Morgunblaðið - 27.01.1996, Side 1
72 SIÐUR LESBOK/C/D
22. TBL. 84. ÁRG.
LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Suður-
skautíð
breytist
London. The Daily Telegraph.
ÝMSIR vísindamenn telja,
að hlýnandi veðurfar eða
gróðurhúsaáhrifin svoköll-
uðu hafi valdið því, að fimm
miklar ísbreiður eða hafþök
við suðurheimskautið hafa
brotnað sundur á siðustu 50
árum. Vegna þessa hafa út-
línur þessa meginlands
breyst mikið enda náði ísinn
yfir svæði á stærð við Kýp-
ur.
David Vaughan og dr.
Chris Doake við bresku suð-
urskautsstofnunina í Cam-
bridge segja frá þessu í vís-
indatímaritinu Nature, en
fyrir skömmu kom út
skýrsla á vegum Sameinuðu
þjóðanna þar sem segir, að
liklega eigi umsvif mann-
anna mikinn þátt í loftslags-
breytingunum.
„Það leynir sér ekki, að
hér er um ákveðna þróun
að ræða og bendir til, að
aukinn lofthiti sé farinn að
liafa áhrif,“ sagði Vaughan.
Breytingarnar hafa aðeins
átt sér stað þar sem lofthiti
er mestur við suðurskautið.
Spáði rétt
Síðasta dæmið um þetta
er Larsen-íshellan, sem
brotnaði upp í febrúar sl.,
en bandarískur jarðfræð-
ingur, John Mercer, sagði
fyrir um það árið 1978.
Mercer spáði því líka, að
þiðnaði ísinn við vesturhluta
suðurskautsins myndi það
valda því, að sjávarborð
hækkaði um fimm metra.
Vaughan segir, að sú verði
þó ekki raunin því ísinn ryðji
frá sér sjó, sem svari til
rúmtaksins. Sjávarborð
hækki því lítið þótt hann
bráðni en öðru máli gegndi
ef ísheilan á sjálfu suður-
skautslandinu bráðnaði.
Eldflaug-
um skotið í
Kashmír
Islmnab.'id. Rcutcr.
TALSMAÐUR varnarmálaráðu-
neytisins í Pakistan sagði að 18
menn hefðu týnt lífi og 20 slasast
er indverski herinn hefði skotið
tveimur eldflaugum á mosku í þorp-
inu Kahut.a í þeim hluta Kashmír
sem Pakistan hefur á valdi sínu.
Eldflaugaárásin var sögð hafa
átt sér stað meðan á hádegisbænum
stóð í moskunni. Onnur flaugin mun
hafa hæft moskuna og hin komið
niður á markaði við hlið hennar og
splundrast þar.
Af hálfu indverskra stjórnvalda
var ekki minnst á atburðinn í gær.
NATO til
verndar í
A-Slavoníu
Forsetafrúin ætlaði að
segja allt sem hún vissi
Washington. Reuter.
HILLARY Clinton forsetafrú
Bandaríkjanna bar í gær vitni fyrir
alríkisdómstól í Washington vegna
rannsóknar á Whitewater-málinu.
Er það í fyrsta sinn sem bandarísk
forsetafrú ber vitni við réttarrann-
sókn á meintu sakamáli.
Forsetafrúin sat fyrir svörum í
rúmar fjórar klukkustundir og var
spurð í þaula af allt að 24 dómur-
um. Var hún enn í dómhúsinu er
blaðið fór í prentun.
Óvenjumikil öryggisgæsla var
viðhöfð við dómhúsið sem er við
hlið þinghússins í Washington.
Fylgdist herskari fjölmiðlafólks með
er forsetafrúin kom brosandi og
yfirveguð til réttarins. Ávarpaði
hún fréttamennina fyrir vitnaleiðsl-
una og sagðist ætla að segja „allt
sem hún vissi“.
„Það er mér sönn ánægja að
svara spurningum alríkisdómstóls-
ins og mun segja allt sem ég veit
í þeirri von að það geti. orðið til
þess að auðvelda réttinum rannsókn
sína,“ sagði forestafrúin.
Stefnt sem vitni
Hillary Clinton var m.a. spurð
um hvernig á því stóð að skjöl, s.s.
reikningar hennar fyrir lögfræði-
störf í Arkansas-ríki fyrir áratug,
komu skyndilega í ljós í forsetaíbúð-
inni í Hvíta húsinu. Aðilar sem
vinna að rannsókn Whitewater-
málsins höfðu krafist gagnanna
með stefnu fyrir tveimur árum en
tilraunir til þess að hafa upp á þeim
reynst árangurslausar.
Forsetafrúin var sögð hafa haldið
því fram fyrir réttinum, að hún hafi
ekki haft neina hugmynd um skjöl-
in, hvarf þeirra eða fund.
Henni var einungis stefnt fyrir
réttinn sem vitni og hefur ekki verið
sökuð um að hafa brotið neitt af sér
í tengslum við Whitewater-málið.
Brussel. Reuter.
NORÐUR-Atlantshafsráðið sam-
þykkti í gær, að friðargæslusveitir
Atlantshafsbandalagsins (NATO) í
Bosníu muni veita sveitum Samein-
uðu þjóðanna í Austur-Slavoníu
hervernd.
Samþykkt var að NATO-sveitirn-
ar muni koma sveitum SÞ í Austur-
Slavoníu til hjálpar óski þær þess.
Lýtur það að aðstoð í bardögum
bæði á láði og úr lofti.
SÞ fer með yfirráð í A-Slavoníu
til bráðabirgða. Verður 5.000
manna her sendur þangað í því
skyni. Gert er ráð fyrir að sveitirn-
ar verði komnar til héraðsins í apríl
og verði þar í lengsta lagi í tvö ár.
Reuter
HERSKARI fjölmiðlafólks, blaða- og fréttamenn, Ijósmyndarar og kvikmyndatökumenn, biðu komu Hillary Clinton í dómhús alríkisdóm-
stólsins í Washington í gær. Forsetafrúin ávarpaði skarann og sagðist vonast til að geta hjálpað til við rannsókn Whitewater-málsins.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn óttast að hægt verði á umbótum
Hóta að fresta lán-
veitingn til Rússa
Washington. Reuter.
TALSMENN Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins, IMF,
hóta að fresta því að
veita Rússum láns-
ábyrgð er nemur níu
milljörðum Bandaríkja-
dollara, nær 600 millj-
örðum króna, nema
Borís N. Jeltsín forseti
og stjórn hans sýni og
sanni að áfram verði
haldið á braut efna-
hagsumbóta og aðhalds
í ríkisfjármálum. í frétt
Washington Post kem-
ur fram að Bandaríkja-
stjórn sé reiðubúin að styðja IMF í
þessum efnum.
Fyrir skömmu var Anatolíj
Tsjúbajs aðstoðarforsætisráðherra
að víkja en hann var síðasti ein-
dregni markaðshyggjumaðurinn í
ríkisstjórn Víktors
Tsjernomýrdíns forsæt-
isráðherra. Vegna
óánægjunnar með
breytt viðhorf í Moskvu
er nú talið ólíklegt að
tekin verði ákvörðun
um lánveitinguna á
stjórnarfundi IMF um
miðjan febrúar.
Jeltsín hefur stokkað
upp í stjórninni að und-
anförnu og hafa um-
bótasinnar og markaðs-
hyggjumenn vikið fyrir
mönnum sem taldir eru
hallir undir ráðamenn í gömlum stór-
fyrirtækjum. Þau eru mörg gjald-
þrota í reynd enda gengið illa að laga
sig að breyttum aðstæðum. Reyna
þau ákaft að fá aukna ríkisstyrki og
vernd fyrir samkeppni við innfluttar
vörur. Forsetinn fullyrti í gær að
umbótum yrði haldið áfram og sagði
aðspurður að „mikilvægustu manna-
breytingum" í stjórninni væri lokið.
Eftirlaun hækkuð
Fullvíst þykir nú að Jeltsín hyggi
á endurkjör í júní, hann tjáði rúss-
neska sjónvarpinu í gær að hann
væri búinn að ná sér alveg eftir
hjartaáfall í fyrra.
Jeltsín heitir að auka fjárframlög
til félagsmála en margir eiga um
sárt að binda vegna umskiptanna frá
miðstýrðum efnahag í markaðs-
búskap og einkarekstur.
Á fimmtudag ákvað Jeltsín að
stórhækka eftirlaun en kommúnistar
fengu mikinn stuðning hjá gömlu
fólki í þingkosningunum. Eftirlaun
eru svo lág að þau nægja ekki fyrir
lágmarksþörfum.
Borís Jeltsín
Rcuter
Snúningur
FRANSKA skautadrottningin
Surya Bonaly í snúningi á Evr-
ópumeistaramótinu i skautalist.
í dag kemur í ljós hvort hún
verður meistari sjötta árið í röð.
■ Rússar meistarar/D4