Morgunblaðið - 22.11.1986, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 22.11.1986, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1986 37 Hafnarstj órn telur allar aðstæður hin- ar ákjósanlegustu HAFNARSTJÓRN Akurejnrar hefur skipað fimm manna nefnd til að kanna möguleika á stofnun og starfrækslu fiskmarkaðar á Akureyri. Nefndin á að hraða störfum sem kostur er og skila áliti til hafnarstjórnar fyrir 31. janúar á næsta ári. I nefndinni eru Gunnar Arason formaður hafnarstjórnar, Sigurður Oddsson hafnarstjórnarmaður, Gunnlaugur Guðmundsson hafnar- stjómarmaður, Guðmundur Sigur- bjömsson hafnarstjóri og Sigfús Jónsson bæjarstjóri. Nefndarmenn vom í Reykjavík og Hafnarfirði fyrr í vikunni þar sem þeir ræddu við forsvarsmenn þessara mála þar en á báðum stöð- unum hefur verið ákveðið að. opna fiskmarkaði. „Við ræddum við Gunnlaug Sigmundsson, formann ráðherranefndar um fiskmarkaði. Nefndin var skipuð til að kanna þessi mál og leita eftir því hvort aðilar væm tilbúnir í að leggja fé í stofnun tilraunamarkaðar. Við þurfum að kanna hvað mælir með þessu og hvað á móti og áður en við komumst að því þurfum við að ræða við alla hagsmunaaðila," sagði Guðmundur Sigurbjömsson, hafn- arstjóri á Akureyri, í samtali við Morgunblaðið í gær. Guðmundur sagði hafnarstjóm telja aðstöðuna fyrir fiskmarkað góða á Akureyri, miðað við það sem ráðherranefndin teldi nauðsynlegt. Tuminn fjarlægður. Klukkuturninn kominn á Torgið KLUKKUTURNINN sem Kiw- anis-menn settu upp í göngu- götunni fyrr i sumar hefur nú verið færður. Upphaflega var hann settur upp í miðja göngu- götuna fyrir framan Pósthúsið en eitthvað kunnu menn því illa að hafa hann þar. Fyrir fáeinum dögunum var tuminn tekinn af stalli sínum og fljótlega var búið að laga staðinn þar sem hann stóð svo nú sér þess engin merki að hann hafí nokkum tíma staðið þar. Stallur var hins vegar settur niður í norð-austur homi Ráðhústorgs og þar var tuminn settur niður í gær. Starfsmenn Akureyrar- bæjar voru einmitt að hífa hann niður af vömbíl á sinn stað þeg- ar blaðamaður kom aðvífandi. þarna verður tuminn í einhvem tíma - en þeir sem verkið unnu í gær reiknuðu alveg eins með því að hann yrði færður eitthvað örlítið til þegar fram í sækti og Torgið yrði lagfært, en hug- myndir eru uppi þar að lútandi. Klukka er ekki enn komin í tum- „í dag emm við að vísu ekki með hús á hafnarbakkanum en við emm heldur ekki að fara af stað með þetta í fyrramálið," sagði hann. „Það sem við emm fyrst og fremst að gera er að gera okkur grein fyrir því hvemig við þurfum að bæta aðstöðuna til að koma upp slíkum markaði, hveijir yrðu hugs- anlegir aðilar að honum og hvaða fiskmagn yrði um að ræða hér.“ í greinargerð hafnarstjórnar um hugsanlegan fiskmarkað sem send var bæjarstjóm á dögunum segir: „Hafnarstjóm telur að á Akureyri séu allar aðstæður hinar ákjósanle- gustu varðandi stofnun og rekstur slíks markaðar. Hér er miðpunktur samgangna á Norðurlandi, hvot heldur er í lofti, á landi eða á sjó og má reikna með að allir þessir samgöngumöguleikar verði nýttir í tengslum við markaðinn." Þess má geta að hafínn er undir- búningur nýrrar fiskihafnar norðan Togarabryggjunnar og hefur hafn- arstjóm lagt til á framkvæmdaá- ætlun að 1. áfangi hennar verði byggður á næsta ári. I greinargerð- inni segir: „Með byggingu þessarar hafnar skapast mjög miklir mögu- leikar til fjölbreyttrar starfsemi í sjávarútvegi og fískvinnslu í tengsl- um við höfnina. Kjallari Sjallans opnar í dag: Fólk virðist í sjokki yfir lokuninni - sagði Olafur Laufdal í gær ÓLAFUR Laufdal, veitingamað- ur, hefur keypt Sjallann, eins og kom fram í Morgunblaðinu í gær. Ólafur kom til Akureyrar í gær til að ganga endanlega frá formsatriðum varðandi kaupin og líta á Sjallann. í samtali við blaðamann sagði Ólafur að Kjall- arinn yrði opnaður strax í dag og húsið sjálft næsta fimmtudag. Um næstu helgi verður opið fímmtudags-, föstudags-, laugar- dags- og sunnudagskvöld. Þá skemmta í Sjallanum Liberty Moun- tain og hljómsveitin Desoto - verða með hina svokölluðu Elvis-sýningu en Liberty Mountain þessi syngur lög gamla rokkkóngsins og hermir eftir honum. Ólafur sagði einnig að Ríó-tríóið kæmi mjög fljótlega með sitt atriði í Sjallann, jafnvel um þamæstu helgi. Ólafur mun fyrst í stað sjálfur stjóma rekstri Sjallans. „Ég ætla að byija að ráða fólk til starfa strax á morgun,“ sagði hann. Flest starfs- fólkið verður ekki það sama og áður. „Mér fínnst það eðlilegt þegar breyta á staðnum að byija ekki með sama fólkið og var hér áður. Ég hef ekkert út á það að setja en til að fá þann ferskleika sem ég vil fá í húsið verður að skipta um starfsfólk að mestu leyti.“ v Ólafur sagði að sér litist vel á að taka við Sjallanum. „Þetta er dæmi sem á að ganga upp. Ég gerði mér ekki almennilega grein fyrir því fyrr en kom hingað í dag hve mikið mál það er fyrir fólkið í bænum að Sjallinn sé opinn. Á öll- um þeim stöðum sem ég hef komið í dag hefur mér fundist fólk í hálf- gerðu sjokki út af þessu!“ Söngfélagið Gígjan hætt störfum: Eins og sjá má er styttan af þeim hjónum mjög illa farin af steypuskemmdum. Helgi ogÞórunn innandyra í vetur EITT af táknum Akureyrar- bæjar er styttan af Helga Magra og Þórunni Hyrnu konu hans á klöppinni neðan við lög- reglustöðina. Komið hefur í ljós að styttan er mjög illa farin og hefur nú verið ákveðið að taka hana til gagngerrar lagfæring- ar. Helgi Magri var sem kunnugt er landnámsmaður í Eyjafirði - nam land í Kristnesi. Eftir þeim hjónakomunum eru nefndar tvær götur á Akureyri - og standa þær einmitt báðar spölkom frá þeim stað þar sem þau standa og líta inn fjörðinn. Hér er átt við Helga- magrastræti og Þórunnarstræti. En hvað sem því líður þá em steypuskemmdir miklar í stytt- unni. Ákveðið hefur verið að taka hana niður af stalli sínum - færa hana í hús og þurrka hana upp í vetur. Hún verður geymd í húsa- kynnum Hitaveitu Akureyrar. Víldum ekkí lenda í sama farvegi og karlakórarnir -þeir virðast ekki sjá hvert stefnir og hafa ekki smekk til að þagna, segir formaður Gígjunnar SÖNGFÉLAGIÐ Gigjan á Akureyri hefur ákveðið að hætta störfum og slíta félagsskapnum formlega. Þetta kemur fram i nýjasta frétta- bréfi MENOR, Menningarsamtaka Norðlendinga. í bréfi frá Gígjunni til MENOR, því varð kórstarfíð óhjákvæmilega og birt er í fréttabréfinu, segir: „Eftir síðustu tónleika vorið 1984, sem jafnframt vom kveðjutónleikar Jakobs Tryggvasonar, var ákveðið að láta kórinn taka sér hvíld til að gera upp hug sinn hvað framtíðina varðaði. Á undanfömum ámm hefur reynst æ erfiðara að halda kórnum starfandi á þann hjjtt sem við vild- um. Ymislegt var þar til og má þar einna helst nefna aukna útivinnu kórfélaga. Þegar Gígjan var stofnuð 1967 var aðaluppistaðan húsmæður og vom þær þá miklu færri sem unnu utan heimilis, en nú var svo komið að við vomm allar, hver ein- asta, meira og minna útivinnandi og þar af leiðandi í tvöfaldri vinnu, útundan að einhveiju leyti. Einnig reyndist erfítt að fá ungar og áhug- asamar konur til starfa í þeim mæli sem þarf til að eðlileg og nauðsynleg endumýjun geti forðað stöðnum. Gígjan var kór sem hafði skapað sér gæðastimpil og honum vildum við halda. Þessi ákvöðun var því tekin að vendilega yfírveguðu máli til að forða kómum okkar frá því að lenda í sama farvegi og karla- kóramir hafa verið í nokkuð lengi og em því að veslast upp af því þeir virðast ekki sjá eða vilja ekki sjá hvert stefnir og hafa þar af leið- andi ekki smekk til að þagna. Hvert stefnir í söngmálum hér í bæ er svo aftur annað mál. Væri það kannske ekki verkefni fyrir MENOR að koma af stað umræðum um það. Karlakóramir em eins og ég hef minnst á áður nánast óstarf- hæfir, hvað svo sem þeir gera, Passíukórinn á í verulegum erfíð- leikum vegna karlraddaleysis og mér er kunnugt um að kór Akur- eyrarkirkju leitar eftir röddum, ekki hvað síst karla, til að geta tekist á við stærri verkefni, og ég hef heyrt að kór Lögmannshlíðarkirkju hefði þegið fleiri félaga. Mitt álit er, að hér ættu að geta starfað einn góður karlakór og annar blandaður fyrir utan vel skipaða kirkjukórana. Það vantar að virkja unga fólkið og vekja áhuga þess en það verður ekki gert meðan allt hjakkar áfram í þessu ma staðnaða fari. Min reynsla er sú að manneskjan finni sér alltaf tíma til að gera það sem hún hefur virkilega áhuga á og ég trúi ekki öðm en að nægjanlegir söngkraftar séu til í bænum og sannarlega væri gaman að geta einu sinni enn orðið vitni að kröft- ugri uppbyggingu." Þetta var meginhluti bréfsins, sem Gunnfríður Hreiðarsdóttir formaður Gígjunnar, skrifaði. Haukur Ágústsson, formaður ME- NOR, ræðir skrif Gunnfríðar örlftið í fréttabréfinu. Þar segir hann m.a. að það sé harmsefni hvers vegna Gígjan hafí hætt störfum. Hann segir ennfremur: „Þessi atriði hafa verið rædd mikið á meðal þeirra, sem félagslífí unna og vilja veg þess mikinn... Félagar MENOR geta ekki og hafa ekki leitt þessa umræðu hjá sér. En sem forvígis- menn lista og menningar á Norður- landi mega þeir ekki láta sér duga að ræða vandann. Þeir verða að takast á við hann jafnt í orði sem verki."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.