Morgunblaðið - 12.05.2000, Side 59

Morgunblaðið - 12.05.2000, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 2000 . 59 EKKI alls fyrir löngu hitti ég kunn- ingja minn sem sagt hafði verið upp störfum á vinnustaðnum þar sem hann hafði unnið um árabil. Ástæða upp- sagnarinnar var sögð „65 ára reglan!“ „Hvaða regla er það nú eiginlega?“ spurði kunningi minn, enda hafði hann ekki heyrt þessarar reglu getið. „Það er ný regla sem við höfum sett,“ svar- aði vinnuveitandinn og gerði grein fyrir því að hann vildi hafa á vinnustaðnum „unga og hressa“ starfsmenn - eins og það var orðað. Kunningi minn fyllti ekki lengur flokk hinna ungu og var að mati vinnuveitandans ekki nægilega „hress“ fyrir þá ímynd sem hann vildi hafa á fyrirtæki sínu. Leiðin var greið, uppsagnarréttur- inn fyrir hendi og ekki vafðist fyrir atvinnurekandanum að beita honum þótt viðkomandi hafi varið nánast allri starfsævi sinni í dygga þjón- ustu fyrir þetta fyrirtæki. Um mörg fyrirtæki á við, að það er af sem áður var þegar þroski og starfsreynsla þóttu helstu kostir starfsmanna. Nú skal í engu hallað á glæsilegt, ungt og vel menntað fólk sem er að hefja starfsferil sinn eða draga úr möguleikum þess til að öðl- ast reynslu af störfum á vinnu- markaðnum - reynslu sem er oft dýrmætari en langt skólanám. Hins vegar virðist mörgum að hætt sé við því að fyrirtæki gangi of langt í æskudýrkun sinni og ofurkappi í þá veru að ráða eingöngu til starfa ungt og fallegt starfs- fólk - en sneiða hjá þeim sem ekki upp- fylla skilyrðin um æsku og útlit. Ráðningarfesta Samhliða þessari þróun hefur losnað um ráðningarfestu á vinn- umarkaðnum og er víða mikið gegnum- streymi í mannahaldi. Hjá opinberum starfs- mönnum þar sem ráðningarfesta hefur verið hvað traustust hafa orðið miklar breytingar. Hlutafélög í eigu ríkis- ins hafa jafnvel gengið svo langt að taka upp þá stefnu að segja fólki upp störfum þegar það hefur náð til- teknum aldri, langt innan við Starfskraftar Um mörg fyrirtæki á við, segir Ögmundur Jónasson, að það er af sem áður var þegar þroski og starfsreynsla þóttu helstu kostir starfsmanna. aldursmörk sem tíðkast hefur að virða og hafa einnig átt stoð í lögum og samningum, í þessu sambandi er einnig rétt að benda á að þegar lög- um um réttindi og skyldur opin- berra starfsmanna var breytt árið 1996 var tekin upp sú nýbreytni að ráða embættismenn aðeins til fimm ára í senn. Þetta á einnig við um heilar starfsstéttir og má þar nefna lögreglumenn, tollverði og fanga- verði. Allt þetta hefur valdið miklu óör- yggi hjá starfandi fólki sem tekið er að fullorðnast - og ekki að ástæðu- lausu. Vanlíðan í vinnunni, óttinn við að standast ekki sömu kröfur og gerðar eru til ungmennanna, angist- in yfir því vita ekki hvað við tekur - og nánast fullvissa um að ekki komi til greina að fá annað starf á öðrum stað, háir skiljanlega mörgum. Þingsályktun um nýja lagasetningu Undirritaður hefur lagt til á Al- þingi að ríkisstjórnin hefji undir- búning að lagasetningu með það að markmiði að fólk sé ekki látið gjalda aldurs síns á vinnustað, hvort held- ur er með uppsögnum eða mismun- un í starfi. Mikilvægt er að sjálf- sögðu að það verði gert í nánu samstarfi við samtök launafólks. Sjálfsagt er einnig að í því starfi verði tryggt að mjög veigamikil rök yrðu að vera fyrir því að launamenn sem starfa samkvæmt framan- greindri fimm ára reglu fái ekki endurráðningu. Því miður var þingsályktunartillagan ekki sam- þykkt á þessu þingi. En hún verður endurflutt og allt kapp lagt á að vinna henni brautargengi þannig að komið verði í veg fyrir uppsagnir fólks eða mismunun í starfi vegna aldurs. Staðreyndin er sú að málið snýst ekki aðeins um að gæta réttarstöðu eldra fólks, heldur koma vitinu fyrir misvitra stjórnendur sem skilja ekki hver verðmæti felast í reynslu og þroska. Höfundur er alþingismaður og formaður BSRB. Æskudýrkun Ögmundur Jónasson @ BÚNAÐARBANKIÍSLANDS HF Skráning víkjandi skuldabréfa á Verðbréfaþing íslands Útgefandi: Búnaðarbanki íslands hf., Austurstræti 5, 101 Reykjavík, kt. 490169-1219. Lýsing á flokknum: Heiti fiokksins er 1. flokkur 2000. Bréfin eru til 10 ára, bundin vísitölu neysluverðs og bera 6,00% ársvexti. Nafnverð útgáfu: Heildarfjárhæð útgáfunnar er 1.000.000.000 kr. að nafnverði. Þegar er búið að gefa út 250.000.000 kr. að nafnvirði og eru öll bréfin seld. Gjalddagar: Greiddar verða 5 afborganir vaxta á gjalddaga 1. mars ár hvert, í fyrsta skipti 1. mars 2001 og síðasta skipti þann 1. mars 2005. Innköllunarákvæði: Frá og með 1. nóvember 2004 er útgefanda heimilt með auglýsingu að segja upp skuldabréfaflokki þessum með minnst þriggja mánaða fyrirvara. Skráningardagur á VÞÍ: Bréfin verða skráð á VÞÍ þann 16. maí 2000. Skráningarlýsing skuldabréfanna liggur frammi hjá BúnaSarbankanum Verðbréfum BUNAÐARBANKINN VERÐBRÉF ■ byggir á trausti Hafnarstræti 5, 155 Reykjavík. Sími: 525-6060 Fax: 525-6099 Aðili að Verðbréfaþingi (slands. Island í fjórða sæti og myndbands- tæki eða sjónvarp hjá okkur endurgreitt Ef þú koupir sjónvorp eóo mvndbandstœki í Jnpis Brauiorholn Irom aó Eurovision keppninm a laugardaRinn bjóóuni vió þór upp a ftilla endtirgreióslu ef lslancl lendir í fjóróa VX'ti. JAPISS lilfuniíu linlin Bi.mi.n holn l Snm '»S0 0S00 0|lið virli.i (l,i(j,i 10 1S. I,(ii;;,ii(l,(c,i II) I S

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.