Morgunblaðið - 22.11.1986, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 22.11.1986, Blaðsíða 4
4 MOKGUNBLAÐIÐ; LAUGARDAGUR 22: NÓVEMBER 1986 Ungfrú Holly- wood krýnd í Broadway GUÐLAUG Jónsdóttir, nemandi f Menntaskólanum í Reykjavík, var kjörin Ungfú Hollywood, fulltrúi ungu kynslóðarinnar, i veitingahúsinu Broadway í fyrrakvöld. Einnig var kjörin sérstök sólarstúlka Pólaris og var hún Svava Sigurjónsdóttir. Fjölmenni var við krýninguna og meðal annarra atriða voru tískusýn- ing, danssýning á vegum Dansstúd- íós Sóleyar, Elvis-herman Liberty Mounten kom fram. Guðlaug fékk m.a. bíl að verð- launum, en allar fengu stúlkumar gjafir góðar og fara allar í boði Pólaris til Ibiza næsta sumar. Fremstar sitja þær stöUur Guð- laug Jónsdóttir og Svava Sigur- jónsdóttir, en að baki þeirra eru frá vinstri: Sigríður Sigurðar- dóttir, Jónheiður Steindórsdótt- ir, Guðríður Sverrisdóttir, sem var kjörin „Hollywood spes“, Anna Brynja Sigurgeirsdóttir, Ingibjörg Kaldalóns og Björk Jakobsdóttir. Morgunblaðið/Einar F I/EÐURHORFUR í DAG: YFIRLfT á hádegi í gær: Um 800 kílómetra suðsuðvestan af Vest- mannaeyjum er víðáttumikil 954 millibara lægð sem þokast austnorðaustur en 1010 millibara hæð er yfir Grænlandi. Heldur hlýnar í veðri í bili. SPÁ: ( dag má búast viö austanátt og síðar norðaustanátt víðast hvar um landið. Strekkingsvindur. Víöa slydda eða snjóél um norð- an- og áustanvert landið en skýjað og úrkomulítið suðvestanlands. Hiti verður við frostmark. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: SUNNUDAGUR OG MÁNUDAGUR: Norðaustanátt og fremur kalt. Éljagangur á norðanverðu landinu, allt frá Vestfjörðum til Aust- fjaröa, en þurrt og víða léttskýjað fyrir sunnan. TÁKN: Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað A m Skýjað Jjj^ Alskýjað y. Norðan, 4 vindstig: ^ Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * 10 Hitastig: 10 gráður á Celsius y Skúrir * V El = Þoka = Þokumóða ’, ’ Súld OO Mistur -j- Skafrenningur Þrumuveður VEÐUR VIÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hlti veóur Akureyri —6 skýjaó fteykjavík -2 alskýjað Bergen 2 ekýjað Helsinki 4 rigning Jan Mayen -1 anjóól Kaupmannah. 6 akýjaó Narasarssuaq -13 léttskýjað Nuuk -9 léttskýjað Oaló -1 alskýjað Stokkhólmur 3 skýjsð Þórahöfn 1 skýjsð Algarve 18 skýjað Amsterdam 6 skúr Aþena 16 léttskýjað Barceiona 13 mlstur Berlin S þokuméða Chicago -1 þokumóða Glasgow -1 þoka Feneyjar 10 rignlng Frankfurt s skýjað Hamborg 8 skýjaö LaaPalmaa 21 léttskýjað London 6 skýjað LoaAngeles 18 mistur Lúxemborg 3 rigning Madrfd e þoka Malaga 18 skýjsð Mallorca 18 •kýjað Mleml vantar Montreal -4 snjókoma Nice 18 léttskýjað NewYork 7 alskýjað Parfs 9 hálfskýjað Róm 17 þokumóða Vln 4 þokumóða Washington 7 skýjsð Ljóðabók eftir Bolla Gústafsson BÓKAÚTGÁFA Menningarsjóðs hefur gefið út ljóðabók eftir séra Boila Gústavsson i Laufási. Nefn- ist hún Borðnautar og er prýdd 72 teikningum eftir Hring Jó- hannesson Iistmálara sem einnig gerði kápu og réði útliti bókar- innar. Á bókarkápu segir: „Kvæðin í Borðnautum skiptast í fimm meginkafla og markast efni þeirra nokkuð af fyrirsögnunum: Almanaksljóð, Veður hörð, Manna- myndir, Fljótið, Helgimyndir. Séra Bolli Gústavsson leikur hér á næsta ólíka strengi. Sum ljóðin eru fáorð og einföld, önnur bera svip af klerk- legri mælsku og táknrænni skynj- un. Öllum er þeim hins vegar sameiginlegt að þau bregða upp sérstæðum myndum sem vitna um hugkvæmni og nærfæmi. Mörg eru kvæðin sprottin úr persónulegri reynslu höfundar sem er frumlegur og víðsýnn í þessum blæbrigðaríku ljóðum. Teikningar Hrings Jóhannesson- ar listmálara í Borðnautum munu einnig sæta tíðindum. Þær eru ekki aðeins bókarskraut heldur og merkilegar hliðstæður ljóðanna. Er Bolli Gústafsson hér um að ræða einstaka samvinnu tveggja ágætra listamanna. Fyrri bækur séra Bolla Gústavs- sonar eru: Fjögur skáld í för með presti (1978), Ýmsar verða ævimar (1980), Vorganga í vind- hæringi (1982) og Litið út um ljóra (1985). Borðnautar eru 124 bls. að stærð. Bókin er unnin í Prentsmiðju Hafnarfjarðar. Osiðlegt athæfi við stúlkubörn TVÆR sjö ára telpur urðu fyrir áreitni manns við Kjarvalsstaði í gær. Telpumar voru á leið úr skóla skömmu eftir hádegi og ætluðu á skóladagheimilið við Auðarstræti. Þær gengu yfir Miklatún og þegar þær voru komnar að bflastæðinu við Kjarvalsstaði kallaði til þeirra maður í bláum bfl. Teipumar sögðu að hann hefði spurt þær hvað klukk- an væri, en síðan innt þær eftir því hvort þær vissu hvar hann kæmist á salemi. Að þeim orðum töluðum sýndi hann á sér kynfærin, en telp- umar hlupu á brott. Þegar þær komu á skóladagheimilið sögðu þær frá reynslu sinni, en þegar lögregl- an kom á staðinn var maðurinn á bak og burt. Starfsstúlka dagheimilisins sagði að þegar telpumar hafi sagt frá þessum atburði hafí tvær aðrar telp- ur sagt að þær hefðu orðið fyrir því sama nýlega. Hún sagði einnig að fyrir nokkrum árum hafí verið leitað á drengi á þessum sama stað. Drengjunum var boðið fé fyrir að komá inn í bifreið manns, en þeir þekktust ekki boðið. Fréttastjóri útvarps: Fjórir um- sækjendur FJÓRIR sóttu um stöðu frétta- stjóra ríkisútvarpsins, en staðan verður veitt frá og með áramót- um. Margrét Indriðadóttir lætur þá af störfum. Umsækjendur em: Kárí Jónas- son, Friðrik Páll Jónsson, Einar Öm Stefánsson og Stefán Jón Hafstein. Stefnt er að afgreiðslu á næsta fundi Útvarpsráðs.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.