Morgunblaðið - 16.06.1998, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1998 31
ERLENT
Geislavirkt ský
sem mældist um
hálfa Evrópu
Madríd. The Daily Telegraph.
YFIRVÖLD á Spáni reyna nú að
komast til botns í því hvers vegna
geislavirkt ský, sem talið er að hafi
sloppið úr stálverksmiðju á suður-
strönd Spánar fyrir tveimur vikum,
mældist ekki fyrr en það hafði
borist til flestra landa Evrópu.
Kjarnorkuöryggisnefnd Spánar
viðurkenndi um helgina að reykský
af alkalímálmtegundinni sesíum 137,
sem er geislavirkt efni, hefði mælst í
Frakklandi, Sviss, Austurríki, Italíu
og í Þýskalandi en ekki á Spáni þar
sem það átti uppruna sinn. Sérfræð-
ingar í Evrópu auk Greenpeace-
samtakanna segja mæhngar geisla-
virkra efna upp undir þúsund sinn-
um hærri en við venjulegar kring-
umstæður. Alþjóða kjamorkustofn-
unin, sem hefur aðsetur í Vín, telur
hins vegar magn sesíum 137 í and-
rúmsloftinu langt undir hættumörk-
um og að engin ástæða sé fyrir al-
menning að hafa áhyggjur. Hóf
stofnunin þó þegar rannsókn á upp-
runa geislamengunarinnar.
Það var hins vegar ekki fyrr en
um helgina að lítil stálverksmiðja í
hafnarbænum Algeeiras, nærri Gí-
braltar, tilkynnti geislavirkni í ösk-
um málmsteypu sem mögulegan or-
sakavald mengunarinnar. Er talið
líklegt að geisiavirkt brotajám úr
læknatólum ýmiskonar hafí verið
brætt fyrir mistök í verksmiðjunni í
lok maí. Hluti verksmiðjunnar hef-
ur nú verið girtur af og mun starfs-
lið hennar gangast undir nákvæma
læknisskoðun.
Fatima Rojas, talsmaður
spænsku kjamorkuöryggisnefndar-
innar, sagði eiturskýið ekki hafa
mælst á Spáni vegna þess að það
væri „langt undir áhyggjumörkum“.
Stjómvöld á Ítalíu hafa hins vegar
sakað Spánverja um að viðhafa lé-
leg vinnubrögð við mælingar og að
þeir hafi síðan ekki tilkynnt meng-
unina þegar hún kom fram.
-----------------
1.500 Boeing-
þotur verði
skoðaðar
SKOÐA þarf hliðarstýrisfótstig á
um 1.500 Boeing þotum í kjölfar
þess að fótstig flugstjóra á 737 þotu
duttu úr sambandi í lendingu fýrir
skömmu, að því er Associated Press
greindi frá í gær. Aðstoðarflugmað-
ur tók við stjórn vélarinnar og lend-
ingin gekk að óskum.
Bandaríska loftferðaeftirlitið,
FAA, mun senda út fyrirmæli um
skoðun innan skamms og eiga þau
við þotur af gerðunum 737, 747, 757,
767 og 777, en tækin sem um ræðir
em með svipuðu sniði í öllum þess-
um gerðum.
Gefínn verður níutíu daga frestur
til að ljúka skoðuninni og sé endur-
bóta þörf skulu þær gerðar sam-
stundis.
Hvað heitir þú? - hverra manna ertu?
Er ættarmót í
UPPSIGUNGU?
Á stóru ættarmóti er tilvalið að næla nöfn
þátttakenda í barm þeirra. í Múlalundi færð þú
barmmerki fyrir þetta eða önnurtilefni. Einnig
fást þar plastmöppurnar þægilegu fyrir
Ijósmyndirnar.
Hafðu samband við sölumenn okkar
í síma 562 8501 eða 562 8502.
Múlalundur
Vinnustofa SÍBS
Símar 562 8501 og 562 8502
1 >A-
SSA
Fæst einnig í
BYKO og Byggt&Búið
Fyrir 33 cl og 50 cl dósir
• Stórsparar geymslurýmið
• Mjög auðveld í notkun
P FAI F
cHeimilisUekjaverslim
Grensásvegur 13 -108 Reykjavík - Sími 533 2222