Morgunblaðið - 27.02.1994, Síða 31
31
MORGUNBLAÐIÐ
MIIMNINGAR
SUNNUDAGUR 27. FEBRUAR 1994
ópu, milliliðalaust veður á þeirra
áfangastað. Hann var mikill músík-
maður og hlustaði mikið á djass.
Hann átti dýra myndavél og tók tölu-
vert af myndum. Á hveiju sumri
stundaði hann silungsveiði hér í lón-
inu og við leirurnar eftir að vegurinn
kom yfir fjörðinn. Notaði hann þá
óspart sínar eigin veiðiaðferðir, sem
oftar en ekki báru góðan árangur.
Hin síðari árin beindist áhugi hans
að andlegum sviðum, sálarrannsókn-
ir og huglækningar áttu hug hans
meira en hálfan. Reyndi hann sjálfur
fyrir sér með huglækningar og
handayfirlagningar og fundu margir
frá honum strauminn en aðrir minna
eða ekkert eins og gengur, því alltaf
vildi hann hjálpa og að liði verða og
ekkert gladdi hann meira en að líkna
þeim sem þjáðust.
Um leið og við kveðjum góðan
dreng með söknuði sendum við að-
standendum hans okkar dýpstu sam-
úðarkveðjur.
Vinnufélagar.
Enginn veit hvað nýr dagur ber í
skauti sér. Snemma morguns hringdi
síminn og okkur var tilkynnt lát
Sverris, mágs míns. Þrem dögum
áður hafði hann haldið frá okkur
norður til Akureyrar, heim til sín,
kátur og hress eins og hans var
vandi. Síst gat okkur órað fyrir að
sá yrði síðasti fundur okkar.
Sverrir Vilhjálmsson var borinn
og barnfæddur Akureyringur, yngst-
ur þriggja systkina, Valgerðar og
Jóns Kristins. Foreldrar hans voru
þau Vilhjálmur Jónsson, öryggiseft-
irlitsmaður á Akureyri, og Magnea
Halldóra Daníelsdóttir. Vilhjálmur
var sonur Jóns Kristins Kristinsson-
ar, bónda á Ystabæ í Hrísey, og
Hallfríðar Þórðardóttur. Magnea var
dóttir Daníels Gunnarssonar, stein-
smiðs, og Valgerðar Arinbjamardótt-
ur sem fyrst bjuggu á Melstað í Gler-
árþorpi en síðar á Akureyri. Þau
Vilhjálmur og Magnea reistu sér hús
að Helgamagrastræti 38 í upphafí
stríðs og bjuggu þar ávallt síðan.
Sverrir lauk prófi í flugumferðar-
stjórn og starfði síðan sem flugum-
ferðarstjóri við flugstöðina á Akur-
eyri. Hann gekk að eiga Hönnu Sig-
ríði, símakonu, Sigurðardóttur Hann-
essonar, trésmíðameistara, og Svan-
bjargar Baldvinsdóttur. Þau skildu.
Börn Hönnu Sigríðar og Sverris voru
þessi: 1) Svanbjörg, fædd 19. sept-
ember 1960, tónlistarkennari að
mennt, gift Manfred Lemke, sviss-
neskum kennara, og starfa þau bæði
við Stórutjamarskóla í Þingeyjar-
sýslu; þau eiga þijá syni, Hannes,
Sigurð og Þorstein; 2) Halldór
Magni, fæddur 5. janúar 1963, vél-
stjóri, unnusta hans er Hugrún ívars-
dóttir; 3) Hanna Margrét, fædd 17.
mars 1965; hennar sonur, Rafn Hall-
dór Gíslason; Margrét stundar nú
tónlistarnám í Belgíu og unnusti
hennar er Naceur E. Klaim, rafeinda-
fræðingur.
Fömnautur Sverris síðustu árin
var Regína Kristinsdóttir frá Önguls-
stöðum í Eyjafírði. Var samband
þeirra mjög einlægt og gott. Er miss-
ir hennar mikill.
Margs er að minnast úr um þrjátíu
ára samfýlgd bæði sunnan fjalla og
norðan. Þær em orðnar margar ferð-
imar um byggðir Eyjafjarðar allt til
innstu dala. Sverrir var að upplagi
náttúraskoðari því að hann hafði
næmt auga fyrir formi og litum. Þetta
tengdist áhuga á ljósmyndum. Ófáar
vom ljósmyndimar sem hann tók af
sólarlaginu við flugvöllinn eða úr
flugtuminum. Þá var honum hugleik-
ið fugialífíð við pollinn og leimmar.
Alltaf var áhuginn jafn lifandi að
hveiju sem athyglin beindist.
Eftir því sem árin færðust yfír tók
athyglin í vaxandi mæli að beinast
að hinu hulda og dulræna eða sem er
í flestum öðmm alveg hulið. Safnaði
hann bókum um slík efni. Samur var
áhuginn eins og á öllu öðm sem hann
fékkst við. Var áhugi þessi þeim sam-
eiginlegur Regínu og honum.
Vil ég svo að lokum óska honum
góðrar ferðar og þakka honum sam-
fylgdina.
Björn.
Suðurhlíð Mosfellsbæ
10294
Til sölu lögbýlið Suðurhlíð í Mosfellsbæ. Byggingar eru
nýlegt íbúðarhús og bílskúr ásamt glæsilegu 22 hesta-
húsi með gerði og öllum búnaði. Um 7500 fm eignar-
land. Glæsiieg eign rétt við borgarmörkin.
Nánari upplýsingar á skrifstofu F.M.
»FASTEIGNA
MIÐSTÖÐIN ■
SKIPHOLTI 50B - 105 REYKJAVÍK
SÍMI 622030 - SÍMBRÉF 622290
GóScn íbúSir
gott verð
Til sölu 2ja, 3ja og 4ra herbergjg íbúðir í Grcrfarvogi.
íbúðirnctr eru seldar tilbúnar með vönduðum, íslenskum
innréttingum og teppum og dúk á gólfum. Allar íbúðir
með sér inngangi. Verðið kemur þœgilega á óvart
5.400 þús.-6.980 þús. íyrir íullbúnaíbúð!
Allar nánari upplýsingar gefa sölumenn okkar
á skrifstofunni á Funahöfða 19 í síma 813599.
Opið surmudag kl. 13-17.
Armannsfell m
Funahöfða 19 • Sími 91-813599
Nesbali 116 - opið hús
Rúmgott og fallegt raðhús á þremur pöllum 251 fm.
Innbyggður bílskúr. Gott eldhús með sérsmíðaðri inn-
réttingu, dagstofa með arni, 4 svefnherb., bókaherb.,
sauna o.fl. Húsið stendur í útjaðri byggðar vestast á
Nesinu. Frábært útsýni. 3539.
Húsið verður til sýnis í dag sunnudag frá kl. 14-17.
EIGNAMIÐLIMN",
Sími 67-90-90 - Síðium'ila 21
Opið hús kl. 14-17
iIÓLl
FASTEIGNASALA
Fossagata 11 - hæð + ris
© 10090
SKIPHOLTI50B, 2. hæðt.v.
Franz Jezorski, lögg. fast.saii.
Bollagarðar 91 - Seltjn.
Þetta stórgl. einbhús alls 235 fm er til
sölu og sýnis fyrir þig og þína fjölsk. í
dag. Húsið sem er sórl. vandað skiptist
m.a. í 4 herb. og stórar stofur m. einu
glæsil. sjávarútsýni á Nesinu. Sjón er
sögu ríkari. Grímur og Guðfinna taka á
móti þér í dag milli kl. 14 og 17. Það
er ekkert mól að skoöa. Ath. kaffiveit-
ingar á Hóli við undirskrift tilboðs.
Esjugrund 31, Kjal.
í þessu hlýlega endurbyggða húsi getur
þú í dag skoöaö og keypt efri hæð og
ris sem er fallega innr. sem 2 sjálfstæð-
ar íb. Mögul. er að sameigna íb. í eina
ef vill. Bílskróttur fylgir. Áhv. byggsj.
o.fl. 8,0 millj. Verð 11,5 millj.
Stangarholt 4 - hæð + ris
Sórdeilis falleg íb. á efri hæð og í risi
á þessum fráb. staö. íb. skartar nýrri
eldhinnr. og endum. baöherb., 4-5
svefnherb. og 2 stofum. Láttu ekki happ
úr hendi sleppa og skoðaðu í dag. Verð
aðeins 7,8 millj.
Baughús 10 - einb.
Þetta gullfallega einbhús sem er 185
fm á einni hæð getur þú skoöað í dag.
Húsið sem er hið vandaðasta skiptist
m.a. í 4 herb. og stofu m. góðri ver-
önd. Verðið er sórl. hagst. aðeins 9,9
millj. og þú getur boðið þína eign uppí.
Kristbjörg og Tryggvi taka á móti þór í
dag milii kl. 14 og 17. Þetta er góður
sunnudagsbíltúr.
Holtsgata 31, 2. hæð
Þetta gullfallega nýja hús sem er 238
fm auk 40 fm bílsk. stendur á frób. út-
sýnisstað í Grafarvogi. Arinn í stofu.
Mögul. að hafa 2 íb. í húsinu. Stefón
og Berglind bjóða þig sérstaklega vel-
kominn til þess að skoða í dag. Áhv.
5,7 millj. Verð 15,9 millj.
Flókagata nr. 6
Mjög skemmtileg 3ja herb. íbhæð á
þessum sívinsæla staö skammt frá
Kjarvalsstöðum. Hæöin skiptist í 2
rúmg. stofur og 1 svefnherb. Stór suð-
urgarður. Nýr bílsk. fylgir. íb. er laus
strax. Gakktu í bæinn. Verð aöeins 7,5
millj.
Huldubraut 12 - Kóp.
Glæsil. 174 fm nýtt parhús með innb.
bílsk. á fráb. útsýnisstað í vesturbæ
Kóp. Sérl. vönduö innr. í eldh. og bað-
herb. Áhv. húsbr. 6,9 millj. Þessa glæsi-
eign getur þú skoðað í dag milli kl. 14
og 17. Gakktu í bæinn. Verð 13,5 millj.
Austurberg 16 - bílsk.
I þessu virðulega steinh. í vesturbæn-
um bjóðum við upp á klassíska 3ja herb.
90 fm íb. sem skiptist m.a. í stórt svefn-
herb. og 2 saml. stofur. Hagst. verð
kr. 6,0 millj. Þú bankar upp ó í dag
milli kl. 14 og 17 og skoðar.
Huldubraut nr. 66 - parh.
Glæsil. 160 fm parhús á tveimur hæö-
um m. innb. bílsk. 3 svefnherb. Maka-
skipti mögul. ó minni eign. Líttu inn í
dag milli kl. 14 og 17. Áhv. 7,3 millj.
Verð 12,1 millj.
Hér býðst þór 5 herb. 107 fm íb. m.
góðum herb., suðursvölum og frábæru
útsýni. Eign í góðu óstandi. Bílskúr fylg-
ir. Áhv. 4,9 millj. Verðið er hagstætt
og klárt kr. 7,9 millj. Vertu ekki feimin/n
og skoðaðu þessa í dag milli kl. 14 og
17, annars gætirðu misst af henni.
Opiðídag kl. 14—17