Morgunblaðið - 22.11.1986, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 22.11.1986, Blaðsíða 63
Stjarnan var betri „ÉG er óánægður með mína menn, en Stjarnan var betri í leiknum og sigurinn var fyllilega sanngjarn," sagði Anton Basic, þjálfari Dinos Slovan að leik lokn- um. „Við vorum of sigurvissir fyrir leikinn og að mínu mati erum við með mun betra lið, en náðum ekki að sýna það í þessum leik. Ég óska Stjörnunni til hamingju með sigurinn og sérstaklega Páli Björg- vinssyni, þjálfara, sem var bestur í leiknum." Sigurfyrir íslenskan handknattleik „ÞAÐ er ekki hægt annað en vera ánægður. Við unnum þrjá hálf- leiki af fjórum, en reynsluleysi og klaufaskapur f fyrri hálfleik úti gerði gæfumuninn," sagði Páll Björgvinsson, þjálfari og leikmað- ur Stjörnunnar eftir leikinn. „Við erum með unga og reynslu- lausa stráka, en þeir hafa alla möguleika á að bæta sig enn meira. Þessi leikur var ekki aðeins sigur fyrir Stjörnuna, heldur enn einn sigurinn fyrir íslenskan hand- knattleik. Ég er stoltur af strákun- um, en þessari keppni er lokið. Við megum ekki láta sigurinn stíga okkur til höfuðs, heldur einbeita okkur að íslandsmótinu og halda áfram á sömu braut." Ánægður „ÉG er virkilega ánægður. Við sýndum að við getum staðið f og jafnvel unnið þá bestu og það er stór sigur út af fyrir sig að sigra lið frá Júgóslavíu," sagði Hannes Leifsson, fyrirliði Stjörnunnar. „Við bárum of mikla virðingu fyrir þeim úti, en núna vissum við hvernig ætti að spila á móti þeim og það gekk upp. Við erum ekki með mikla reynslu og þess vegna skipti sköpum að hafa leikmann eins og Pál Björgvinsson. Við náð- um toppleik og vonandi verður framhald á.“ UMFN vann UMFN vann Val 88:66 í úrvals- deildinni í körfuknattleik eftir að staðan í hálfleik hafði verið 51:37. Valur Ingimundarson skoraði 19 stig fyrir Njarðvík og Einar Ólafs- son skoraði einnig 19 stig fyrir Val. Guðmundurtil Beveren Guðmundur Torfason, Fram, skrifaði í gær undir lánssamning við S.K. Beveren f Belgfu. Samn- ingurinn gildir til 31. maí á næsta ári og fer Guðmundur út í næstu viku. ALOHA-mótið: Allirá 75 SVEIT GR stóð sig vel á Aloha- mótinu f gær, náði þriðja besta skori dagsins og er enn f 6. sæti. íslensku kylfingarnir léku allir á 75 höggum í gær og var skor sveit- arinnar því 150. Sveitin er með 462 högg, en þýska sveitin er í efsta sæti á 441 höggi. MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1986 Evrópukeppni bikarhafa í handknattleik: Frábær leikur hjá Stjörnunni en þriggja marka sigur gegn Dinos Slovan nægði ekki til að komast áfram STJARNAN, Garðabæ, gerði sór lítið fyrir f Laugardalshöllinni f gærkvöldi og sigraði júgóslav- neska liðið Dinos Slovan með þriggja marka mun í seinni leik liðanna í Evrópukeppni bikarhafa. Stjarnan hefur Ifklega aldrei leikið betur, 20:17 sigur var fyllilega verðskuldaður, en því miður tap- aði liðið fyrri leiknum með sjö marka mun og er þvf failið úr keppninni. En fallið er ekki hátt og ef leikmenn Stjörnunnar halda áfram að leika eins og þeir gerðu í gœrkvöldi, geta þeir litið björt- um augum til framtfðarinnar. Júgóslavnesku leikmennirnir fiýttu sér hægt í byrjun enda lá þeim ekkert á með sjö marka for- skot úr fyrri leiknum. Þeir skoruðu fyrsta mark leiksins, þegar tæp- lega fimm mínútur voru liðnar, en Páll Björgvinsson, þjálfari Stjörn- unnar og maður leiksins, jafnaði skömmu síðar. Liðin skiptust á að skora, en um miðjan hálfleikinn komst Stjarnan í fyrsta skipti yfir í leiknum, 4:3. Júgóslavarnir sneru vörn í sókn og náðu tveggja marka forystu, 5:7, en Stjörnumenn gáf- ust ekki upp, heidur efldust við mótlætið og voru yfir í hálfleik 10:9. Stjörnumenn komu mjög ákveðnir til leiks í seinni hálfleik og komust í 13:10. Liðið lék frá- bærlega í vörn sem sókn og Sigmar Þ. Óskarsson nær lokaði markinu. Aðeins herslumuninn vantaði, en leikmenn Stjörnunnar náðu ekki að nýta sér tækifærin sem gáfust til að auka forskotið enn meira. 14:11 þegar 17 mínútur voru eftir, 16:13 og tólf mínútur til leiksloka. Júgóslavnesku leikmennirnir náðu að minnka muninn niður í eitt mark, 17:16, en þa'tvíefldust Stjörnumenn, skoruöu tvö síðustu mörkin og unnu 20:17. Leikmenn Stjörnunnar léku allir vel, en enginn betur en Páll Björg- vinsson, sem átti stórleik. Hann stjórnaði varnarleiknum eins og hershöfðingi og var potturinn og pannan í sóknarleiknum. Páll skor- aði 7 mörk í tíu tilraunum. Hannes Leifsson og Gylfi Birgisson skor- uðu 4 mörk hvor, Sigurjón Guðmundsson og Skúli Gunn- steinsson 2 mörk hvor og Haf- steinn Bragason eitt mark. Guðmundur Oskarsson lék aðeins í vöminni og stóð sig vel. Sigmar Þ. Óskarsson varði alls 11 skot í leiknum og átti mikinn þátt í sigrin- um eins og allir leikmennirnir. sem léku sem ein heild. Hjá Dinos Slovan var Aleksand- er Vuga atkvæðamestur með 6 mörk. Peter Mahne skoraði 4 mörk, Tomaz Peternelj og Stanko Anderluh skoruðu tvö mörk hvor og Ales Praznik og Dinko Vuleta sitt hvort markið. S.G. • Gylfi Birgisson skoraði fjögur mörk í leiknum í gærkvöldi gegn Dinos Slovan og hér er eitt þeirra í uppsiglingu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.