Lögfræðingur - 01.01.1899, Blaðsíða 99
Yfirlit yíir löggjöf í útlöndum.
99
íbúð í þeim, án þess eigandi geti heimtað nokkrar skaða-
bætur fyrir.
59) Lög 5. ágúst 1891 ákveða, að sjerhverja fasteign, sem
gefin er með erfðaskrá til velgjörðaaugnamiðs, skuli selja
innan ákveðins tíma, nema því að eins að fasteignina þurfi
að nota handa velgjörðastofnuninni sjálfri. Með lögum 20.
júní 1892 er ákveðið, að þetta skuli einnig gilda umjarð-
ir, er gefnar eru til sveitarþarfa.
60) Lög 5. ágúst 1891 ákveða, að mál megi höfða út
af þeim ummælum, að kona (stúlka) sje óskírlíf, án þess
að sanna þurfi, að ummælin hafi gjört sjerstakan skaða1).
61) Lög 5. ágúst 1891, sem gilda fyrir Irland, miða til
þess, að gjöra hinni svo nefndu Land Commission ennþá
hægara fyrir en áður, að kaupa land handa mönnum til
sjálfsábúðar; eptir lögunum skal setja sjerstaka nefnd, tii
þess að annast um, að smábýli verði sameinuð í stærri
býli, og má nefndin í þeim tilgangi veita mönnum styrk
til jarðakaupa, veita mönnum styrk til útílutnings o. s. frv.
62) Lög 5. ágúst 1891, er einnig gilda eingöngu fyrir
írland, miða til þess, að veita mönnum frekari heimild en
áður til þess, að leysa jarðir undan árlegu afgjaldi (árgjaldi).
63) Lög 27. júní 1892 hafa ýms ákvæði, sem miða til
þess, að styrkja menn til að fá sjer smájarðir (býli).
64) Lög 28. júní 1892 banna ráðstafanir, sem miða til
þess, að vextir eða afgjöld af fasteignum sjeu dregnir
saman í þeim tiigangi, að kaupa fyrir þetta jarðeignir,
1) I Englandi er það venja, að eigi segist á ummælura um sið-
leysi annara, nema því að eins að sá, sem fyrir verður, bíði
tjón í atvinuu sinni, embætti eða sýslan; kom þetta hart
niður á kvennmönnum, og því voru þessi lög sett. (Every
man’s own lawyer. London. 1896. bls. 323).