Morgunblaðið - 22.11.1986, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 22.11.1986, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1986 45 Afmæliskveðja: Steinunn Þórðar- dóttir 100 ára í dag á 100 ára afmæli Steinunn Þórðardóttir Eskifirði. Hún er fædd að Sléttaleiti í Suðursveit í Austur- Skaftafellssýslu, dóttir hjónanna Ragnhildar Þorsteinsdóttur og Þórðar Arasonar er þar bjuggu frá árinu 1886. Ragnhildur var áður gift Benedikt Einarssyni og böm hennar frá þeirra hjónabandi voru m.a. Guðný, gift Einari Pálssyni og Auðbergur skipasmiður á Eskifírði, kjarna- og mannkostafólk. Stein- unn var einkabam þeirra Þórðar eftir því sem ég best veit. Steinunn var gift móðurbróður mínum Bimi Ámasyni og bjuggu þau allan sinn búskap á Eskifirði. Eignuðust þijú böm, Ragnar, Vilborgu og Guðnýju. Ragnhildi móður Steinunnar man ég vel. Kom oft í heimsókn til henn- ar og man hennar bamgæði og hversu henni var umhugað um að við yrðum sem nýtastir menn. En Steinunn var mér kær. Hún átti svo marga eðliskosti, var dreng- lyndin sjálf og sagði alltaf sína meiningu. Það var alltaf gott að fara eftir hennar leiðbeiningum. Fyrir það allt er ég þakklátur. Steinunn var aldrei iðjulaus með- an við vorum saman. Hún gekk í hvaða vinnu sem var og var bæði rösk og handfljót. Það kom sér vel þegar hún starfaði við útgerðina, hvert sem hún beitti lfnuna eða stóð í aðgerð fram á bryggju og hversu mikið sem hún vann hafði hún lag á því að láta heimilið ekki líða fyr- ir það. Systkinin á Hlíðarenda böm Guðnýjar og Áma Halldórssonar vora svo samtvinnuð og samtaka í öllu að einstakt má heita og enn er þessi keðja óslitin og samheldin. Það finnur maður alltaf á hveijum degi. Sá þráður sem þar var bund- inn slitnar ekki og heimilin vora þannig að við sem þar ólumst upp gerðum engan greinarmun á. Þetta vora allt heimilin okkar. Þess er gaman að minnast þegar hún Stein- unn mín góða vinkona fyllir nú 100 árin. Vinnan göfgar manninn. Það hefi ég best fundið í nálægð henn- ar. Aldrei hlífði hún sér og oft hefi ég hugsað hve hún var okkur stóra hópnum á Hlíðarenda góð og hversu margir komust fyrir í eldhúsinu hennar. Af Hlíðarendasystkinum er nú Friðrik einn á lífi. Við minnt- umst rækilega 90 ára afmælis hans í vor og þá vora rifjuð upp æskuár- in. Ljóminn frá því afmæli endist lengi. Steinunn dvelur nú á sjúkra- húsinu á Neskaupstað. Þessi mörgu ár hafa gefíð henni margt. Von- brigðum kunni hún svo vel að taka og gera gott úr öllu. Þótt æfín hafí stundum verið stormasöm hefír Guð gefið henni það að halda óskertri hugsun fram á þennan dag. Það er góð gjöf sem hún notar sér vel. Og þrekið hefir enst betur en okkur granaði stundum og erfíði liðinnar tíðar hefír hún fengið endurgoldið í góðum niðjum sem hafa verið nærri henni. Þetta og svo margt annað er þakkarefni. Hún fær á þessum degi þakklæt- iskveðjur fjölda manna sem henni hafa verið samtíma á leið lifsins. Og ég yeit að þeir verða margir sem fá tækifæri til að koma að rúminu hennar og rétta henni hlýja hendi. Ég hefði viljað vera í þeim hóp, en þess var ekki kostur. Hinsvegar verður hugur minn nálægt henni og ég veit að hún fínn- ur það. Og afmæliskveðjan mín er full af þakklæti til hennar fyrir all- ar hennar leiðbeiningar og hversu hún þoldi vel ærsl okkar krakkanna og var alltaf tilbúin að ræða við okkur og benda okkur. Hún var vissulega þáttur í æskulifí okkar og henni eigum við ef til vill meira að þakka en okkur granar, en hvað um það. Steina á heiðurssess í hug- um okkar. jGóður Guð blessi þig Steina mín nú og ævinlega. 'Hjartanlegar hamingjuóskir. Skúli Helgason Hundrað ára er í dag Steinunn Þórðardóttir frá Eskifírði. Hún fæddist að Sléttaleiti í Suðursveit 22. nóvember 1886, var yngst af sínum systkinum. Foreldrar hennar vora Ragnhildur Þorsteinsdóttir, ættuð frá Steig í Mýrdal, V-Skafta- fellssýslu, og Þórður Arason frá Reynivöllum í Suðursveit. Komung missti hún föður sinn og 11 ára fluttist hún að Skaftafelli í Öræfum með bróður sínum, Stefáni Bene- diktssyni, sem þá hóf þar búskap. Tvítug fer hún austur á fírði sem kaupakona að Svínaskála við Reyð- aifyörð. Þar giftist hún Bimi Ámasyni, ættuðum frá Högnastöð- um við Reyðarfjörð, mætum ágætis- og drengskaparmanni. Bjuggu þau allan sinn búskap á Eskifirði. Aldrei varð á heimili þeirra mikið um veraldarauð en því meira var þar haft í öndvegi gest- risni og hjálpsemi til allra, sem þar komu við í lengri eða skemmri tíma og ávallt fóru þaðan ríkari af raun- sæi, réttlætiskennd og góðvild þeirra sem þar réðu ríkjum. Böm þeirra urðu þijú, Ragnar, Vilborg og Guðný, auk þeirra ólu þau upp undirrituð dótturböm sín. Bjöm lést 1973, þá áttræður. í dag era afkomendur þeirra 77 talsins. Margar sögumar kunni hún, — sögumar frá sveitnni hennar, milli jöklanna í Óræfum, höfðu yfir sér ævintýraljóma og vora gæddar lífi fegurðar og í bland söknuðar, sem við fyrst skildum til fulls þegar leið- ir opnuðust til Skaftafells og þessi undraveröld blasti við sjónum. Hálf öld leið frá því hún fór þaðan, þang- að til hún sté fæti þar á ný, og má segja að hún hafí þekkt aftur hvem stein og hveija þúfú. Hún var kona atorkusöm, mynd- arleg í verkum sínum, hégómalaus og hreinskiptin. Hefur hún undravel haldið sínu andlega atgervi til þessa dags. Nú dvelur hún í sjúkrahúsinu í Neskaupsstað þar sem hún hefur um árabil notið frábærrar umönn- unar lækna og hjúkranarfólks, sem við færam hér bestu þakkir. Við óskum henni hjartanlega til hamingju með þetta merkisafmæli. Með þökk fyrir allt á liðnum árum. Bima og Haukur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.