Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1997, Blaðsíða 33
MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 1997
49
Afmæli
Benedikt Jónsson
Benedikt Jónsson, leigubílstjóri
við Aðcilstöðina í Keílavík, Máva-
braut 3 A, Keflavík, er fimmtugur í
dag.
Starfsferill
Benedikt fæddist á Skagaströnd
og ólst upp á Höfnum á Skaga. Hann
stundaöi nám við Bændaskólann á
Hvanneyri og sótti námskeið og
lauk prófum sem fiskmatsmaður.
Benedikt var fiskmatsmaður um
skeið, síðan verkstjóri við frystihús
í Garðinum en hefur verið leigubíl-
sfjóri sl. flmm ár.
Fjölskylda
Benedikt kvæntist
19.10. 1969 Guðrúnu
Blöndal, f. 7.5. 1950, er
starfar við gestamóttöku
á Hótel Keflavík. Hún er
dóttir Benedikts Blön-
dals, verkamanns í
Reykjavík, og Sigþrúðar
Guðmundsdóttur hús-
móður.
Börn Benedikts og
Guðrúnar eru Elínborg
Birna Benediktsdóttir, f.
4.2. 1969, hárgreiðslumeistari að
Laugum í Þingeyjarsýslu, en maður
hennar er Jóhann Guðni Reynisson,
kennari við Laugaskóla,
og er dóttir þeirra ína
Björk Jóhannsdóttir, f.
15.6. 1994; Benedikta Sig-
þrúður Benediktsdóttir, f.
16.8. 1970, húsmóðir í
Garðinum, en maður
hennar er Björgvin Magn-
ússon fiskverkandi og eru
böm þeirra Guðbjörg
Björgvinsdóttir, f. 10.4.
1991, og Lovísa Björgvins-
dóttir, f. 19.9.1994, en börn
Björgvins frá fyrra hjóna-
bandi eru Björgvin Björg-
vinsson og Guðrún Björgvinsdóttir;
Steinunn Ólöf Benediktsdóttir, f.
25.4. 1973, starfsmaður hjá Flugleið-
um, búsett í Keflavík; Jón Guð-
mundur Benediktsson, f. 10.6. 1975,
sjómaður og nemi við Stýrimanna-
skólann, búsettur í Keflavík, en
kona hans er Helga Margrét Sig-
urbjörnsdóttir hárgreiðslunemi en
sonur þeirra er óskírður, f. 25.4.
1997.
Systur Benedikts eru Lára
Bjarnadóttir, læknaritari í Mosfells-
bæ; Birna Jónsdóttir, starfsmaður
við Hrafnistu í Reykjavík.
Foreldrar Benedikts: Jón Guð-
mundur Benediktsson, f. 23.5. 1921,
stórbóndi að Höfnum á Skaga, og El-
ínborg Teitný Björnsdóttir, f. 27.5.
1917, d. 2.4. 1971, húsfreyja.
Benedikt Jónsson.
Ágúst Sveinbjörn Bjamason,
verkamaðm- og knattspyrnuþjálfari,
Víkurbraut 8, Grindavík, verður
fertugur á morgun.
Starfsferill
Ágúst fæddist í Grindavík og ólst
þar upp og á Flateyri.
Ágúst starfaði í sláturhúsi í Borg-
amesi 1970-71, var í fískvinnslu hjá
Hjálmi hf. á Flateyri 1974-80, starf-
aði hjá Hópsnesi 1980-81, hjá HG í
Grindavík 1981-83, hjá HÞ í Grinda-
vík 1983-84, hjá Hraðfrystihúsi Eski-
fjarðar 1984-86 og hefur verið dyra-
vörður við samkomuhúsið Festi frá
1995.
Ágúst er aðstoðarmað-
ur þjálfara meistara-
flokks Grindavíkur í
körfubolta frá 1989 og
hefur verið aðstoðarmað-
ur þjálfara Grindavíkur-
liðsins í knattspymu frá
1992.
Fjölskylda
Systkini Ágústs eru
Guðmundur Valdimar
Bjamason, f. 30.10. 1954,
matreiðslukennari í Se-
attle í Bandaríkjunum, kvæntur
Patriciu Lue Bjarnason, og era böm
þeirra Rachel Bjarnason og Miriam
Bjarnason, auk þess sem
börn hans era Bára Guð-
mundsdóttir, Vilhjálmur
og Wanda Lee; Jón
Salómon Bjamason, f.
16.4. 1958, fiskverkandi í
Reykjavík, kvæntur Hebu
Halldórsdóttur, og eru
börn þeirra Hallur Símon
Salómons, f. 12.8. 1987, og
Apríl Sól Salómonsdóttir,
f. 18.9. 1988, auk þess sem
böm hans eru Jón Bjarni
Guðmann Jónsson, f.
17.12. 1977, og Sveinn
Marteinn Jónsson, f. 6.1. 1982; Jar-
þrúður Bjamadóttir, f. 6.10.1960, bú-
sett í Svíþjóð, og eru börn hennar
Guðmunda Valborg Valgeirsdóttir,
f. 29.3. 1979, d. 10.3. 1995, Vigfús
Birgir Valgeirsson, f. 4.10. 1981, Ás-
geir Örn Valgeirsson, f. 12.10. 1982,
Guðbjörn Mar, f. 3.13. 1987, og
Salómon Þór Tafjörd, d. 20.2. 1991.
Hálfsystir Ágústs er Guðbjörg
Sigríður Ásgeirsdóttir, f. 3.6. 1974,
búsett í Svíþjóð.
Foreldrar Ágústs: Bjarni Guð-
mann Ágústsson, f. 9.12. 1931, vél-
stjóri og útgerðarmaður í Grinda-
vík, og Guðmunda Valborg Jóns-
dóttir, f. 10.11. 1937, húsmóðir í Sví-
þjóð.
Ágúst tekur á móti gestum að
heimili sínu á afmælisdaginn, milli
kl. 18 og 22.
Ágúst Sveinbjörn
Bjarnason.
Oddur Albertsson
Oddur Albertsson
skólastjóri, Garðastræti
8, Reykjavík, er fertugur
í dag.
Starfsferill
Oddur fæddist í
Reykjavík og ólst þar upp
og í Bolungarvík og
Ólafsvík. Hann lauk BA-
prófi i leikhús- og kvik-
myndafræðum í Svíþjóð,
stundaði nám í heimspeki
og listasögu við HÍ og lauk námi til
kennsluréttinda með sérritgerð um
símenntun og fullorðinsfræðslu.
Oddur var skólameistari Fram-
haldsskólans í Reykholti í þrjú ár
en hefur nú síðustu ár verið skóla-
Oddur Albertsson.
stjóri Lýðháskólans í
Norræna húsinu í
Reykjavík.
Fjölskylda
Systkini Odds eru Særún
Albertsdóttir; ísrún Al-
bertsdóttir; Óðinn Al-
bertsson.
Systir Odds, samfeðra, er
Bryndís Albertsdóttir.
Foreldrar Odds: Albert
Sigurgeirsson, f. 20.9.
1931, d. 5.6. 1971, og Málfríður Guð-
mundsdóttir, f. 7.4. 1935, fóstra í
Reykjavík.
Oddur verður með opið hús frá
þvi á afmælisdaginn og fram á
helgi.
Ágúst Jónsson og Margrét Magnúsdóttir.
Ágúst Jónsson og
Margrét Magnúsdóttir
Hjónin Ágúst Jónsson og Margrét
Magnúsdóttir, Reynivöllum 6, Akur-
eyri, eiga sjötiu ára brúðkaupsaf-
mæli í dag.
Þau fagna þessum tímamótum í
dag, ásamt fjölskyldum barna og
bamabarna sinna. Margrét er níu-
tíu og tveggja ára en Ágúst er níutíu
og fjögurra ára, bæði við góða
heilsu og búa á sínu eigin heimili.
Fréttir
1 , 1
njnr itrlrSi ^ 1 m 4 í1 -á
1
Sigurvegararnir Andrés og Jónas.
DV-mynd Njöröur
Raulað á
Höfðabrekku
Um mánaðamótin var á Höfða-
brekku í Mýrdal söngvakeppni sem
bar nafnið Raularinn. Þar kom fólk
fram og söng. Atriði vora 10. Sigur-
vegarar vora kynntir sem Stólamir,
þeir Andrés Viðarsson og Jónas Er-
lendsson. Þeir fluttu lagið Fatlafól,
þekkt í flutningi Bubba og Megasar.
Framkvæmdastjórinn og hug-
myndasmiður, Sædís íva Elíasdótt-
ir, var ánægð. Hún vildi þó ekki
gefa loforð um að þetta yrði árlegur
viðburður.
SVAR
dJ
h903«5670m
Aöeins 25 kr, mínútan. Sama verö fyrir alla landsmenn.
Tll hamingju
með afmælið
8. maí
85 ára
Hörður B. Loftsson,
Borgarholtsbraut 67, Kópa-
vogi.
80 ára
Guðbjörg Kristjánsdóttir,
Árskógum 6, Reykjavík.
Ingibjörg Halldórsdóttir,
Miðholti 4, Þórshöfn.
75 ára
Hrefna Kristjánsdóttir,
bóndi og húsfreyja að Stóra-
Klofa í Land-
sveit.
Eiginmaður
hennar var
Árni Árna-
son bóndi
sem lést 1979.
Hrefha tekur
á móti gest-
um á heimli
dóttur sinnar og tengdasonar
að Vesturbergi 165, Reykjavík,
á afmælisdaginn milli kl. 15.00
og 18.00.
Geirlaug Geirsdóttir,
Sandholti 44, Ólafsvík.
Garðar Sigurgeirsson,
Víkurgötu 11, Súðavík.
Sigurbjörg Hlöðversdóttir,
Þingvallastræti 34, Akureyri.
70 ára
Sigurjón O. Sigurðsson,
Hvassaleiti 16, Reykjavik.
60 ára
Sigurósk Eyland Jónsdóttir,
Aðalstræti 85, Patreksfirði.
Siguróli Jóhannsson,
Brautarási 5, Reykjavík.
Stella Björk Georgsdóttir,
Heiðvangi 15, Hellu.
Elsa Þórdís Óskarsdóttir,
Hlíðargötu l, Akureyri.
50 ára
Jón Jónsson,
Bylgjubyggð 10, Ólafsfirði.
Páll G. Egilsson,
Hrísholti 23, Selfossi.
40 ára
Ingimar Þorsteinsson,
Ofanleiti 23, Reykjavík.
Sigurður Ingvarsson,
Fannafold 111, Reykjavík.
María Merlita Guðlaugsson,
Efstasundi 49, Reykjavík.
Ingunn Jónsdóttir,
Jöklafold 43, Reykjavík.
Hjörtur Geirsson,
Hátúni 10 A, Reykjavík.
Helga Haraldsdóttir,
Rauðalæk 9, Reykjavík.
Elsa Brynjólfsdóttir,
Grundarhúsum 40, Reykjavík.
R Á Ð G J Ö F
FYRIR FÓLK í
FJÁRHAGS
ERFIÐLEIKUM
SIMINN ER
562 1350
FYRIRGREIÐSLAN
Fyrirgreiðslan
Fjárhagsleg endurskipulagning ehf.
Skúlagötu 30 • 101 Reykjavík