Morgunblaðið - 06.06.1989, Blaðsíða 64
ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 1989
VERÐ í LAUSASÖLU 80 KR.
Annar íslenzki hjartaþeginn:
Nýtt hjarta grætt
J sextán ára Grind-
víking í Lundúnum
Aðgerðin tókst vel og líðanin eftir atvikum góð
NÝTT hjarta var í fyrrinótt grætt í 16 ára gamlan íslenzkan pilt,
Helga Einar Harðarson frá Grindavík, á Brompton-sjúkrahúsinu í Lund-
únum. Aðgerðina framkvæmdi prófessor Magdi Yacoub, yfirlæknir á
sjúkrahúsinu, og tók hún alls um sex klukkustundir. Helgi var ekki
enn kominn til meðvitundar eftir svæfinguna er Morgunblaðið hafði
síðast spumir af í gærkvöldi, en að sögn foreldra hans var líðan hans
talin góð eftir atvikum.
Helgi er annar íslenzki hjartaþeg-
inn. Sá fyrsti var Halldór Halldórs-
son, sem fékk nýtt hjarta og lungu
í febrúar í fyrra. Prófessor Yacoub
gerði einnig aðgerðina á Halldóri.
' Að sögn sr. Jóns A. Baldvinssonar,
sendiráðsprests í Lundúnum, voru
veikindi Helga erfiðari en Halldórs,
sem gat lifað sæmilega eðlilegu lífi
þar til réttu líffærin höfðu fundizt.
Helgi hefur hins vegar verið mjög
mikið veikur eftir að hann fékk
slæma flensu og veirusýkingu upp
úr henni, sem reyndi mjög á hjartað.
Því varð að taka fyrsta hjartað, sem
gafst. Hann hefur verið á Brompton-
sjúkrahúsinu síðan 11. maí. Undan-
fama daga hefur hann verið meðvit-
undarlaus, og bæði í öndunarvél og
Helgi Einar Harðarson, annar
íslenzki hjartaþeginn.
hjartavél. Sr. Jón sagði að á meðan
pilturinn hefði haft meðvitund hefði
hann tekið veikindunum eins og
hetja. „Hann hefur sýnt mikið hug-
rekki,“ sagði sr. Jón.
Foreldrar Helga, þau Hörður
Helgason og Sigurbjörg Asgeirs-
dóttir, hafa verið hjá honum á sjúkra-
húsinu allan tímann. Hörður sagði í
samtali við Morgunblaðið að eftir
öllum atvikum væri líðan sonar síns
talin góð eftir aðgerðina. Hún var
gerð í tveimur áföngum og tók fyrri
uppskurðurinn fjóra tíma en sá seinni
tvo. „Nú bíðum við bara og vonum,“
sagði Hörður. Hann sagði að nýtt
hjarta hefði verið eina von Helga.
„Líf hans hékk orðið á bláþræði,"
sagði hann.
Prófessor Magdi Yacoub græddi
hjartað í piltinn.
Gengið lækkað um 1%
Lækkað um nálægt 5% til viðbótar í júní ogjúlí
SEÐLABANKINN notaði I gær hluta af heimild sinni frá 10. mai til
2,25% gengislækkunar og lækkaði gengi krónunnar um 1%. Heimildin
hefur þá verið nýtt að mestu leyti eða sem nemur 2,2%. Frekari lækk-
un gengis er fyrirhuguð af stjórnvöldum til að skapa fiskvinnslunni
viðunandi rekstrarskilyrði. Ætlunin mun vera að vinnslan verði rekin
taplaus að áliðnum júlímánuði, en
til 6% á þeim tíma.
Eins og áður hefur komið fram
hét ríkisstjómin því við gerð al-
mennra kjarasamninga í vetur að
vinnslunni yrði tryggður viðunandi
rekstrargmndvöllur á samnings-
Akureyri;
Mikil leit að
7 ára dreng
SJÖ ára drengs var ákaft
leitað á Akureyri í gær-
kvöldi. Óttast var að dreng-
urinn hefði fallið í Glerána
en um miðnættið í gærkvöldi
hafði hann ekki fiindist.
Drengsins var saknað um kl.
21. Lögreglan hóf strax leit að
honum og fékk til liðs við sig
Hjálparsveit skáta og Flug-
björgunarsveitina á Akureyri.
Þar að auki tóku kafarar frá
Slysavamafélaginu þátt í leit-
inni.
til þess þarf gengið að lækka um 5
tímanum. Heimildir Morgunblaðsins
herma að því marki skuli náð í júlí,
en til þess þarf gengi að lækka um
3 til 4% í þessum mánuði og 2 til 3%
í júlí. Allar líkur eru á frekari gengis-
lækkunum á haustmánuðum, þegar
fiskverð hækkar á ný, eigi áfram að
forða taprekstri fiskvinnslunnar.
Gengislækkunin í gær var ákveðin
til að halda gengi dollars stöðugu,
en það féll í gærmorgun á alþjóða-
gjaldeyrismörkuðum. Sölugengi doll-
ars var því í gær óbreytt frá því á
föstudag eða 56,81 kr. Sölugengi
sterlingspunds hækkaði úr 89,967
kr. í 90,848 kr. og gengi dönsku
krónunnar fór úr 7,3971 kr. í 7,517
kr. Þá hækkaði vestur-þýska markið
úr 28,8017 kr. í 29,2421 kr.
Dollar féll í gær á alþjóðagjaldeyr-
ismörkuðum þegar tölur yfír atvinnu-
ástand í Bandaríkjunum birtust en
þær voru taldar benda til minni hag-
vaxtar en áður hafði verið gert ráð
fyrir.
Sjá nánar gengisskráningu
bls. 34.
Morgunblaðið/RAX
Jóhannes Páll páfi II heilsar fólkinu á tröppum Kristskirkju við upphaf hámessunnar á Landakots-
hæð á sunnudagsmorgun. Drengirnir sem ganga á eftir páfa aðstoðuðu hann við messuna.
Jóhannes Páll páfí II í samtali á leið frá íslandi:
Það var kaJt, en kuldi
fyllir mig lífsþrótti
I fylgdarliði páfa, frá Önnu Bjarnadóttur fréttaritara Morgunblaðsins.
JÓHANNES PÁLL páfi II játaði á leiðinni frá íslandi á sunnudag
að sér hefði verið kalt á samkirkjulegu bænastundinni á Þingvöll--
um. „Það var kalt,“ sagði hann, „en kuldi fyllir mig lífsþrótti."
Hann þakkaði íslensku þjóðinni og ríkissljóminni fyrir móttökumar
í skeyti sem hann sendi forseta Islands á leiðinni til Finnlands.
Vél ítalska flugfélagsins Alitalia
sótti páfa og fylgdarlið hans til
Keflavíkur. Yfirþjónn vélarinnar
sagði að flugfélagið hefði ekki get-
að flogið með páfa og lið hans frá
Tromsö til íslands vegna þess að
vélin er ekki búin tækjum til að
fljúga jafn nálægt heimskautinu
og farið var. Flugleiðir voru þess
vegna beðnir um að hlaupa í skarð-
ið.
ísland leið úr huga flestra í flug-
vélinni um leið og hún hóf sig á
loft. Fréttamenn vildu heyra við-
brögð páfa við atburðunum í Kína
og andláti Khomeinis í Íran. Hann
sagði sænskum og dönskum blaða-
mönnum að hann væri djúpt snort-
inn og fullur samúðar vegna dauða
ungmennanna í Kína. Við andlát
Khomeinis sagðist hann hugleiða
með fyllstu virðingu fyrir dauðan-
um það sem hann hefði gert fyrir
þjóð sína og stóran hluta heims-
byggðarinnar sem trúar- og stjóm-
málaleiðtogi. Páfínn sagði að í huga
kristinna manna væri dauðinn upp-
haf nýs lífs.
Sjá fréttir af heimsókn páfa á
bls.2,32,33,60,61,62 og63.