Morgunblaðið - 22.11.1986, Page 55

Morgunblaðið - 22.11.1986, Page 55
MQRGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1986 55 Morgunblaðið/Þorkell Leikendur eru frá vinstri: Þórhildur Þöll Maack, Gísli Kæmested, Eiríkur Smári Sigurðsson og Sigurð- ur E. Gunnarsson. COSPER — Nú á ég bara eftir að taka mynd af andlitinu á þér. Mikið var um dýrðir s.l. sunnudag hjá Haraldi Böð- varssyni & co h/f á Akranesi, en fyrirtækið hélt hátíðlegt 80 ára afmæli sitt, sem reyndar var ekki fyrr en daginn eftir, hinn 17. nóvember. Fyrirtækið hafði opið hús og kom fjöldi fólks, bæði starfsmenn og aðrir velunn- arar þess, nutu veitinga og skoðuðu fyrirtækið, sem að und- anförau hefur verið f gagngerri enduraýjun, bæði hús, tækjabún- aður og skip. Óhætt er að full- yrða að eftir þessar breytingar sé fyrirtækið eitt glæsilegasta og fuUkomnasta fiskvinnslufyr- irtæki landsins. I tilefni þessara tímamóta tók fyrirtækið í notkun nýja aðstöðu fyrir starfsmenn, en í henni er afar vistleg kaffístofa, böð og snyrting, og er gert ráð fyrir að síðar verði þar gufuböð og fleira. Haraldur Sturlaugsson bauð gesti velkomna með ávarpi, en síðan kvöddu margir sér hljóðs og árnuðu fyrirtækini^ heilla á merkum tíma- mótum. Auk þess barst fyrirtækinu mikill fjöldi gjafa og heillaóska víðsvegar að. í afmælisfagnaðinum var frum- sýnt myndband, sem fyrirtækið lét gera, en í því er lýst í máli og myndurn 80 ára uppbyggingu fyrir- tækisins. Fylgst er með veiðum og verkun afla um borð um borð í skipum og í fískvinnslustöðvum fyr- irtækisins nú á þessu ári. Þá völdu myndir úr starfsemi fyrirtækisins sérstaka athygli, en þeim hefur verið haganlega fyrirkomið á veggj- um fyrirtækisins. Alls er talið að um 700 manns hafi heimsótt fyrirtækið þennan sunnudagseftirmiðdag. J.G. Fyrir fólk sem vill aðeins það besta Fyrir nokkrum árum var stofnað fyrirtækið íslenskir eðalvagnar og stóð það fyrir innflutningi glæsi- bifreiða af gerðinni RoIIs Royce. Eitthvað voru íslendingar þó treg- ari til drossíukaupanna en forráða- menn fyrirtækisins höfðu talið og fór því svo að þær voru seldar til Bandaríkjanna. Nú er hins vegar fundin lausn fyrir aðdáendur RoIIs Royce, sem annað hvort hafa ekki efni á slíkri bifreið eða of spéhræddir til þess að aka um í henni. Þetta úr er framleitt af úrsmið í Vestur-Berlín og er 18 karata gull í því. Hætt er þó við að mörgum þyki úrið litlu ódýrara en bíllinn, að minnsta kosti ef miðað er við fyrirferð, því úrið kostar hátt á hundrað þúsund krónur. Eldridansaklúbburinn Elding DansaA í Fétogshalmili HrayfUa I kvSM kl. 9-2. Hljömswatt J6ns Slgurös- sonar og söngvarinn Jón Kr. Ólafsson. Aðgöngumiðar i síma 685520 æftirkl. 18.00. Allt í veisluna Kjörorð okkar er: Góða veislu gjöra skal . . . YEISIAJ-ELDHÚSIÐ Álfheimum 74, Glæsibæ. Sími: 686220 kl. 13—17. KALT BORÐ HEITT BORÐ KÖKUBORÐ Á veisluborðið: Roast beef Graflax Hambogarhryggur Reyktur lax Grísasteik Síldarréttir Lambasteik Salöt Hangikjöt Sósur Nýr lax Brauð, smjör, smurt brauð, snittur, pinnamatur, kjöt, fiskur, ostar. Rjómatertur, marsípantertur, kransakökur. Sendum mat í fyrirtæki og leigjum út sali VEISLUELDHÚSIÐ Glæsibæ, sími 686220

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.