Morgunblaðið - 22.11.1986, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 22.11.1986, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1986 Fimmtíu og sex milljón- ir til upplýsingaiðnaðar Dómsmála- og utanríkisráðuneyti: Oska aðstoðar í Bretlandi, Bandaríkjunum og Kanada Meinatæknar Borgarspítalans: Fara fram á 45% áhættu- þóknun „VEGNA fréttar á baksíðu Morg- unblaðsins þann 21. nóvember 1986 vilja meinatæknar starfandi á Rannsóknadeild Borgarspítal- ans taka eftirfarandi fram: Engar formlegar samning'avið- ræður hafa átt sér stað við stéttar- félag meinatækna eins og haldið er fram í fréttinni. Aftur á móti fóru fram tveir óformlegir fundir með okkur og starfsmannastjóra borgarinnar. Við förum fram á 45% áhættu- þóknun vegna breyttra aðstæðna í starfi okkar, þar sem rannsóknir hafa sýnt að áhættuþættir starfs- fólks á rannsóknastofum hafa stórlega aukist. Ennfremur forum við fram á 16 daga vetrarfrí til samræmis við aðrar heilbrigðis- stéttir." Morgunblaðið/Júllus Það rauk glatt úr reykháfum hvalbátanna tveggja í Reykjavíkur- höfn f gærdag. Vélar bátanna gangsettar Kristinn Rafnsson, yfirvélstjóri, f vélarrúmi Hvals 6 eftir að búið var að kynda f kötlunum. VÉLAR hvalbátanna tveggja, sem sökkt var f Reykjavíkur- höfn á dögunum, voru gang- settar í gær. Reyndust þær vera í lagi að öðru leyti en þvf að einangrun á kötlum og rörum var ónýt, auk þess sem raf- leiðslur og innréttingar voru ónýtar eins og áður hefur kom- ið fram. Byijað var að kynda í skipunum laust eftir hádegi í gær og skömmu síðar voru hjálparvélar gangsettar. Undir kvöldið voru svo aðalvélar settar í gang. Krist- inn Rafnsson, yfirvélstjóri á Hval 6, sagði í samtali við Morgun- blaðið að svo virtist sem vélarnar hefðu sloppið við teljandi skemmdir, fyrir utan skemmdim- ar á einangrun og rafkerfi. Tillögur starfshóps Rannsóknaráðs ríkisins: - árlega næstu fjögur árin NEFND, sem Rannsóknaráð ríkisins skipaði til að gera grein fyrir stöðu og þróun á sviði upplýsingamála, gagnavinnslu og fjarmiðlun- ar, leggur til að 65 milljónir króna verði veittar árlega næstu fjögur árin til að byggja upp upplýsingaiðnað á íslandi. „íslendingar geta gert sig gild- beri sérstaka áherslu á samvinnu andi á þessu sviði og þekkingar- menn spá því að við séum nú á byltingarkenndustu tímamótum sem um getur," sagði Sverrir Her- mannsson menntamálaráðherra m.a. á fundi sem haldinn var með fréttamönnum til að kynna efni skýrslunnar. í skýrslu nefndarinnar er lagttil að upplýsingatækni verði efld á Is- landi og hagnýtt betur í þágu atvinnulífsins. I því skyni verði veittar 65 milljónir króna árlega næstu fjögur árin, en upphæðin verði endurskoðuð árlega. Leggja tölvufyrirtækja, Háskóla Islands, Rannsóknaráðs og Iðntæknistofn- unar, og fulltrúa atvinnulífsins, svo sem Félags íslenskra iðnrekenda. Samstarfsráði, sem skipað verði fulltrúum þessara aðila og hafí a.m.k. einn starfsmann, verði falið að stjóma framkvæmd áætlunar- innar, fylgja henni eftir og hafa eftirlit með framvindu og árangri. Nefndin leggur til að 13 milljón- um verði varið í uppbyggingu þekkingar á sviði upplýsingatækni, 26 milljónum verði varið til eflingar íslensks tölvuiðnaðar, 13 milljónum í upplýsingaveitur og upplýsinga- þjónustu, 6 milljónum í gæða- og stöðlunarmiðstöð og 7 milljónum til félagslegra rannsókna. í tillögunum er gert ráð fyrir að sett verði á fót opinbert tölvuráð sem samræmi vinnslu upplýsinga hins opinbera og lagt er til að sam- vinna við erlenda aðila verði efld, einkum við Norðurlandaþjóðir. Lagt er til að íslenskir aðilar verði hvatt- ir til samstarfs við stofnanir og fyrirtæki á Norðurlöndunum, en talsvert fé er til ráðstöfunar næstu fímm árin til iðnaðarrannsókna og framleiðslu í tölvutækni á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar. Nefndin leggur einnig til að sér- stakur eftirlitsaðili verði skipaður til að fylgjast með lögum um per- sónuvemd. Honum verði gert kleift fjárhagslega að hafa virkt eftirlit með framkvæmd laganna og að öryggis sé gætt í vinnslu upplýs- inga. vegna skemmdarverkanna á eignum Hvals hf. FULLTRÚAR dómsmálaráðu- neytisins og utanríkisráðuneytis- ins ætla að hittast á fundi á mánudag til að ræða um mögu- leika á að koma lögum yfir Sea Shepherd-mennina sem talið er að hafi sökkt hvalbátunum og unnið skemmdarverk í hvalstöð- inni. Þeir ráðuneytismenn ætla að leita til yfírvalda í Bretlandi, Banda- ríkjunum og Kanada og biðja um aðstoð í málinu. Annar mannanna sem talið er að hafí unnið skemmd- arverkin, Rodney Coronado, er bandarískur, en félagi hans, David Howitt, er breskur. Paul Watson, forsprakki Sea Shepherd, er hins vegar kanadískur. Yfirvöld i Kanada eru nú að kanna möguleika á að fá Watson dæmdan, því þar í landi eru til lög sem kveða á um að þó afbrot sé framið á erlendri grund þá sé hægt að sækja menn til saka í Kanada fyrir brotin. Hjalti Zóphóníasson, deildarstjóri í dóms- málaráðuneytinu, sagði að sam- kvæmt íslenskum lögum gæti Paul Watson talist hvatamaður verknað- arins, þótt hann hafí ekki komið nálægt honum sjálfur. Trúlegt væri að slík ákvæði væru einnig í kanadískum lögum. Bankaráð Seðlabanka f slands: > ____________ Olafur B. Thors formaður VIÐSKIPTARÁÐHERRA, Matt- Jafnframt hefur hann skipað hías Bjamason, hefur skipað Davíð Aðalsteinsson alþingis- Ólaf B. Thors forstjóra formann mann varaformann bankaráðs- bankaráðs Seðlabanka íslands. ins. iesas 3 ni Morgunblaðið/Þorkell .. Snorri Helgason tók fyrstu skóflustunguna að fyrirhuguðu listasafni . í Kópavogi. „Þeir geta samþykkt hvað sem þeir vilja fyrir mér“ — segir Matthías Bjarnason um ádeilu kirkjuþings „ÞEIR geta samþykkt hvað sem þeir vilja fyrir mér þaraa á kirkjuþingi, þeir mega hafa sínar skoðanir en ég hef mínar,“ sagði Matthías Bjarnason samgöngu- og viðskiptaráðherra þegar leit- að var álits hans á orðsendingu frá kirkjuþingi þar sem kirkju- þingsmenn segjast harma tiltek- in ummæli hans á Alþingi fyrir skömmu og þá vanvirðu sem þeir telja að þinginu og starfsmönn- um Hjálparstofnunar kirkjunnar sé gerð með þeim. „Ég hef yfírleitt ógeð á öllu þessu tali, á kirkjuþingi eins og annars * staðar, þar sem ráðist er að mönn- um og þess helst krafíst að þeir segi fyrirvaralaust af sér störfum. Reyndar er þetta ekki fyrsta sam- þykkt kirkjuþings sem ég er ekki sáttur við. Ég tel að þeir eigi að halda sig við málefni kirlq'unnar en ekki að vera að vasast í pólitík eins og til dæmis varðandi ratsjárstöðv- ar í fyrra,“ sagði Matthías einnig. Eigendur Þvottahúss Keflavíkur kærðir: Misferlið nam 5 milljónum KefUvik. TILLAGA þess efnis að eigend- ur Þvottahúss Keflavíkur yrðu kærðir fyrir meint fjármála- misferli, var samþykkt á fundi stjóraar Sjúkrahúss Keflavíkur á miðvikudaginn var. Mun þetta meinta misferli, þar sem nótur voru falsaðar, hafa átt sér stað frá því í júlí 1983. Að sögn stjómarmanns í stjóm sjúkrahússins hefur náðst sam- komulag um endurgreiðslu á þessum fjármunum, sem eru um fímm milljónir með vöxtum, og hefur trygging verið sett fyrir þessari upphæð. BB
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.