Fréttablaðið - 26.10.2005, Blaðsíða 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
4
7
7
1
��������
�������
�����
��������
������������
����������� ��� ��������������������
SIGRÍÐAR DAGGAR
AUÐUNSDÓTTUR
BAKÞANKAR
Mér finnst voðalega leiðinlegt þegar fólk er ósamkvæmt
sjálfu sér. Enn leiðinlegra er þó að
verða vitni að því að heill stjórn-
málaflokkur gerist sekur um að
vera ósamkvæmur sjálfum sér. Það
gerðist nefnilega með Sjálfstæðis-
flokkinn nú um helgina í umræð-
unni í tengslum við landsfund
Vinstri grænna.
ÉG heyrði í Þorgerði Katrínu Gunn-
arsdóttur, menntamálaráðherra
og nýkjörnum varaformanni Sjálf-
stæðisflokksins, í útvarpsviðtali á
laugardaginn, þegar landsfundur
Vinstri grænna stóð sem hæst. Þar
tjáði hún sig um ræðu formanns
VG, Steingríms J. Sigfússonar, og
sagði stefnu Vinstri grænna sem og
hinna stjórnarandstöðuflokkanna
„arfavitlausa“. Hins vegar væri
stefna stjórnarflokkanna það ekki,
það sæi hver sem vildi.
ÞETTA stakk í eyru mín því ég man
ekki betur en að sjálfstæðismenn
hafi sjálfir orðið „arfavitlausir“
yfir því að Fréttablaðið og RÚV
hafi vogað sér að birta viðbrögð
pólitískra andstæðinga Sjálfstæð-
isflokksins við ræðu fráfarandi
formanns Sjálfstæðisflokksins
sem hann hélt á landsfundi þeirra
fyrir um hálfum mánuði. Geir H.
Haarde, nýi formaðurinn, úthúðaði
til að mynda Fréttablaðinu, í viðtali
í Kastljósinu, fyrir að hafa slegið
upp viðbrögðum Ingibjargar Sól-
rúnar Gísladóttur, formanns Sam-
fylkingarinnar, við ræðu Davíðs.
SJÁLFSTÆÐISMENN voru
almennt öskureiðir yfir fjöl-
miðlaumfjölluninni um ræðu for-
mannsins - nema ef vera skyldi
umfjöllun Morgunblaðsins - og neit-
aði Davíð meðal annars að koma í
viðtal í Kastljósið daginn eftir setn-
ingarræðu sína vegna þess að þar
hafði ekki verið fjallað um ræðu
hans eins og hann hefði helst kosið.
Sjálfstæðismönnum fannst ræð-
unni ekki hafa verið gert nógu hátt
undir höfði í fjölmiðlum og að Davíð
hefði ekki fengið að njóta sín. Geir
sagði í Kastljósinu að honum fynd-
ist þetta „ekki góð blaðamennska,“
en það er kannski önnur saga.
HVERNIG stendur þá á því að
Þorgerður Katrín gerir nákvæm-
lega hið sama og flokkur hennar
hafði gagnrýnt svo mjög: að gagn-
rýna landsfundarsetningarræðu
formanns annars flokks? Er það
kannski svo að ein regla eiga að
gilda um Sjálfstæðisflokkinn og
allt sem honum tengist og aðrar
reglur um allt annað? Ég get ekki
betur séð - og er þetta þá ekki í
fyrsta skiptið.
Ósamkvæmur
sjálfum sér