Lögfræðingur - 01.01.1899, Blaðsíða 105
Yfirlit yíir löggjöf í útlöiulum.
105
ekkjumaður með hjónabandsbarn og greiðir 5 fr. (3 kr. 60 a.)
í húsaskatt, nema liann sje skattfrjáls vegna stöðu sinnar.
J>rjú atkvæði greiðir sá, sem er 25 ára og hefur notið
æðri menntunar. Kjósendur eru skyldir að greiða atkvæði.
88) Lög 11. apríl 1895 auka rjett til kosninga í bæjar-
stjórn og sveitarstjórn á líkan hatt, sem ákveðið erí lög-
um 7. sept. 1893, og hafa kjósendur einnig eptir þessum
lögum allt að því 3 atkvæði. I bæjum með meir en 20
þús. íbúa skulu verkmenn og vinnuveitar velja 4—8 menn
í bæjarstjórnina, sinn helminginn hvorir.
89) Lög 12. sept. 1895 um kosningar í bæjarstjórn eða
sveitarstjórn ákveða meðal annars, að kosningarnar skuli
jafnan fara fram á sunnudegi.
VIII. Sviss.
90) Lög 22. des. 1893 um styrk til landbúnaðar úr
ríkissjóði (til kennslu í landbúnaði, nautgripauppeldis,
jarðabóta, nautgripaábyrgðar o. fl.)
91) Með lögum 22. desbr. 1893, er sett voru með at-
kvæðum þjóðarinnar, var bannað að slátra skepnum, nema
því að eins að þær væru deyfðar áður.
IX. Austurríki.
92) Lög l.apr. 1889 ákveða, að bændajarðir «að meðal
stærð» skuli eigi skiptast milli erfingja, lieldur skuli einn
erfingjanna fá jörðina, og eru um þetta allnákvæm ákvæði.
Ef jarðir eru íieiri en ein, þá fær hver erfingi eina jörð,
eptir því sem þær hrökkva.
93) Lög 9. febr. 1892 um 24 ára skattfrelsi fyrir ný-
byggð hýbýli handa verkmönnum, er sjeu heilnæm, nægi-
lega rúmgóð og sanngjarnlega lcigð.