Morgunblaðið - 27.02.1994, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1994
47
Gárur
eflir Elínu Pálmadóttur
Konungskrúna
fyrirhest
Hest! hest! mín konungskrúna
fyrir hest! hrópar Ríkharð-
ur þriðji á vígvellinum, þegar
hann örvæntir um konungdóm
sinn og líf. „A horse, a horse!
my kingdom for a horse,“ á máli
Shakespears. Mikið liggur við hjá
Ríkharði 3., „hestur hans drep-
inn! hann berst einn og leitar
jarlsins af Ríkmond djúpt í dauð-
ans gini. Bjargið
fljótt herra; ella
tapast allt,“ eins
og Katbæingur
gerir leikhúsgest-
um ljóst. Kon-
ungsríki dugar
ekki fyrir hesti,
konungur berst
og fellur að lok-
um. Ekki veit ég
hvort það breytti
nokkru að ráði
um afdrif bre-
skrar þjóðar, en
það skipti þennan
kóng sjálfan máli.
Það er svo miklu
betra að vera lif-
andi en dauður.
Og mun skemmti-
legra.
Þessi frægu orð hafa a.m.k.
lifað um aldir og þykja býsna
brúkleg enn. Koma upp í hugann
af margvíslegu tilefni. Er ekki
franskur ráðherra þessa stundina
að hrópa í vandræðum sínum:
Evrópusamning fyrir fiskleysi!
Og erum við ekki farin að heyra
hér: Þorsk! þorsk! óveiddan þorsk
fyrir þingsæti! Enda þrengir að
í orustunni um fiskinn í sjónum
við ísland og raunar víðar — og
kosningar fara að nálgast. Það
er hinn bráði veruleiki stundar-
innar.
Ekki hefur Shakespeare mikla
samúð með hinum hestvana Rík-
harði 3., sem í sögunni er ill-
menni — kannski af því einu að
hann tapaði. Nú er fátt um valda-
mikla kónga. Tíminn fer óneitan-
lega mun betur með þá sem um
stjórnvölinn halda í lýðræðisriki
á borð við okkar, hvert sem þeir
svo stýra fleyinu. Setja þjóðar-
skútuna út af kúrsinum eða sigla
farsælan sjó. Ólygnir segja að í
svona stjórnskipulagi beri menn
ábyrgð á verkum sínum. En hve
lengi? í fjögur ár? Styttra er líður
á kjörtímabilið?
Veit nokkur lengur hver ber
ábyrgð á þeim liðnu ákvörðunum
sem nú eru að hrella okkur?
Hver tók t.d. ákvarðanir sem
skiptu sköpum í fiskveiðum er fór
að bera á ofveiði? Eða í fjármál-
um og skuldasöfnuninni? Fylgir
ábyrgðin þá ekki þeim hinum
sama? Þegar komnar eru í ljós
afleiðingamar af slíkum ákvörð-
unum og skaða sem þær hafa
valdið, ætti væntanlega ekki að
láta hann sýsla meir á vettvang-
inum þar sem hann sýndi dóm-
greindarleysið og skort á fram-
sýni? Eðá lét ýta sér út í það.
Er honum það enginn fjötur um
fót til áframhaldanndi trúnaðar-
starfa eða nýrra á þeim vett-
vangi að hafa ekki skilið mekan-
ismann í fjármálunum hér og í
alþjóðasamhengi. í umræðunni
er sagt að ekki megi koma niður
á starfsframa manna að þeir
hafi verið stjórnmálamenn.
Skárra væri það nú, í stjórnmál-
um er margvísleg og fjölbreytt
reynsla sem vel nýtist. En á þá
ekki að meta hver er hæfur í
starfið jákvætt eða neikvætt eftir
því hvernig fyrri ákvarðanir hans
og ráðstafanir hafa reynst? Sjálf-
sagt er oft erfitt að greina í flókn-
um málum liverjuni er um að
kenna eða ber að lofa fyrir að
hafa tekið rétt á málum. En ef
er að marka leikreglur um vald
með ábyrgð, þá hlýtur að liggja
fyrir hver bar ábyrgðina á
ákveðnum afdrifaríkum ákvörð-
unum. Hann situr uppi með hana.
Vandi fylgir vegsemd hverri. En
er það svo í þessu tilfelli?1 Erum
við ekki búin að steingleyma hver
það var sem tók ákvörðunina um
hveija af þessum þjóðardrepandi
lántökum, í góðæri jafnt sem
slæmu árferði?
Líklega er þetta eftir allt bara
fjögurra ára ábyrgðarskírteini.
Samt er verið að taka afdrifarík-
ar ákvarðanir sem varða hvem
einstakling I landinu um langa
framtið. Þá fer að verða skiljan-
legt að menn vanti hest í snar-
heitum til að forða sér f bili und-
an hótunum. Að ekki sé talað
um ef þeir era eins og sumir al-
þingismenn í þeirri ómögulegu
stöðu að fáir hótandi kjósendur
á afmörkuðum stöðum hafa
frama þeirra í hendi sér. Að falla
með sæmd var víst bara á dag-
skrá í íslendingasögunum. Við-
búið er að gleymist hveijir stóðu
af sér skammtímaþrýstinginn og
björguðu málum til langframa,
eins og fískinum í sjónum handa
íslendingum framtíðarinnar. En
ósköp er uppörvandi að koma
auga á slíka kjarkmenn líka nú.
Tvennt var það sem sló saman
og ýtti þessum pistli af stað,
umræðuþáttur í sjónvarpi um
ábyrgð alþingismanna annars
vegar og hins vegar ummæli út-
gerðarmannsins fremur en skip-
stjórans á togaranum Óttari Birt-
ingi. Hann er auðvitað í þreng-
ingum að reyna af mikilli útsjón-
arsemi að bjarga sér í kvótaleysi
og sækja á fjarlæg mið. Ég
sperrti eyran þegar hann lýsti
því að hann hefði farið til að leita
fyrir sér um veiðar í Flæmska
hattinum við Nýfundnaland, en
veiddi ekki neitt „því þar var fisk-
urinn bara blóðmæli", þorsktitt-
irnir sem þar eru einir eftir orðn-
ir svo litlir að ekki tekur því jafn-
vel fyrir kvótalaust skip að veiða
þá. Þarna er búið að blóðmjólka
fiskimiðin. Með slíkt viti til vam-
aðar í sjónmáli er hér nú farið
að hóta þingmönnum og tala um
neyðarrétt í trássi við skömmtun,
til að veiða meiri þorsk en óhætt
er talið svo byggja megi stofninn
upp aftur hér við land — og fara
í kjölfarið aftur að veiða.
Lokaorð Shakespears í leikrit-
inu um Ríkharð þriðja og ófarir
hans, þrátt fyrir gylliboðin, eru
lögð í munn sigurvegaranum,
jarlinum af Ríkmond: „Lát engan
níðing njóta landsins gæða, sem
nyti þess að sjá þvi aftur blæða.
I friði munu sárin gróa um síð,
og sættir bindast vel á nýrri tíð.“
Alþjóðlegir
pennavinir
Félagsskapur okkar hefur nú 300.000 meðlimi í 210 löndum og við getum
útvegað pennavini sem skrifa á ensku, frönsku, þýsku, spænsku og portúg-
ölsku. Yngsti meðlimur okkar er 8 ára, elsti meðlimurinn er fæddur 1920.
Við erum með eigin frímerkja-skiptimiðstöð og yfir 6.000 frímerkjasafnara
á meðlimaskrá. Við bjóðum upp á einstakt prógram fyrir kennara, bekkjarfé-
lög, skátafélög og unglingafélög á aldrinum 10-17 ára. Allar upplýsingar
fást hjá
International Pen Friends, P.O. Box 340, Dublin 12, írland.
1.345.000 h,
vökva og veltistýri
rafdrifnar rúður
samlæsing
rafdrifnir speglar
> tölvustýrt útvarp og segulband
4 hátalarar
HYunoni
...lil framtíðar
ÁRMÚLA 13 • SÍMI: 68 12 00 • BEINN SÍMI: 3 12 36
'94 árgerðin af Elantra er enn
veglegri og öflugri en áður.
Bfllinn er búinn 1,8 lítra og 126
hestafla vél sem skilar bflnum góðri
snerpu hvort sem gírkassinn
er beinskiptur eða sjálfskiptur.
Elantra er 4,36 m á lengd og
1,7 m á breidd.
ELANTRA
glæsilegur bíll
á góðu verði