Morgunblaðið - 25.09.1998, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Tölvunefnd verður við beiðni fyrrverandi borgarstarfsmanns
Greinargerð eytt úr
skjölum Dag vist ar barna
DAGVIST barna í Reykjavík hef-
ur, að tilmælum Tölvunefndar,
eytt greinargerð sem leikskóla-
stjóri leikskólans Laufásborgar
skrifaði til framkvæmdastjóra
Dagvistar barna í nóvember 1996,
í framhaldi af því að starfsmanni á
leikskólanum var sagt upp störf-
um.
Starfsmaðurinn fyrrverandi,
Guðrún María Óskarsdóttir, segir
greinargerðina hafa verið stór-
kostlega árás á persónu sína. Hún
segist ítrekað hafa spurst fyrir um
tilvist þessarar greinargerðar hjá
framkvæmdastjóra Dagvistar
barna. Framkvæmdastjórinn hafi
tvívegis neitað tilvist greinargerð-
arinnar skriflega og ekki viljað
kannast við hana fyrr en eftir að
málið var komið til meðferðar hjá
umboðsmanni Alþingis.
Brotið gegn upplýsingalögum
og lögum um skráningu per-
sónuupplýsinga
Guðrún María segir að með
þessu hafi Dagvist barna brotið
gegn rétti sínum samkvæmt upp-
lýsingalögum og lögum um skrán-
ingu og meðferð persónuupplýs-
inga. Hún hyggst krefja borgar-
sjóð um bætur vegna þess tjóns
sem hún telur sig hafa orðið fyrir
vegna málsins. Hún segist munu
krefjast tæplega 5 milljóna króna
bóta. „Það eru laun fyrir þennan
tíma og bætur fyrir æru mína,“
segir Guðrún María.
Guðrún María segir að sér hafi
verið sagt upp eftir sex ára starf á
Laufásborg í október 1996.
Skömmu síðar komst hún að því
að leikskólastjórinn á Laufásborg
hafði samið um hana þessa grein-
argerð og sent Dagvist barna.
Guðrún María telur að vegna
þess sem standi í greinargerðinni
hafi henni reynst útilokað að fá
vinnu á leikskóla síðan, bæði í
Reykjavík og á Seltjarnarnesi.
Hún var sérhæfður starfsmaður í
Sókn og hafði lokið öllum uppeld-
ismenntunarnámskeiðum ófag-
lærðs starfsfólks.
Hún sagði að þegar hún lagði
fram ósk um aðgang að greinar-
gerðinni hefði hún átt skýlausan
rétt á því, samkvæmt upplýsinga-
lögum og samkvæmt lögum um
skráningu og meðferð persónu-
upplýsinga.
Samkvæmt 9. grein laga um
skráningu og meðferð persónu-
upplýsinga sé skylt að verða við
beiðni þess sem óskar upplýsinga
um hvort persónuupplýsingar um
hann séu færðar í tiltekna skrá.
Eins eigi aðili, samkvæmt 14.
grein laganna, rétt á að krefjast
þess að upplýsingar, sem skráðar
eru um hann, verði færðar í rétt
horf eða.þær afmáðar ef haldin er
skrá yfír upplýsingar sem ekki var
heimilt að skrásetja.
Tölvunefnd
Það var loks eftir að Umboðs-
maður Alþingis hafði afskipti af
málinu, segir Guðrún María, sem
það fékkst viðurkennt að fram-
kvæmdastjóri Dagvistar barna
hefði fengið leikskólastjórann á
Laufásborg til þess að útbúa
greinargerð til að leggja fyrir
stjórn Dagvistar barna um ástæð-
ur uppsagnarinnar. Hún segir að
sú greinargerð sé full af óhróðri,
dylgjum og röngum fullyrðingum
um persónu sína.
Umboðsmaður Alþingis tók ekki
efnislega afstöðu í málinu og leitaði
Guðrún María til Tölvunefndar
vegna málsins. Tölvunefnd fór yfir
þau gögn í vörslu Dagvistar bama
sem tengjast máli hennar og komst
nefndin að þeirri niðurstöðu að
greinargerðin hefði m.a. að geyma
mat þess sem hana skrifaði á per-
sónuleika Guðrúnar Maríu, upplýs-
ingar sem orki tvímælis að séu
réttar.
Tölvunefnd beindi því til Dag-
vistar barna að virða vafa um rétt-
mæti upplýsinganna Guðrúnu
Maríu í hag og fór þess á leit að
skjalinu yrði eytt. Tölvunefnd hef-
ur síðan fengið staðfestingu Dag-
vistar á því að skjalinu hafi verið
eytt og að það finnist ekki lengur í
neinu skjalasafni hjá stofnunum
borgarinnar.
Sverrir Hermannsson
Brottkastið
er 100-200
þúsund tonn
„í REIKNILÍKANI Hafrann-
sóknastofnunar er reiknað með
að brottkast þorsks af íslands-
miðum sé í kringum 10 þúsund
tonn. Ég fullyrði að brottkastið
sé á milli 100 og 200 þúsund
tonn,“ sagði Sverrir Her-
mannsson, sem í gær kynnti
stofnun nýs stjórnmálaflokks,
Frjálslynda flokksins, en meg-
inverkefni hans er að berjast
fyrir breytingum á fiskveiði-
stefnunni.
Sverrir sagði að þekking
fiskifræðinga á fiskistofnum og
aðstæðum þeirra í hafinu væri
ekki næg og hana þyrfti að
stórauka.
Sverrir sagði að þegar
kvótakerfinu var komið á hefði
markmiðið með því verið að
bjarga fiskistofnunum og hag-
ræða í sjávarútvegi. Hann full-
yrti að þessi markmið hefðu
ekki náðst. Sverrir benti á að
meðalþorskafli af íslandsmið-
um á ári á 20 árum áður en
kvótakerfinu var komið á hefði
verið 440 þúsund tonn. Núna
væri þorskaflinn að komast
upp fyrir 200 þúsund tonn.
■ Tekur tvö ár/10
Veglyklarnir
eru komnir
Morgunblaðið/Golli
STARFSFÓLK og nemendur
Fjölbrautaskóla Suðurnesja
gengu á Keili á árlegum göngu-
degi skólans í gær. Alls mættu
um 600 manns og þar af gengu
um 400 þeirra á fjallið. Tilgang-
ur göngunnar var tvíþættur, ann-
ars vegar að vekja athygli á ósk
Suðurnesjabúa um að fjallið yrði
áfram í eigu þeirra, en Hitaveita
Reykjavíkur gerði tilboð í jarð-
hitasvæði á landræmu á Vatns-
leysuströnd upp að Keili og átti
Qallið að fylgja með í kaupunum.
400 manns
á Keili
Af þeim verður þó ekki því
Vatnsleysustrandarhreppur hef-
ur tilkynnt að hann muni nýta
sér forkaupsrétt á landsvæðinu.
Hins vegar vildu nemendur og
starfslið skólans njóta útiveru í
góðu veðri og búa sig undir eril-
sama námsönn. Að sögn Höllu
Bjargar Evans, gjaldkera Nem-
endafélags Fjölbrautaskólans á
Suðumesjum heppnaðist dagur-
inn vel, pylsur voru grillaðar,
farið var í fótbolta, ræður fluttar
og ljallið klappað og knúsað.
Halla Björg sagði að nemendur
hefðu einkum viljað hafa gaman
af deginum og sagði að þeir
hefðu tekið hugmyndina mis-
alvarlega. Hún sagði að pólitísk-
ur tilgangur fararinnar hefði þó
aðeins verið í bakgrunni.
SAMTALS 4.000 veglyklar, sem
veita afslátt í Hvalfjarðargöngin,
komu til landsins í fyrradag en lykl-
arnir komu seinna en áætlað var þai-
sem sending þeirra misfórst á leið til
landsins, að sögn Stefáns Reynis
Kristinssonar framkvæmdastjóra
Spalar ehf. Upphaflega áttu lyklarn-
ir að vera komnir til landsins um síð-
ustu helgi.
Hægt er að kaupa veglyklana á
þremur bensínstöðvum í Reykjavík,
en þær eru Olís við Sæbrautina,
Essó á Ártúnshöfða og Shell við VesL
urlandsveg. Lyklamm eru einnig
seldir hjá olíufélögunum í Borgarnesi
og á Akranesi. Mestur afsláttur fæst
með því að kaupa 40 ferðir í Hval-
fjarðargöngin með veglykli og kosta
þær samtals 24.000 krónur auk 2.000
króna sem fást endurgreiddar þegar
veglyklinum er skilað.
Hver veglykill er skráður á við-
komandi bíl og festur á framrúðu
hans. Er síðan sjálfkrafa lesið af
DREGIÐ var úr Heita pottinum hjá
Happdrætti Háskóla íslands í gær og
hlaut Hafnfirðingur hæsta vinning, 10
milljónir króna. Annar Hafnfirðingur
átti einfaldan miða og fékk rúmar 1,2
milijónir króna.
Sá sem fékk 10 millj. átti tromp-
honum þegar keyrt er inn í Hval-
fjarðargöngin. Grænt ljós kemur við
gangaopið ef búið er að greiða ferð-
ina fyi-irfram en rautt ljós ef ferðin
er ógreidd og sjálfkrafa tekin mynd
af bílnum.
---------------
Forsætis-
ráðherra
til Mexíkó
FORSÆTISRÁÐHERRA Davíð
Oddsson og frú Ástríður Thorai-en-
sen fai-a í opinbera heimsókn til
Mexíkó dagana 8. og 9. október nk. í
boði Ernesto Zedillo forseta Mexíkó.
I framhaldi af heimsókninni munu
ráðherrahjónin og fylgdarlið fara til
borganna Guymas og Mazatlan í
Mexíkó og heimsækja fyrirtæki í
eigu Islendinga, sem þar reka starf-
semi.
miða auk þriggja einfaldra miða með
númerinu sem dregið var. í fi-étt frá
happdrættinu er bent á að Hafnfirð-
ingar hafi átt láni að fagna að undan-
fómu því í síðasta mánuði fékk Hafn-
firðingui', sem átti trompmiða, tæpar
7 millj. og annar fékk nýverið 10 millj.
Fékk 10 milljónir
8SÍMIR
Á FÖSTUDÖGUM
Spennan magnast fyrir
úrslitaleik KR og ÍBV/C1
Manchester United
í þriðja sætið/C3
Fylgstu
með
nýjustu
f réttum
www.mbl.is