Morgunblaðið - 22.11.1986, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 22.11.1986, Blaðsíða 19
BJARNI D./SlA MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1986 19 OSLO 86 að baki Frímerki Jón Aðalsteinn Jónsson í þætti 21. júní sl. var minnzt á norræna frímerkjasýningu, sem haldin yrði í Ósló 15.—19. okt. Var tiíefni sýningarinnar 100 ára afmæli elztu samtaka frímerkjasafnara í Noregi. Um- boðsmaður Islands á þessari sýningu, Ólafur N. Elíasson verkfræðingur, hefur látið mér í té ýmsar upplýsingar nú að sýningunni lokinni, og færi ég honum þakkir fyrir. Þegar OSLO 86 hófst, var rétt rúmur mánuður liðinn frá alheimssýningunni STOCK- HOLMLA 86, en frá henni hefur verið sagt áður. Þótti það þess vegna töluverð dirfska hjá Norðmönnum að halda þessa sýningu strax í kjölfar hinnar og þá einnig ekki síður vegna þess, að alheimssýning verður í Danmörku seint á næsta ári og svo aftur í Finnlandi sumar- ið 1988. Engu að síður tókst norskum söfnurum að halda ágæta sýningu. Var þátttaka góð eða um 1.100 rammar. Kom fram í umsögn dómnefndar, að sýningarefnið þótti almennt vera í háum gæðaflokki. Sýn- ingin fór fram í sýningarhöll, sem nefnist Sjelyst og er rétt frá miðborg Öslóar. Þess má geta, að alheimssýningin NOR- WEX 80 var einmitt haldin á sama stað árið 1980. Eins og venja er, var OSLO 86 skipt í nokkrar deildir. í heiðursdeild var Þjóðskjalasafni íslands boðin þátttaka. Safnið sýndi þama íslenzk þjónustu- bréf frá 1873 til 1902, og vakti það efni mikla athygli. Var það að vonum, því að sumt af bréf- unum hafði aldrei áður sézt á sýningu. Fékk Þjóðskjalasafnið gullpening sýningarinnar sem þakklætis- og viðurkenningar- vott fyrir þátttöku sína. í opinberri deild sýndi Póst- og símamálastofnunin íslenzk frímerki frá árunum 1960 til 1980. I áðurgreindum þætti í sumar var sagt, að fímm íslenzkir safnarar ætluðu að sýna í sam- keppnisdeild. Um lýsingu þessa efnis vísast til þess, sem þar var sagt. Hjalti Jóhannesson hlaut stórt silfur og auk þess heiðursverðlaun fyrir stimpla- safn sitt. Hygg ég það sann- gjaman dóm, því að Hjalti bætir safn sitt stöðugt milli sýninga. Sigurður P. Gestsson átti þama safn norskra pósthomsmerkja frá 1872—1908 í sjö römmum. Fékk hann silfur fyrir safn sitt. Verður ekki annað sagt en það hafí verið mjög góður árangur og ekki sízt fyrir það, að hér var það á sjálfum heimavelli norskra safnara, sem margir hveijir eiga frábær norsk söfn. Sigurður H. Þorsteinsson hlaut einnig silfur fyrir safn sitt af íslenzkum flugpósti. Guðmund- ur Ingimundarson hlaut silfrað brons fyrir Vestmannaeyjasafn OSI.O 8(. NOROISK FRIWERKEUrSTILLIN'O 15. ■ 1». OKTOBKR 1986 NORSK ARBEIOSUV II FRIMERKFTS DAG 1906 i Lfsil pi jítuftU* »> í>Wt<>X .'<'(<»> Ikk* Nr.'"«««:! 52 sitt og sömu verðlaun fékk Sig- urður Þormar fyrir brúar- stimpla sína. í bókmenntadeild vom rúm- lega 40 bækur, tímarit og verðlistar. Sigurður H. Þor- steinsson hlaut brons fyrir verðlista sinn íslenzk frímerki. Þá áttu tveir Norðurlandabú- ar íslenzk söfn á OSLO 86. Norðmaðurinn Harald Tysland sýndi ísland 1850—1903. Er safn hans orðið ótrúlega gott á fáum ámm, enda vom honum dæmd gullverðlaun fyrir og að auki heiðursverðlaun Óslóar- borgar. Svíinn Stig Osterberg fékk svo silfur fyrir safn af frímerkjum, umslögum og bréf- spjöldum úr seríunni Tveim kóngum. Þá vom íslenzk frímerki í ýmsum tegunda- eða mótífsöfnum. Nefnir Ólafur þar sérstaklega til safn Svíans Gunnars Dahlvig um sögu víkinganna og svo Danans Jarg- ens Jorgensen um fískveiðar, en í þeim báðum em mörg íslenzk frímerki, sem þar eiga heima. Hálfdan Helgason tækni- fræðingur sat í dómnefnd sýningarinnar og sýndi í deild dómara hluta af ágætu safni sínu af íslenzkum bréfspjöldum. Það er ánægjulegt, að ágætir íslenzkir frímerkjasafnarar hafa hér enn aukið hróður íslenzkrar frímerkjasöfnunar erlendis. Ætti slíkt að verða öðram hér heima hvatning til að feta í fótspor þeirra, enda er vitað, að margir eiga mjög góð söfn, sem mundu sóma sér vel á sýningum, hvort sem er hérlendis eða erlendis. En til þess að svo megi verða, þurfa þau að hljóta tilskilin verðlaun á íslenzkum sýningum. Nú er ákveðið, að landssýning verði í Reykjavík næsta sumar á veg- um Félags frímerkjasafnara í tengslum við þijátíu ára af- mæli þess. Hvet ég safnara eindregið til að taka þátt í þeirri sýningu og fá sofn sín dæmd. Eg er líka þeirrar skoðunar, að þátttaka í erlendum sýningum og þá fyrst og fremst á Norður- löndum geti orðið íslenzkri frímerkjasöfnun mikil lyfti- stöng, ef rétt er að staðið. Ákvörðunar um sérfram- boð ekki að vænta fyrr en í desember - segir Stefán Valgeirs- son alþingismaður „ÉG mun ekki taka ákvörðun um sérframboð fyrir mánaðarmót," sagði Stefán Valgeirsson alþing- ismaður í samtali við Morgun- blaðið. „Ég hef ekkert fylgst með því hvað er að gerast í kjördæm- inu í þesssum málum, en hinsveg- ar fer ég norður i lok nóvember og fæ þá fréttir um hvað menn eru að hugsa þar um slóðir." Stefán sagðist hafa orðið var við mjög góðar undirtektir varðandi hugsanlegt sérframboð sitt í Norð- urlandskjördæmi eystra. Erfítt væri þó að meta hversu margir stuðn- ingsmennimir kynnu að vera. „Það er sífellt verið að hafa samband við mig og skora á mig að fara út í sérframboð - jafnvel menn sem ekki vilja skrifa undir undirskriftal- istann, en vilja þó láta mig vita um stuðning sinn ef ég fari út í það færi,“ sagði Stefán. Fróóleikur og skemmtun fyrir háa sem lága! TROMPIÐ ER TRYGGING Pað er góð trygging í TROMP reikningnum, hann er verðtryggður, óbundinn og hefur auk þess grunnvexti. Þú getur alltaf lagt inn, alltaf tekið út. Vextir eru lagðir við höfuðstól 2var á ári. Treystu TROMP reikningnum, hann er góð trygging. TROMP reikningurinn er einungis í Sparisjóðnum. SPARISJÓÐIRNIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.