Ársrit Hins íslenzka kvenfélags - 01.01.1897, Síða 24
Hin rússneska kona.
(Ágrip af grein eftir Zenatde Wenguerow).
I.
Rússnesk kona er að því leyti einkenniieg,
að hún hefur æsta skapsmuni og virðingarvert
starfsþrek um aðrar konur fram. Frjálslyndi
lýsir sér í athöfnum hennar og ríkir þó enn
meir í tilfinningalífi hennar. Eins og hin rúss-
neska kona hefur komið fram á sjónarsviðið í
mannkynssögunni, þannig er hún enn í daglegu
lífi. Kapp hennar og þolgæði til að hugsa sér-
hverja hugsun út í yztu æsar, ásamt hæfileika
og hvöt til framkvæmda, er þjóðareinkenni,
gagnstætt tilhneigingu þeirri, er karlmaðurinn
hefur til slæpingsskapar og aðgerðaleysis — Rúss-
ar og Slafar eru almennt hneigðari fyrir að taka
ástfóstri við hugsjónir en að byggja þeim inn í
lífið. Það er hlutverk konunnar að framkvæma
allt það, sem sefur í hinu vel gáfaða, en fram-
takslausa slafneska eðli. I, öllum félagslegum
hreyfingum taka konur jafnmikinn þátt sem karl-
menn eða eru öllu fremur í fararbroddi, þar eð
vilji þeiraa er staðfastari, þótt sjóndeildarhring-