Lögfræðingur - 01.01.1899, Blaðsíða 137
£rttaábú(\ sjálfsábúð og leiguábúð.
137
er stundnm. í (j. grein ábúð.arlaganna segir svo: »Fylgja
slculu jörðu nauðsynleg bús, er henni hala áður fylgt..«
Nú vissu allir þingmenn, að jörðum fylgdi að eins nokk-
ur hluti nauðsynlegra húsa. Akvæðið í greininni er því
sama sem þar stæði: Landsdrottinn skal vera skyldur að
láta jörðu fylgja nauðsynleg hús, en þetta skal þó eigi
hafa neitt gildi, því að hann er ekki skyldur að hafa nauð-
synleg hús á jörðinni.
Samkvæmt því, sem hjer er tekið fram, befur stjórn-
in gjört tilraunir til þess, að fá verulegar umbætur á húsa-
gjörð á jörðum hjer í landi, en þær hafa strandað hjá
fulltrúum þjóðarinnar. Ef tillaga stjórnarinnar liefði náð
fram að ganga, þá mundu vera orðnar miklar breytingar
á jarðarhúsum að minnsta kosti á þjóðjörðunum, og því
gæti verið ráð að taka þessa tillögu upp. Samt sem áð-
ur virðist mjer það nokkuð varhugavert. þ>ó að lands-
drottnar sjeu að jafnaði efnaðri en leiguliðarnir, þá eru
þeir samt margir efnálitlir. Ef landsdrottnar eiga að
kaupa ný hús af leiguliða. þá er lögð á þá marga þyngri
byrði, en þeir geta risið undir, og því verður að sleppa
henni.
þ>essa reglu virðist þó rjett að taka upp, að því er
snertir alveg nauðsynlegar umbætur á jarðarhúsunum, svo
sem þegar settur er glergluggi í baðstofu, þiljur í hana,
o. sv. frv. Hjer getur tæplega verið um mjög mildar upp-
hæðir að ræða. Fyrir því sýnist eðlilegt, að landsdrottni
væri gjört að skyldu, að kaupa af fráfarandi leiguliða al-
veg nauðsynlegar umbætur á jarðarhúsum.
2. þ>ar sem landsdrottinn eigi er skyldaður til þess,
að kaupa nauðsynleg hús af leiguliða, þá verður spurn-
ingin um, livað um þau skuli gilda. þ>að er þá fyrst að