Ársrit Hins íslenzka kvenfélags - 01.01.1897, Blaðsíða 44
Aðfangadagskvöldið.
Eptir Hedevig Winther.
(Þýtt af Nönnu)
Vísirinn á klukkunni, sem hjekk á stoð
milli glugganna á skrifstofunni, mjakaðist hægt
og hægt áfram, hægt og reglulega færðist
penni skrifstofufulltrúans eptir pappírnum, og
hægt og tómlega læddist dagurinn af lopt-
inu, þangað til loksins að dimman fjekk yfir-
höndina þann dag, sem merktur var í almanak-
inu með svörtu feitu letri, sem 24. dagurinn í
desembermánuði —
Gasloginn leiptraði undan lampahjálminum,
og breiddi birtu yfir fjögur skrifborð, sem
náðu frá einum vegg til annars á skrifstofunni;
tvö þeirra voru mannlaus, en við tvö var ver-
ið að vinna. Skrifstofufulltrúinn sat rólegur og
hæglátur, eins og hans var vandi, við verk sitt,
og afgreiðslukonan sat álút við höfuðbækur verzl-
unarinnar, þolinmóð og þreyjugóð eins og hún
átti að sjer.
Við og við gafhún klukkunni hornauga, henni
miðaði ekkert, svo gaut hún augunum til skrif-