð-
ar, sem einnig hefur komið að ferða-
málum, sagði að þýskir ferðamenn
sem voru á ferð um Norðausturland
um áramótin, hafi verið áhugasam-
astir um sögu þjóðarinnar og atvinnu-
mál. Þeir hafí fengið að kynnast öllum
helstu þáttum sjávarútvegs og land-
búnaðar og verið svo ánægðir með
heimsóknina að von er á þeim öllum
aftur. „Þannig að við getum líka far-
ið að gera út á mannlífíð og atvinnu-
málin en ekki bara náttúruna - og
það skildi þó ekki vera að hægt yrði
að selja aðgang að loðnuverksmiðj-
unni á Þórshöfn," sagði Sigríður.
Vegur yfir Mývatns- og
Möðrudalsöræfi
Fundarmenn höfðu ýmsar skoðan-
ir á samgöngumálum héraðsins.
Hvaða framkvæmdir væru mest að-
kallandi og hvernig ætti að tengja
byggðarlagið við hringveginn.
Egill Jónsson, alþingismaður,
sagði að menn hafí haft uppi ýmis
sjónarmið varðandi samgöngumálin
og þingmenn kjördæmisins ekki alit-
af verið sammála um hvað ætti að
gera. „Nú hefur það hins vegar gerst
að við afgreiðslu síðustu vegaáætlun-
ar var samþykkt að leggja veg yfír
Mývatns- og Möðrudalsöræfi og jafn-
framt samþykkt að þessi vegur skildi
fjármagnaður með þeim lið í vega-
áætlun sem kallast stórverkefni. Það
þýðir að 2/3 fjárhæðarinnar eru
teknir af óskiptu vegafé og 1/3 af
fjármagni kjördæmisins. Þegar búið
að verður að fara í þessa fram-
kvæmd, ætti að koma að sjálfu sér
að frá Vopnafirði kæmi tengivegur
inn á hringveginn. Þá verði jafnframt
kannað vel hvort Hofsárdalurinn er
þá ekki besti kosturinn," sagði Egill.
Engin lausn að fella gengið
Sjávarútvegsmálin voru einnig til
umræðu og Friðik Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Tanga sagði að
staða botnfiskvinnslunnar væri mjög
slæm og röng gengisskráning hefði
þar mikil áhrif. Hann nefndi sem
dærm að samkvæmt útreikningum
frá Islenskum sjávarafurðum hf.
hefðu seljendur ÍS fengið 500 millj-
'ónum meira fyrir afurðir sínar á síð-
asta ári, hefðu þær verið seldar á
meðalgengi ársins 1993. En IS seldi
sjávarafurðir fyrir um 15 milljarða
króna á síðasta ári að sögn
Friðriks.
„Ég hef talað við nokkuð
marga ráðamenn um þessi mál
og það er eins og menn hafí
bundist samtökum um að það
gengi sem við höfum í dag,
sé einmitt rétta gengið og allt
annað sé rangt. Ég'trúi þessu
ekki,“ sagði Friðrik.
Halldór sagði að raungengi
krónunnar hafi lækkað um
0,4% á síðasta ári og sam-
kvæmt endurskoðari þjóðhagsspá sé
gert ráð fyrir að gengi krónunnar
hækki aftur um 0,4% á þessu ári.
Hann taldi enga lausn nú að fella
gengið og launþegarhreyfingin
myndi aldrei sætta sig við géngisfell-
ingu. „Eftir að þjóðin er búin að
þola kjararýrnun ár eftir ár á þá að
fella gengið um leið og fer að birta
til? Nei, það er engin lausn og við
verðum að fínna önnur úrræði til að
jafna tekjuskiptinguna í sjávarútveg-
inurn," sagði Halldór.
Lægri atvinnuleysistölur en
mörg undanfarin ár
Atvinnuleysi hefur verið mikið
undanfarin ár og Halldór sagði það
rétt að menn hafi haft áhyggjur af
því. „Samkvæmt ítarlegri könnun
Hagstofunnar urn það hversu margir
eru starfandi í landinu, kemur fram
að í apríl ’91 voru þeir um 136.600
og fjölgaði aðejns um 600 fram í
nóvember ’94. Ári seinna eða í nóv-
ember á sl. ári voru 143.700 manns
starfandi í landinu. Þetta er stórt og
mikið stökk og sýnir að þeim hefur
fjölgáð verulega hér á landi sem eru
í launaðri vinnu. Til viðbótar hefur
atvinnulausum fækkað og við erum
nú að sjá lægri tölur en morg undan-
farin ár.“
Yfirfærsla grunnskólans
framfaraspor
Yfírfærsla grunnskólans til sveit-
arfélaga sem fyrirhuguð er þann 1.
ágúst nk. var einnig rædd á fund-
inum. Arnbjörg Sveinsdóttir, alþing-
ismaður, sagðist ekki hafa t.rú á öðru
en að sú tímasetning stæðist. „Það
er í gangi mikil umræða um réttinda-
mál kennara og er það mál sem
menn hafa helst hnotið um. Skipting
fjármagns hefur einnig verið til um-
ræðu og þá hversu hátt hlutfall af
staðgreiðslu skatta rennur til sveitar-
félaga og eins hvernig staðið verður
að greiðslu úr jöfnunarsjóði sveitar-
félaga."
Arnbjörg segir það sína skoðun
að þessi breyting verði til þess að
styrkja sveitarfélögin og um leið
menntakerfið. Þetta gefí skólunum
ýmsa möguleika, þeir verði sjálfstæð-
ari og eigi þar af leiðandi betri mögu-
leika á að byggja upp sína mennta-
stefnu. „Ég hef þá trú að þetta sé
mikið framfaraspor og verði að veru-
leika þann 1. ágúst.“
O jS'
'96
Allar rekstrarvörur
á mögnuðu
innkaupsverðl
- fyrir einstaklinga, félög og fyrirtæki. Allt að
50% sparnaður á innkaupum í magni.
Hewlett-Packard dufthylki (toner)
Allar gerðir HP dufhylkja
(toner) í geislaprentara með
20% afslætti og uppítaka
á notuðum
hylkjum á kr.
fyrir verslanir
Kassarúllur
Kassarúllur 70 mm á kr.
Faxpappír
30 metra faxpappír kr.
50 metrar á kr. 250,-
IJósritunarpappír
A4 hvítur Ijósritunar- jm
pappír, 500 blöð, kr. Bf |
67
195
Mýs og
Mottur
Hin vandaða mús
Mouse-Man frá
Logitech (blá eða
svört) á aðeins kr.
4.900
Músamottur (rauðar
eða bláar) á aðeins kr.
95
URVAL GEISLA- BLEK- OG NALAPRENTARA
Hewlett
Packard
glærur
50 blaða kassi af
Hewlett-Packard
glærum fyrir
bleksprautu-
prentara á
einstöku tilboði
aðeins kr.
5.690
fyrir skrifstofur
Hewlett-Packard
blekhylki
• Svart HP blekhylki í alla HP DeskJet
prentaralínuna
á aðeins kr.
• Litablekhylki í alla HP DeskJet
prentaralínuna
á aðeins kr.
2Æ90
3.150
Tökum notuð HP blekhylki uppí ný á
fyrir tölvunotendur
• II
TOLVU- OG PRENTARABORÐ I URVALI
Afritunarstöðvar
og segulbönd
800 MB Colorado innb. afritunar-
“‘"23300
DC 2190 SONY 90 metra segul-
band, 2-4GB
á aðeins kr.
DC2120 SONY segulband,
120 MB, ^ ■flcm
á aöeins kr. 1 ■ I
800 MB Colorado segulband, '
á aðeins kr. 2.990
Oryggislæsingar
og keðjur
Mikið úrval öryggisbúnaðar fyrir
fis- og borðtölvur. Driflæsingar,
keðjur, skjávernd og margt fieira.
Verð frá kr.
Disklingar
BULK Quality 3.5” 1.44 MB
disklingar, 10 stk í pakka,
áaðeinskr. *%^%^\
oou
fyrir iðnaðinn
• Kfl
Avery límmiðar
Mikið úrval Avery límmiða
fyrir geisla- og bleksprautu-
prentara með 20% afslætti.
1.690
fyrir sjávarútveginn
Innkaupadagar Tæknivals standa aðeins til janúarloka. Öll verð eru
staðgreiðsluverð með VSK. Áskilinn er réttur til verðbreytinga.
Opið alla laugardag
frá 10,00 til 16,00
Hátækni til framfara
Tæknival
Skeifunni 17 • Sími 568-1665 • Fax 568-0664