Morgunblaðið - 25.09.1998, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1998 53»
FRÉTTIR
Skóvinnu-
stofur
sameinast
FYRR á þessu ári sameinuðust
Skóvinnustofa Gísla Ferdinands-
sonar, stofnuð 1956, og Skóvinnu-
stofa Haildórs Guðbjörnssonar,
stofnuð 1966, og eru nú reknar
undir nafninu Skósmiðurinn ehf. í
Lækjargötu 6a í Reykjavík og í
verslun Hagkaups í Smáranum í
Kópavogi.
Opið er frá kl. 9 til 18 alla virka
daga í Lækjargötu en í Smáranum
er opið alla vikuna frá kl. 10-20
alla virka daga auk þess sem opið
er frá kl. 10-18 á laugardögum og
frá kl. 12-18 á sunnudögum.
Boðið er upp á allar almennar
skóviðgerðir og skóhækkanir auk
þess sem í Smáranum er hægt að
fá smíðað eftir lyklum ýmiss konar.
Einnig er mikið úrval af reimum,
ieppum og áburði.
-----♦♦♦------
Ráðstefna um
ökukennslu
ÖKUKENNARASAMBAND Norð-
urlanda stendúr fyrir ráðstefnu í
Reykjavík dagana 24. og 25. septem-
ber nk. Á henni verður fjallað um
ökukennslu til almennra ökuréttinda í
einstökum löndum.
Fyrirlesarar eru fulltrúar þeirra
stjórnvalda sem ábyrgð bera á þess-
um málaflokki, ökukennarar og þeir
sem unnið hafa að rannsóknum á öku-
kennslu og málefnum ungra öku-
manna. Ráðstefoan er haldin á Grand
Hótel við Sigtún og hefst fimmtudag-
inn 24. september og verðui- síðan
fram haldið kl. 9 fóstudaginn 25. sept-
ember á sama stað.
Helstu umfjöllunarefni verða: Upp-
bygging og skipulag ökuprófa í hinum
ýmsu löndum, rannsóknir á ungum
ökumönnum, viðhorfum þeirra og
hæfni og þróun ökukennslu og
kennsluaðferðum á Norðurlöndum.
Meðal íyrirlesai-a eru nokkrir
helstu sérfræðingar á þessu sviði á
Norðurlöndum.
--------------
Ráðstefna um
markaðslausnir
RÁÐSTEFNA um markaðslausnir í
umhvei’fismálum verður haldin í dag,
fóstudag. Ráðstefnan er samvinnu-
verkefni SUS og evrópusamtaka
ungra hægrimanna.
Markmið ráðstefnunnar er að fjalla
um umhverfisvernd og umhverfis-
stefnu frá sjónarhóh frjálshyggjunn-
ar. Fyrirlesarar á ráðstefnunni eru:
Day Ölin Mount, sendiherra Banda-
ríkjanna á Islandi og fyrrverandi for-
stjóri stefnumótunarski'ifstofu alrík-
isstjómarinnar á sviði haffræði, um-
hverfismála og náttúruvísinda, dr.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson,
stjórnmálfræðingur og prófessor við
Háskóla Islands, di'. Kristján Krist-
jánsson, lífíræðingur, deildarstjóri
hjá rannsóknarráði Islands og Hen-
rik Klem Larsen, hagfræðingur.
Ráðstefnan er haldin í Valhöll,
Háaleitisbraut 1, Reykjavík, og hefst
kl. 10. Ráðstefnan er öllum opin og
fer hún fram á ensku.
-----♦“♦♦-----
Mæðgnahelgi
í Ölveri
MÆÐGNAHELGI verður haldin í
Ölveri helgina 2.-4. október, annað
árið í röð. Mæðgur á öllum aldri eni
boðnar velkomnar í Ölver til að njóta
helgarinnar í andlegu, uppbyggilegu
samfélagi og um leið njóta fagurs
friðsæls umhverfis, segir í fréttatil-
kynningu.
Einnig segir: „Tilgangur helgar-
innar er að gefa mæðgum kost á að
vera saman, að móðir og dóttir hafi
tíma hvor fyrir aðra, að þær geti not-
ið samneytis við aðrar mæðgur og
ekki síst lofað Drottin saman.
Þema helgarinnar er: „Samskipti
mæðgna og sjálfsstyrking" sem Halla
Jónsdóttir mun sjá um. Það verður
einnig lögð áhersla á uppbyggilegt
samfélag þar sem söngur og gleði ein-
kenna andrúmsloftið."
Morgunblaðið/Ásdís
HALLDÓR Guðbjörnsson og Gísli Ferdinandsson í verslun Skósmiðs-
ins í Smáranum í Kópavogi.
Sýning-in New York
frumsýnd á Broadway
SÝNINGIN New York New
York verður frumsýnd laugar-
daginn 26. september en hún
er byggð á lögum Frank
Sinatra, Bing Crosby, Dean
Martin, Nat King Cole o.fl.
19 manna Stórsveit Reykja-
víkur leikur á sýningunni og er
stjómandi Sæbjörn Jónsson.
Þeir söngvarar sem koma
fram eru Andrea Gylfadóttir,
Bjarni Arason, Páll Óskar og
Raggi Bjarna. Hljómsveitin
Casino og Páll Óskar munu
síðan leika fyrir dansi eftir
sýningu til kl. 3.
í fréttatilkynningu segir að
húsið sé opnað kl. 19 og að
æskilegt sé að matargestir
komi sem fyrst til að hægt sé
að þjóna þeim sem best en
sýningin byrjar um kl. 22. Á
matseðlinum er boðið upp á
hlaðborð sem samanstendur af
fjölda kjöt-, fisk-, grænmetis-,
pasta- og eftirrétta.
Hagmælsl
kukeppni
Morgunblaðsins
og Rasar 2
Kvikmyndin DaRSÍJin eíiir \giist
(iuómtindsson Irums.vnd um Jiossar
tnundij’. MvixJin gerisl í fæivvjum Jvarseni
dans og kva*dagerd eru fólki í bló<) borin.
í lileftii af frurnsvningunni slanda
Vlorgunblaóið, Rás 2 og frainleið-
endur Dansins fyrir hagrnadsku-
keppni |rar sem sigurlaunin eru
ferð til færeyja. J’jöldi skeinmli-
legra aukavinninga í boði.
Hér fyiir neðan er frásögn á færeysku
og íslensku. Til að taka þátt í hag-
mælskukeppninni þarft þú að endur-
segja frásögnina í bundnu máli og
að sjálfsögðu yrkja í eyðurnar.
Tá ið Petur kernur í brúdleyp hjá Sirsu, sýslurnansdóttur,
og Haraldi, óðalsbónda, œtlar hann so sanniliga at
dansa í triggjar dagar. Sjálvsagt liggur ongastaóni betur
fyri at fáa fatur á konufólki enn í slíkum veitslum, og
starvið á hvalastöðini krevurfullbornan mann. Peturi
ergreitt, at brúðurin hevur hug atjjasast við öðrum enn
brúðgóminum. Og tá ið hann sigur honum, Sirsa eisini
er skotin t, hetta um ósamlyndið hjúnanna millum, óttast
Petur, at hann hevur volt stórar trupulleikar. Hóast Anna
Linda, sjúkrasystir, rökir hövuðsár Peturs soleiðis, at
hann erfokin, er ilt at spáa um, hvör iðferat njótaylin
l brúðarseingini.
Þegar Pétur kernur til þess að vera viðstaddur brúðkaup
Sirsu sýslurnannsdóttur og Haraldar óðalsbónda ætlar
tiann svo sannarlega að dansa í 3 daga Hverg i er hœgara
að nálgast kverfólkið en einmitt í slíkum veislum og
starfið í Hvalstöðinni krefstfulls manndóms. Pétri erljóst
að brúðuriner með þreifingar gagnvart öðrum en
brúðgumanum. Og þegar hann upplýsir elskhugann um
ósamlyndi brúðhjónanna óttast Pétur að hann efnt til
vandrœða. Þráttfyrir að Anna Linda hjúkrunarkona
geri þannig að höfuðsári Péturs að hannfellur kyllrflatur
er etjitt að spá um það hverfær að njóta ylsins l brúðar-
sœnginni.
Sendu inn söngvísuna þína, (merkta „Hag-
mælskukeppni“ Rás 2, Útvarpshúsinu, Efsta-
leiti, 103 Rvík), nafn, síma og heimilisfang
í pósti, símbréfi í síma 515 3678 eða með
tölvupósti á tölvupóstfangið lisap@ruv.is
fyrir hádegi fimmtudaginn 1. október.
Föstudaginn 2. október kl. 16.50 verður
svo bein útsending á Rás 2 þar sem sigur-
vegarinn verður valinn.
www.mbl.is
.„rStó*
© rr7
Æantic Atrways v * * * *
3foteI
mwvgimHmwm