Morgunblaðið - 22.11.1986, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 22.11.1986, Blaðsíða 29
H29 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22.' NÓVEMBER 1986 Austur-Berlín: Skotið af vél- byssum á fióttamann Vestur-Berlín, AP., Reuter. AUSTUR-ÞÝZKIR lögreglumenn skutu af vélbyssum á mann, er flúði yfir Berlínarmúrinn til Vestur-Berlínar í gær. Haft var eftir sjónarvottum í Neuköln-hverfinu, að sjá hefði mátt ijölda vopnaðra lögreglumanna koma í skyndi á vettvang til að hindra flótta mannsins. Svo virðist sem flóttamaðurinn hafí ekið vörubíl að múmum og notað síðan stiga til að klifra af honum yfír múrinn. Skutu austur- þýzku verðimir þá á hann að minnsta kosti sjö sinnum. Maðurinn slapp undan skothríðinni, en slasað- ist á báðum fótum, er hann stökk niður að vestanverðu ofan af 4 metra háum múmum. Var hann strax fluttur á sjúkrahús í Vestur- Berlín. Yfírmaður franska hemáms- svæðisins í Vestur-Berlín bar í gær fyrir hönd Vesturveldanna fram harðorð mótmæli við austur-þýzk stjómvöld út af þessum atburði. Berlínarmúrinn var reistur fyrir 25 árum til þess að stöðva flótta fólks frá Austur-Berlín. Múrinn liggur á mörkum hinna gömlu borg- arhverfa Neuköln og Treptow, en síðamefnda hverfíð er nú í Austur- Berlín. Bandaríkin: Byrd útnefndur for- seti öldungadeildar Washington, AP. DEMÓKRATAR útnefndu í gær Robert C. Byrd forseta öldunga- deildar Bandaríkjaþings og repúblikanar ákváðu að Robert Dole skyldi vera leiðtogi þeirra á næsta þingi. Dole og Byrd hafa því skipt um hlutverk. Repúblikanar misstu meirihluta sinn í öldungadeildinni í hendur demókrata í kosningunum 4. nóvember og verður Dole nú í forsvari fyrir minnihlutann. Byrd hefur verið leiðtogi demókrata í öld- ungadeildinni síðan 1977. Hann fær nú aftur embætti forseta öldunga- deildarinnar, sem hann missti 1980. Báðir flokkar höfðu að mestu leyti ákveðið fyrir fram hveijir yrðu látnir gegna forystu fyrir þá í öld- ungadeildinni. Var spenna því lítil þegar 55 þingmenn demókrata og 45 þingmenn repúblikana komu saman í sitt hvoru herberginu nærri þingsal öldungadeildarinnar. Ræða Lubbers rit- skoðuð í Prövdu Moskvu, Reuter. RUUD Lubbers, forsætisráð- herra Hollands, sem er í opin- berri heimsókn í Sovétríkjunum, harmaði í gær, að Pravda, mál- gagn sovéska kommúnista- flokksins, skyldi hafa ritskoðað ræðu, sem hann flutti í fyrra- kvöld. Sagði Lubbers, að það hefði þó ekki komið sér neitt á óvart. Lubbers flutti ræðuna í hófí, sem ráðamenn í Sovétríkjunum héldu honum til heiðurs, og var hún birt í Prövdu að mestu leyti, t.d. um- mæli hans um mannréttindi almennt og afvopnun. Hins vegar var sleppt því, sem hann sagði um þjáningar gyðinga í síðari heims- styijöld og um ný lög í Sovétríkjun- um um brottflutning gyðinga frá landinu. „Mér fínnst þetta skammarlegt en auðvitað stýri ég ekki blaðinu," sagði Lubbers í gær við frétta- menn. „Það kom það mér hins vegar ekki á óvart. Við vissum hvemig tjáningarfrelsinu er háttað hér.“ Lubbers kvaðst mundu nota hvert tækifæri, sem gæfíst, til að tala um hlutskipti sovéskra gyðinga en Hollendingar gæta hagsmuna ísraela í Sovétríkjunum. Ráðamenn í Sovétríkjunum segja, að 4000 gyðingar hafi sótt um brottfarar- leyfí en á Vesturlöndum er því haldið fram, að þeir séu 400.000. MuhammadAIi kvongast á ný Muhammad Ali, fyrrum heimsmeistari í þunga- þey. Ali er hér ásamt brúði sinni. Til vinstri stendur vigt í hnefaleikum, gekk á miðvikudag að eiga Harvey Sloane dómari, sem gifti þau, og kona Yolandu Williams. Brúðkaupið var haldið í kyrr- hans Kathy. Bretland: írafár vegna bókar um leymþjónustuna London, Reuter. MARGARET Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, stendur nú í eldlínunni vegna tilrauna bresku stjórnarinnar til að koma i veg fyrir að endurminningar Peter Wright, fyrrum njósnara, verði gefn- ar út í Ástralíu. Stjómin heldur því fram að Wright megi ekki birta efni bókarinnar þar sem starfsmenn bresku leyniþjónustunnar (MI5) sveiji þagnareið þeg- ar þeir taki til starfa. Wright ætli því að bijóta trúnað og sé það hættulegt öryggi Breta. Stjómarandstaðan hefur aftur á móti sakað stjómina um ósam- kvæmni vegna þess að ekki hafíð verið reynt að koma í veg fyrir að bækur annarra höfunda, sem notað hafa upplýsingar frá núverandi og fyrrverandi embættismanna MI5, yrðu gefnar út._ Ríkisstjóm Ástralíu er einnig mikið í mun að bók Wright komi ekki út vegna þess að þar er fyrrum yfirmaður MI5, Sir Roger Hollis, sakaður um að hafa njósnað fyrir Sovétmanna. Hollis heitinn aðstoðaði við að skipuleggja áströlsku le}miþjón- ustuna (ASIO) á fímmta áratugn- um. Stjómin í Canberra heldur því fram að bókin muni skaða hags- muni Ástrala í öryggismálum og verða til þess að leyniþjónustur, sem skipta við þá áströlsku, missi traust til hennar. Stjómarandstaðan á Bretlandi hefur krafíst þess að fram fari dómsrannsókn á því hvað hæft sé í ásökunum um að Thatcher og Sir Michael Havers ríkissakóknarí hafí komið því til leiðar að rithöfundur nokkur, sem íhaldsflokkurinn gerði nýlega að þingmannsefni, yrði sótt- ur til saka. Skáldanafn rithöfundarins er Nigel West, en hann heitir í raun Rupert Allason. Hann hafði viður- kennt að embættismenn MI5 hefðu látið sig hafa upplýsingar um leyni- þjónustur fyrir nokkrar bækur. Stjómin hætti við að stefna árið 1982 AUason eftir að hann féllst á að fella niður kafía í bókinni, sem heitir „A Matter of Trust". Stjómarandstaðan hefur einnig rifjað upp að stjómin stefndi heldur ekki öðmm höfundi, Chapman Pinc- her, sem sérhæfír sig í njósnamál- um. Sir Robert Armstrong, ritari bresku stjómarinnar, hefur borið fyrir rétti í Ástralíu að stjómin hafí ekkert gert í máli þeirra emb- ættismanna MI5, sem létu Allason og Pincher upplýsingar í té. Ekki skýrðist ástand mála þegar ríkissaksóknari sagði í breska þing- inu að lögregla kannaði nú yfírlýs- ingar Allasons um sambönd sín við embættismenn leyniþjónustunnar. Á fímmtudagskvöld skoraði Neil Kinnock, formaður Verkamanna- flokksins, á Thatcher að gera hreint fyrir sínum dymm og skýra mál þetta. Hann benti á að svo virtist sem ekki væri samræmi í afstöðu stjómarinnar til þriggja fyrmefndra rithöfunda. Thatcher vill ekkert segja um þetta mál og heldur fram að það sé óviðurkvæmilegt meðan réttar- höldin standa yfír. Eldri borgarar og cftirlaunaþcgar! Þórir S. Guðbergsson Dr. Friðrik Einarsson Meðan svartasta skammdegið og vetrarkuldinn ríkir hér á Fróni, er þægilegt og ánægjulegt að dvelja í sumarveðráttu á Costa del Sol Kynning á vetrardvöl á Spáni verður á Hótel Borg sunnu- daginn 23. nóvember kl. 14—17 GESTIR FUNDARINS ERU: Þórir S. Guðbergsson deildarstjóri hjá Félagsmála- stofnun Reykjavíkurborgar og dr. Friðrik Einarsson læknir. AUSTURSTRÆTI 17, REYKJAVÍK Feróaskrifstofan ÚTSÝN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.