Lögfræðingur - 01.01.1899, Page 34
34
Konrad Maurer.
höfundinum sjálfum, Arna biskupi porlákssyni, og bendi
á, hvaðan hann haíi sótt efnið í Kristinnrjett sinn; þau
sýni, að hann hafi ekki haft fyrir sjer neinn kristinnrjett Jóns
erkibiskups, heldur að eins eldri lagabækur og skipanir
erkibiskups frá árunum 1269—1270, auk þess sem
þetta styðjist við ýms fleiri rök'). Hins vegar hefur K.
Maurer skrifað mjer, að þrátt fyrir hinar merkilegu upp-
lýsingar dr. Storms og hin nákvæmu og skarpviturlegu
rök geti hann eigi fallið frá skoðun sinni um það, að Jón
erkibiskup hafi verið byrjaður á, að semja kristinnrjett
sinn 1272—1273, og að Árni hafi að nokkru leyti farið
eptir þessum frumsamningi. En jafnframt tók hinn mikli
fræðimannaöldungur það fram, að hann myndi eigi geta
leitt rannsóknir sínar í þessu efni til lykta.
Eptir að jeg hef borið Kristinnrjett Árna biskups
saman við þau rit, sem efni hans er tekið úr, þá get jeg
eigi annað, en verið Maurer samdóma, og skal hjer að eins
með örfáum orðum færa nokkrar ástæður fyrir þessu.
J>ess má geta, að athugaorðin virðást ekki vera óyggj-
andi leiðarvísir.
Við upphafið á 8. kap. — en þar koma athugaorðin
fyrst fyrir — stendur í elsta handritinu: »Gulaþingsbok«,
og í hinu: »af gulaþingsbok#. Efnið í fyrri hluta kap-
ítulans er sumt orðrjett samhljóða bæði Kristinnrjetti Jóns
erkibiskups og Kristinnrjetti Gulaþingsmanna, sumt er að
eins orðrjett samhljóða hinum síðarnefnda Kristinnrjetti,
en svo er aptur sumt að eins samhljóða Ivristinnrjetti
1) Sjá Bemærkninger til de i Norges gamle Love 5te Bind
optagne oldnorsk-islandske Lovtexter af Prof. Dr. Gustav
Storm í Tidskrift for Retsvidenskab, 3. Aarg. 1890, bls.
438—443.