Lögfræðingur - 01.01.1899, Blaðsíða 88
88
Yfirlit yfir löggjöf i útlöndum.
Fargjaldið er eptir vögnunum 6,35 aur., 4 aur. og 2,35 aur.
fyrir hvern kílómetra (3186,2 fet).
4) Lög 27. febr. 1897 um breytingu á byggingarlögum
Kaupmannabafnar heimila lögnám gegn fullkomnu endur-
gjaldi á lóðum, jafnvel þó að ekki þurfi að hafa þær und-
ir götur, torg eðavegi, ef ráð yfir þeim eru mikilsverð til
að koma á betri húsaskipun við götur bæjarins.
5) Lög 22. mars 1897 um umsjón með útflutningi á
nýju kjöti veita stjórninni heimild til, að hindra útflutn-
ing á kjöti eða slátri, sem er skemmt, eða sem er af svo
sjúkum eða horuðum skepnum, að það er óhæfttil mann-
eldis.
6) Með lögum 22. mars 1897 var veitt 1 lj2 milj. kr.
til þess að byggja hús fyrir kgl. bókasafnið í Kaupmanna-
höfn, og 240 þús. kr. til að byggja hús fyrir bókasafn í
Arósum á Jótlandi.
7) Lög 23. apr. 1897 um sýningarávísanir greiða mjög
fyrir notkun slíkra ávísana.
8) Lög 11. maí 1897 um ofbeldi gegn saklausum mönn-
um ákveða, að í stað sekta eða fangelsis megi hegna með
allt að 6 mánaða nauðungarvinnu, og að rangþolir þurfi
eigi að höfða mál sjálfur, jafnvel þótt um lítilvægt ofbeldi
sje að ræða (högg eða barsmíð), heldur skuli þá fara með
málið sem almennt lögreglumál.
9) Lög 11. maí 1897 um sundurskiptingu jarða, sam-
eining þeirra o. 11. eru merkileg lög, sem setja skýr á-
kvæði um þetta efni.
10) Lög 11. maí 1897 ákveða, að læknar skuli gjöra
skýrslur um alla tæringarsjúka menn, er leita þeirra.
J'cgar tæringarsjúkir menn deyja, skal læknir tafarlaust
skýra hlutaðeigandi heilbrigðisnefnd frá andlátinu, en hún