Lögfræðingur - 01.01.1899, Blaðsíða 32
Konrad Maurer.
32
lenskum annálum. Ber það vott um, að menn liafi að
fornu eigi álitið, að Kristinnrjettur Arna biskups væri lög-
leiddur með því í Hólabiskupsdæmi, enda verður að ætla,
að bann liafi fengið þar sama gildi á sama tíma,
serní Skálholtsbiskupsdæmi. Kristinnrjetturinn var
saminn lianda öllu landinu; hann var lögtekinn fyrir allt
landið í heild. sinni. Erkibiskupinn í Niðarósi mundi
tæplega hafa látið Hóiabiskupi haldast það uppi, að fram-
fylgja eigi lögum þessum í sínu biskupsdæmi, enda hlaut
almenningi í Norðurlandi að vera það áhugamál, að ekki
yrði beitt hinum harðari hegningarákvæðum kristinn-
rjettar hins forna, heldur ákvæðum Ivristinnrjettar Arna
biskups. Loks er í skriptaboðum Jörundar Hólabiskups, sem
að öllum líkindum eru gjörð skömmu eptir það, er Krist-
innrjettur Arna biskups var lögtekinn, beinlínis vitnað til
hans *), og auk þess sýna mörg atvik, að farið var eptir
Kristinnrjetti Arna biskups í Hólabiskupsdæmi löngu fyr-
ir 1354.
í broti af brjefi frá Arna biskupi og ýmsum fleiri
mönnum til Magnúsar konungs er talað um, að Kristinn-
rjetturinn hafi verið lögtekinn »með samþykkt alþýðu í
Skálholtsbiskupsdæmi« 1 2), en brjef þetta er mjög tortryggi-
legt, og að öllum líkindum eigi fornt. Aptan við eina
skipan Arna biskups porlákssonar er svo sagt, að -biskup
hafi látið lögleiða nýjan kristinnrjett í lögrjettji mcð
rjettu þingtaki árið 1280 3)f) En þetta stendur að eins
í einu handriti og getur alls eigi átt sjer stað, því að
1) ísl. fbs. II. bls. 132.
2) ísl. fornbrjefas. II. bls. 125.
3) Fimmr Jónsson, Hist. eccles. Isl. II. bls. 55.