Morgunblaðið - 27.02.1994, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1994
19
fitubrenr ~'
námskei
Björgunar- og slysavama-
starfsemi kynnt um allt land
BJÖRGUNARDAGAR verða haldnir um allt land dagana 4.-6.
mars nk. á vegum Landsbjargar og Slysavarnarfélags íslands,
undir nafninu Björgun ’94. Ætlunin er kynna fyrir almenningi í
landinu fjölhæfa björgunar- og slysavarnastarfsemi samtakanna
og aðUdarsveita þeirra. Þetta verður viðamesti sameiginlegi atburð-
ur þessara tveggja björgunarsamtaka í landinu og fyrsta skref í
samstarfssamningi sem samtökin gerðu seint á siðasta ári.
Hringamiðja Björgunar ’94
verður Perlan. Þar verður sýning
á alls kyns útbúnaði tengdum
björgun, ferðalögum og útivist.
Stöðug dagskrá verður í gangi s.s.
fyrirlestrar, fræðsla, björgunaræf-
ingar, sýnikennsla o.s.frv. Há-
punkturinn er svo „Risa björgunar-
æfmg“ í ca. 1 km radíus Perlunnar
á landi, lofti og sjó. Þar verður
öllu til tjaldað; bílum, flugvélum,
fallhlífastökkvurum, þyrlum, leit-
arhundum, bátum o.fl.
Björgunarsveitir um land allt og
aðrir sem tengjast almannavama-
kerfí landsins munu taka virkan
þátt í Björgun ’94 með kynningu
á búnaði og annarri almennri
björgunar- og slysavamafræðslu.
Aætlað er að sunnudaginn 6. mars
nk. verði opin hús hjá öllum björg-
unarsveitum í landinu og jafnvel
fleiri aðilum sem tengjast al-
manna- og slysavömum.
Tilgangurinn með Björgun ’94
er að koma almenningi f landinu
í snertingu við þetta mikilvæga
starf og um leið að nýta þá miklu
þekkingu sem björgunarsveitar-
menn um land allt búa yfír til að
fræða almenning um ýmis grand-
vallaratriði s.s. skyndihjálpar, átta-
vita, fjallamennsku, slysaforvöm-
um o.fl.
Björgun ’94 er samstarfsverk-
efni björgunarþjónustunnar í land-
inu sem öll fjölskyldan getur tekið
virkan þátt í, hvort sem það er í
sínu heimahéraði eða með því að
mæta í Perluna og taka þátt í
spennandi björgunarhátíð með
áhugaverðri fræðslu í bland við
department sem upplifði og tók
þátt í björgunarstörfum við jarð-
skjálftann í Los Angeles nú nýver-
ið. Hann mun flytja fyrirlestur og
sýna myndir frá atburðum þar.
skemmtilega dagskrá.
í tilefni Björgunar ’94 munu
þrír erlendir gestir koma til lands-
ins. Þar á meðal er Richard War-
ford, Battalion chief, L.A. city fíre
MARKVISS
HmALFUN - ÖRUGGUR ÁRANGUR
Þaö er ekki aö
ástæöulausu aö
námskeiöin okkar
hafa verið fullbókuö
frá upphafi!
^ Morgunhópur
Daghópur
Kvöldhópar
Barnagæsla
AGUSTU OG HRAFNS
SKEIFAN 7 108 REYKJAVÍK S. 689868
Innifalið í námskeiði:
fitumæling og vigtun
þjálfun 3-5x í viku
uppskriftabæklingur
m/léttu fæði
mappa með fróðleik og
upplýsingum
matardagbók
fræðsla og aðhald
5 heppnarog
samviskusamar frá frítt
þriggja mánaða kort
Fyrirlestur
um orkuj
brautir lík-
amans
HALDINN verður fyrirlestur,
þriðjudagskvöldið 1. mars, sem
ber yfirskriftina: Orkubrautir
líkamans — vegakort til vel-
líðunar. Fyrirlesari er Úlfar
Ragnarsson læknir.
Úlfar lærði nálastungur í Þýska-
landi árið 1981 hjá doktor Jochen
Gleditsch og hefur stundað lækn-
ingar með þeim hér á landi frá
árinu 1984. Dr. Gleditsch hóf feril
sinn sem læknir, bætti síðan við
sig tannlækningum og sérgrein
sem háls-, nef- og eyrnalæknir. í
framhaldi af því fór hann til Kína
til náms í nálastungulækningum
og starfar við þær í Þýskalandi.
Hann var um tíma formaður þýsku
nálastungulækningasamtakanna
og hefur bæði kennt og haldið
fyrirlestra um efnið í Þýskalandi
og víðar.
Nálastungulækningar byggja á
„acupuncture", hinum fomum
nálastungumeðferðum Kínveija,
en með þeim unnu þeir stórkostleg
læknisafrek nokkur þúsund áram
áður en vestræn læknisfræði kom
til sögunnar. Kynntar verða helstu
orkubrautir líkamans, lykilpunktar
sýndir og fjallað um mikilvægi
þess að um þessar orkubrautir sé
jafnt orkuflæði, til að viðhalda
heilbrigði líkamans.
Fyrirlesturinn er öllum opinn og
verður haldinn í sal SVFR á 2. hæð
í Austurveri við Háaleitisbraut.
Aðgangseyrir er 300 kr.