Lögfræðingur - 01.01.1899, Blaðsíða 103
Yíirlit yflr löggjöf í útlöndum.
103
maður, sem er öreigi, skuli fá kauplausa læknishjálp, og,
ef nauðsyn krefur, aðhjúkrun á almennum spítala. Út-
gjöld til þessa greiðast af ríkissjóði, fylkissjóði og sveit-
arsjóði.
80) Lög 29. júní 1894 um stofnun styrktarsjóða og
eptirlaunasjóða fyrir verkmenn við námur. Með lögum
þessum er í fyrsta skipti lögleidd á Frakldandi skylda
verkmanna til að tryggja sjer lífeyri. Styrktarsjóðirnir
eiga að veita verkmönnum hjálp í veikindum, en af ept-
irlaunasjóðunum fá verkmenn ellistyrk, er þeir eru 55 ára
að aldri.
81) Lög 30, nóv, 1894 um bygging ódýrra íbúðarhúsa
miða til, að útvega fátæklingum ódýr og heilnæm hýbýli.
82) Lög 12. jau. 1895 miða til að hindra harðræði í
skuldaheimtu við vinnuhjú, verkmenn og aðra, sem liafa
lág laun; þannig má ekki gjöra fjárnám nema í tíunda
hluta af kaupi þeirra, og ekki er gild sala á meiru en ein-
um tíunda hluta kaupsins. Á hinn bóginn er fjárnámið
í tíunda hlutanum gjört kostnaðarminna og auðveldara, en
áður var.
83) Lög 8. júní 1895 ákveða, að jafnan megi endurskoða
dóma í sakamálum, ef nýjar upplýsingar koma fram í mál-
inu, og ef svo reynist, að dómþolir hafi verið saklaus, þá á
hann heimting á skaðabótum úr ríkissjóði. Ef hann er
látinn, á kona hans, afkomendur, foreldri eða jafnvel aðrir
ættingjar heimting á skaðabótunum.
84) Lög 25. mars 1896 um erfðir óskilgetinna barna
veita börnum þessum frekari erfðarjett, en áður hefur verið.
YII. Bclgía.
85) Lög 4. ágúst 1889 ákveða, að stjórnin skulihafa heim-