Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1997, Blaðsíða 35
MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 1997
51
lóttöku- og v
okkunarstöö
Krossgátan
T t T T~ r L >
$
IO
il TF 13 VT
is- rr ii l
J 50
ii j
Lárétt: 1 starfs, 6 fljótum, 8 aur, 9
heiöur, 10 hljóöfæraleikur, 11 duft,
13 glufa, 15 frá, 17 strikið, 19 raun,
20 friður, 21 innan, 22 teygjanlegt.
Lóðrétt: 1 líkamsvökva, 2 styrkja, 3
fltla, 4 kvenmannsnafn, 5 sælgæti, 6
geislabaug, 7 óvættur, 12 glingur, 14
þungi, 16 skref, 18 veiðarfæri, 19
óreiða.
Lausn á síðustu krossgátu:
Lárétt: 1 skæða, 5 má, 7 vær, 8 etur,
9 enskan, 11 ræll, 13 fái, 15 trúar, 17
at, 18 að, 19 Ijær, 21 tif, 22 áðan.
Lóðrétt: 1 sverta, 2 kæn, 3 ærsl, 4
at, 5 mun, 6 áreitin, 8 ekla, 12 ærðf
14 áar, 16 úlf, 20 já.
Sigurður Skagfjörð Steingríms-
son og Bjarni Þór Jónatansson
halda tónleika í kvöld.
Sönglög,
ljóð og aríur
Sigurður Skagfjörð Stein-
grímsson baritonsöngvari held-
ur einsöngstónleika í Víðistaða-
kirkju í kvöld kl. 20.30. Við pí-
anóið er Bjami Þór Jónatans-
son. Á efnisskránni eru innlend
og erlend sönglög, ljóð og aríur.
Tilefni tónleikanna er að Sig-
urður er á leið til Vínarborgar
síðla sumars til frekara náms.
Kvennakórinn Ymur
Tónleikar verða á morgun í
Grundaskóla á Akranesi og hefj-
ast þeir kl. 16.00. Stjórnandi
kórsins er Dóra Líndal Hjartar-
dóttir. Gestakórar em Kvenna-
kór Hafnaitjarðar og Freyjukór-
inn í Borgarfirði.
Tónleikar
Selkórinn
í kvöld kl. 21.00 efnir Selkór-
inn á Seltjarnarnesi til vortón-
leika í Seltjamai-neskirkju. Á
efnisskránni eru 18 valsar eftir
Jóhannes Brahms, íslensk þjóð-
lög og íslenskar þjóðvísur eftir
Jón Nordal. Einsöngvari er Guð-
rún E. Gunnarsdóttir. Stjóm-
andi er Jón Karl Einarsson.
Vindar í
Raumsdal
Dagskrá tileinkuð verkum
Knuts Gdegárds verður í Nor-
ræna húsinu á morgun kl. 20.30.
Kynnt verður ný bók með úrvali
ljóða skáldsins sem er væntanleg
á markaðinn í haust. Nefnist bók-
in Vindar í Raumsdal. Skáldið
mun lesa úr verkum sínum en
einnig Gunnar Eyjólfsson leikari,
norska leikkonan Goril Haukebo
og þýðendur bókarinnar, sem eru
Jóhann Hjálmarsson og Matthías
Johannessen.
Félag sjálfstætt starf-
andi fræðimanna
Stofnfundur verður haldinn í
Komhlöðunni, Bankastræti 5, í
kvöld kl. 20.30. Markmið félagsins
er að stuðla að virku, þverfaglegu
samstarfi sjálfstætt starfandi
fræðimanna og vinna að því að
tryggja þeim aðstöðu til að sinna
verkefnum sinum í sem nánustu
félagi við aðra fræðimenn.
Samkomur
Hollvinasamtök Há-
skóla íslands
Umræðufundur verður í Nor-
ræna húsinu kl. 17.00 í dag. Um-
ræðuefnið er frmnvarp til há-
skólalaga sem liggur fyrir Al-
þingi. Frummælendur er Svein-
bjöm Bjömsson rektor, Kristrún
Heimisdóttir laganemi og Sturla
Böðvarsson þingmaður.
Vorhátíð 1997
Á morgun heldur foreldrafélag
Rimaskóla vorhátíð á skólalóð-
inni í Grafarvogi. Aðalviðburður-
inn er skólahlaup, en auk þess
mun Magnús Scheving skemmta
og hita hlaupara upp, og margt
fleira verður til skemmtunar.
Anna og María
eignast bróöur
Litli drengurinn á
myndinni fæddist á fæð-
ingardeild Landspítalans
20. apríl kl. 16.00. Hann
var við fæðingu 2760
Barn dagsins
grömm að þyngd og
mældist 47 sentímetra
langur. Foreldrar hans
eru Svala Hilmarsdóttir
og Sigurður Jónsson.
Hann á tvær systur,
Önnu, sem er sjö ára, og
Maríu, sem er sex ára.
Kvikmyndir
í hlutverki Basquiats er sviðs-
leikarinn Jeffrey Wright. David
Bowie leikur hinn umdeilda
listamann, Andy Warhol, Mich-
ael Wincott leikur skáldið Rene
Ricard og veitingahúsaeigand-
inn Michael Chow leikur sjálfan
sig. Aðrir leikarar em Gary Old-
man, Elina Lowensohn, Benico
del Torto, Christopher Walken,
Willem Dafoe og Courtney Love.
Nýjar myndir:
Háskólabíó: Háðung
Laugarásbíó: Lygari, lygari
Kringlubíó: Veislan mikla
Saga-bíó: Lesið í snjóinn
Bíóhöllin: Michael
Bíóborgin: Tveir dagar í dalnum
Regnboginn: Basquiat
Stjörnubíó: Einnar nætur gaman
Gengið
Almennt gengi
7.05.1997 kl. 9.00
Eininq Kaup Sala Tollqenqi
Dollar 71,120 71,480 71,810
Pund 116,370 116,910 116,580
Kan. dollar 51,575 51,885 51,360
Dönsk kr. 10,8220 10,8920 10,8940
Norsk kr 9,9630 10,0230 10,1310
Sænsk kr. 9,0970 9,1530 9,2080
Fi. mark 13,6880 13,7780 13,8070
Fra. franki 12,2110 12,2890 12,3030
Belg. franki 1,9977 2,0117 2,0108
Sviss. franki 48,5500 48,8500 48,7600
Holl. gyllini 36,6500 36,8900 36,8800
Þýskt mark 41,2220 41,4780 41,4700
ít. lira 0,04162 0,04190 0,04181
Aust. sch. 5,8570 5,8970 5,8940
Port. escudo 0,4101 0,4131 0,4138
Spá. peseti 0,4882 0,4916 0,4921
Jap. yen 0,56550 0,56990 0,56680
írskt pund 106,740 107,380 110,700
SDR 96,54500 97,14500 97,97000
ECU 80,3580 80,9180 80,9400
Símsvari vegna gengisskráningar 5623270
Úlfaldinn og mýflugan:
Bubbi með gamalt og nýtt
Bubbi Morthens verður með tónleika á veit-
ingastaðnum Úlfaldanum og mýflugunni, Ár-
múla 40, í kvöld. Bubbi verður einn á sviðinu,
vopnaður gítarnum, og mun örugglega flytja lög
sem flestir landsmenn þekkja ásamt nýju efni.
Annars er það helst að frétta af Bubba að hann
og KK eru nú að undirbúa samstarf og verður
farið vítt og breitt um landið i sumar og leikið í
félagsheimilum, skólum og á veitingastöðum.
Forsmekkinn af því sem koma skal gátu gestir í
Leikhúskjallaranum fengið á mánudagskvöld én
nú munu þeir félagar leggjast undir feld og
dvelja í æfingabúðmn þar til ferðin mikla hefst.
Þæfingsfærð
og snjóþekja
Veðrið hefur haft áhrif á færð
vega á Norður- og Austurlandi og
eru margar leiðir þungfærar og ein-
staka leiðir ófærar. Á leiðinni
Höfn-Egilsstaðir hefur verið þung-
fært og þæflngsfærð er í Fagradal,
Færð á vegum
þá er Hellisheiði eystri ófær og leið-
in milli Unaóss og Borgarfjarðar
eystri. Fyrir austan Akureyri er
þungfært um Möðrudalsöræfl. Öx-
arfjarðarheiði er ófær og það sama
á við um Mjóafjarðarheiði.
Jeffrey Wright leikur titilhlutverk-
iö, listmálarann Basquiat.
Basquiat
Regnboginn sýnir um þessar
mundir nýja kvikmynd um lista-
manninn Basquiat. Árið 1981,
þegar Jean-Michael Basquiat var
nítján ára gamall, sló hann í gegn
og varð einhver eftirsóttasti
myndlistarmaður New York
borgar næstu árin og fór frægð
hans víða. Sýningar hans voru
stórviðburður í menningunni í
New York og stærstu söfnin,
þekktir safnarar og forríkir ein-
staklingar keyptu verk hans. 1988
dó hann, 27 ára að aldri. Hann
hafði lifað hratt þessi fáu ár með-
an frægðarsólin lék um hann.
Skemmtanir
Kringlukráin
Lifandi tónlist er í Kringlukránni nánast
hvert kvöld og í kvöld er það hljómsveitin í hvít-
um sokkum sem skemmtir gestum í aðalsal frá
kl. 22. í hljómsveitinni eru Guðmundur Rúnar
Lúðvíksson og Hlöðver Guðnason. Flytja þeir
tónlist af ýmsu tagi og þá helst í anda síðasta
áratugar. Þeir félagar verða einnig í Kringlu- Bubbi Morthens kemur fram
kránni annað kvöld. kvöld.
á
Úlfaldanum
og
mýflugunni í
Astand vega
m Hálka og snjór 0 Vegavinna-aögát @ Öxulþungatakmarkanir
LokaðrSt°ÖU ÞunSfært ©Fært fjallabílum
/ l
■ 'S-i
Mosfellsbær, O
nærri hesthúsabyggð /
Við Ananaust
Ártúnshöföi,
við Sævarhöfða
Miöhraun 20,
á mörkum Garðabæjar
og Hafnarfjarðar
Gylfaflöt,
austan gömlu
Gufuneshauganna
J Breiðholt,
/ Seljahverfi sunnan
Breiðholtsbrautar
Kopavogur,
við Dalveg
sröövar á höfuðborgarsvæöinu
Egj|