Fréttablaðið - 26.10.2005, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 26.10.2005, Blaðsíða 40
Við viljum hafa sterkt ríkisvald, við viljum svo sannarlega ekki að menntun og heilbrigðisþjón- usta sé betri fyrir útvalda en hina. Fáir sterkir aðilar eiga ekki að drottna yfir atvinnulíf- inu og áhrif auðhringa og stór- kapítalista eru of mikil í þjóðfé- laginu. Eitthvað á þessa leið voru orð fráfarandi forsætisráð- herra landsins til 14 ára við upp- haf landsfundar þessarar mestu breiðfylkingar í íslenskum stjórnmálum sem Sjálfstæðis- flokkurinn hefur verið frá stofn- un hans 1929. Ef maður vissi ekki betur þá hefði maður haldið að þessi stefna og þessi varnað- arorð væri frekar ættuð frá landsþingi sænska eða danska jafnaðarmannaflokksins en ekki frá flokki sem skilgreinir sig sem klassískan hægri flokk uppá Íslandi. Þessi orð koma þó ekki svo mikið á óvart ef saga sjálfstæð- isflokksins er skoðuð. Hug- myndafræði flokksins frá upp- hafi hefur tekið mið af samvinnu og jöfnuði frekar en sundrungu og ójöfnuði, er þar nægilegt að rifja upp gömul gildi flokksins eins og „Stétt með Stétt“ sem hefur verið eitt af kjörorðum flokksins alla tíð síðan. Stétta- samvinna hefur verið samofin stefnu flokksins og þar með sú hugsun að ríkisvaldið beri ákveðna lágmarks ábyrgð á vel- ferð allra einstaklinganna með viðeigandi útgjöldum fyrir sam- félagið. Nýkjörinn formaður flokksins lagði sérstaka áherslu á þessi gildi í ræðu sinni á ný- yfirstöðnu landsþingi. Það að Sjálfstæðisflokkurinn tók forystu í að sameina stéttir landsins og vinna bug á þeirri stéttabaráttu sem einkenndi upphaf 20. aldarinnar tryggði flokknum þá stöðu sem hann hef- ur haldið æ síðan sem breiðfylk- ing allra stétta og þar með talið eignamanna og verkamanna. Stuðningur verkamanna og verkalýðssamtaka við flokkinn hefur verið nálægt því að vera sambærilegur við þann stuðning sem Jafnaðarmannaflokkar á Norðurlöndunum hafa fengið í gegnum tíðina. Í þessu efni líkist flokkurinn meira jafnaðar- mannaflokki en hægri flokki. Uppbygging velferðarsam- félagsins hefur því verið einn meginhornsteinninn í stefnu flokksins frá upphafi og mikil áhersla var lögð á þann þátt á ný- afstöðnum Landsfundi. Einka- væðing og afnám hafta hefur þó tekið mun lengri tíma hér á landi en á hinum Norðurlöndunum. Ennfremur hefur andstaða flokksins við alþjóðahyggju sem rekja má til upphaflegra gilda flokksins leitt til þess að ágóði opnara alþjóðakerfis í viðskipt- um og stjórnmálum hefur borist seinna til Íslands en hinna Norð- urlandanna. Þrátt fyrir að leiðin til velfarnaðar hafi verið torsótt- ari hér lengst af í samanburði við Noreg, Svíþjóð og Danmörku þá er svo komið að Ísland getur borið sig saman við þessi mestu samfélög jafnaðar og velmegun- ar í heiminum. Á samfelldum 14 ára valdatíma Sjálfstæðisflokks- ins hafa útgjöld til mennta- og heilbrigðismála aukist mikið og á stefnuskrá flokksins nú er upp- bygging hátæknisjúkrahúss. Velferðarmálefni hafa því verið flokknum afar hugleiknin. Annar af meginhornsteinum í stefnu flokksins Sjálfstæðis- flokkurinn er frelsi einstaklings- ins til athafna og sú trú að ein- staklingarnir kynnu betur að skipa sínum málum heldur en sú forsjárhyggja sem felst í mið- stýringu ríkisvaldsins. Eins mik- ið og þessi gildi frelsis og sam- keppni virðast í mótsögn við uppbyggingu íslenska velferðar- kerfisins hefur flokknum tekist að sameina þetta tvennt með nokkuð sannfærandi hætti í gegnum tíðina. Þessi mikla trú á einstaklingunum hefur á stund- um verið túlkuð innan flokksins með þeim hætti að ríkisvaldið væri nær óþarft nema til að sinna grunndvallarþörfum varð- andi mannréttindi, menntun og heilbrigðisþjónustu. Skoðunin hefur verið sú að í hinum kapít- alíska kerfi fælust innbyggðar leikreglur sem tryggðu bæði jafnvægi og sanngirni gagnvart borgurunum. Þessi gildi hafa hins vegar verið flokknum síðustu ár mun erfiðari í framkvæmd en barátta fyrir aukinni velferð og jöfnuði. Nýkjörinn varaformaður flokks- ins sagði á nýafstöðnum Lands- fundi að sagan sýndi að án al- mennra leikreglna væri hætta á að markaðsráðandi aðilar mis- beiti valdi sínu hvort heldur er í viðskiptum eða á fjölmiðlum. Í sama knérunn hjuggu fráfarandi formaður flokksins og nýr for- maður á þessum sama Lands- fundi. Þessar efasemdir um heil- indi einstaklinganna til að vinna heiðarlega á almennum sam- keppnismarkaði eru nýr tónn í sögu flokksins. Sjálfstæðisflokk- urinn hefur frekar haft það orð á sér í gegnum tíðina að draga taum atvinnulífsins þannig að mörgum vinstrimanninum hefur þótt nóg um. Þetta er einnig merkilegt í ljósi þess að hér á landi gildir regluverk Evrópska efnahagssvæðisins, atvinnu- frelsi er hér varið í stjórnarskrá, Samkeppnisstofnun og sam- keppnislög eiga að tryggja rétt- láta samkeppni og að markaðs- ráðandi fyrirtæki misnoti ekki stöðu sína, Póst- og Fjarskipta- stofnun hefur eftirlit með fjar- skiptamarkaði og Fjármálaeftir- lit með fjármálamarkaði svo fátt eitt sé upp talið. Almennt má segja og auðvelt að færa fyrir því rök að sam- keppni og gegnsæi á markaði hafi aldrei verið meira í annan tíma en nú á Íslandi. Aldrei hafa fleiri aðilar haft tækifæri til að hasla sér völl á hinum ýmsu svið- um atvinnulífsins. Hér nægir að líta til flugrekstrar, fjármála- starfsemi, skipaflutninga, olíu- verslunar, fjarskipta eða dag- blaðaútgáfu. Greiður aðgangur að fjármagni, lágir fyrirtækja- skattar og einfalt regluverk hefur tryggt að mjög auðvelt er að stofna til atvinnurekstrar. Árangur og frammistaða margra íslenskra fyrirtækja síðustu ár hefur verið eftirtektarverð og í raun framúrskarandi í öllum al- þjóðlegum samanburði. Aldrei hafa verið rekin fleiri fyrirtæki sem hafa skilað eins miklum hagnaði ársfjórðung eftir árs- fjórðung. Ekki þarf mikla rök- hyggju til að sýna fram á að staða þessara fyrirtækja og framtíðarafkoma þeirra er einmitt trygging okkar fyrir frekari uppbyggingu þess vel- ferðarsamfélags sem við búum í. Það er því algjörlega ný staða sem forsvarsmenn Sjálfstæðis- flokksins hafa sett hann í um þessar mundir að telja helsta verkefni stjórnmálanna sé að takast á við athafnamenn og at- vinnulífið vegna vantrausts á þeim og frelsi þeirra til athafna. Það verður því mjög ögrandi verkefni fyrir Sjálfstæðisflokk- inn að brúa þá nýju hugsun flokksins að athafnamönnum sé ekki treystandi og þeim þurfi að setja þrengri skorður við verð- mætasköpun en á sama tíma þurfi að tryggja aukinn jöfnuð og aukna velferð borgaranna eins og boðuð var á landsfundi flokksins með tilheyrandi ríkis- útgjöldum. MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2005 MARKAÐURINN16 S K O Ð U N Gróði seljanda er ekki mælikvarði á skynsamlegt kaupverð. Spurningin um rétt verð Hafliði Helgason FL Group hefur að undanförnu gengið í gegnum eðlisbreytingar frá því að vera félag í flugrekstri yfir í að verða fjárfestingarfélag. Óhjákvæmilegt er að slíkar breytingar valdi einhverjum titr- ingi. Stjórnendur félagsins hafa ekki höndlað nægjanlega vel upp- lýsingastreymið í kjölfar breytinganna og gefið rými fyrir ýmis konar sögusagnir. Fyrir vikið hafa forsvarsmenn félagsins lent í þeirri stöðu að þurfa að neita misgáfulegum fullyrðingum um að- draganda kaupanna á Sterling. Eitt af því sem mikið hefur verið velt vöngum yfir er gróði Fons sem er í eigu Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar af sölunni. Einn útgangspunktur þeirrar umræðu er að gróði þeirra sé mælikvarði á eðlilegt kaupverð FL Group á Sterling. Grunnhug- myndin er sú að ef Fons hefur grætt tíu milljarða á sölunni, þá hljóti FL Group að vera að borga óeðlilega hátt verð fyrir Sterling. Þessi hugmynd byggir á villu um að til sé eitthvað sem heitir rétt verð. Það er af og frá. Netfyrirtækið Google fór á markað á innan við hund- rað dollara á hlut. Var þá rangt verð að greiða tvö hundruð dollara fyrir hlutinn nokkrum mánuðum síðar? Verðið er nú um 370 dollarar á hlut rúmu ári síðar. Er það rangt verð? Mælikvarðinn á kaup FL Group á Sterling ræðst af framtíðarvirði eign- arinnar. Sjálfur segir seljandinn að ekki hefði komið til greina að selja félagið nema að eiga áfram hlutdeild í framtíð- arvirðinu. Seljandi og kaupandi í þess- um viðskiptum deila þeirri trú að gríð- arleg tækifæri liggi í félaginu og fjár- festingin muni reynast góð. Tíminn einn mun leiða það í ljós, en þeir sem að þessum viðskiptum standa hafa náð góðum árangri hingað til og svo sem engin ástæða til þess að efast fyrirfram um að þeim takist vel upp í þetta sinn. Takist FL Group að gera sér mat úr fjárfestingunni og að þróun á lággjalda- markaði verði svipuð og í Bandaríkjun- um, geta þeir sem telja gróða Fons óskiljanlegan nú, farið í þær skotgrafir að Sterling hafi verið gefið. Ekki hefur vantað þær raddir um sölu ríkisins á hlutabréfum í bönkunum. Eðlisbreytingar eins og orðið hafa á FL Group kalla eðlilega á misjafnar skoðanir á því hvort menn séu að gera rétt. Þau skoðanaskipti fara fram í almennri umræðu og ekki síður á hlutabréfamarkaði þar sem stjórnendur og eigendur félagsins fá í sífellu sinn dóm. Forstjóri félagsins er jafnframt stór eigandi. Hann hefur því gríðarlega ríka hagsmuni af því að vel gangi. Annað áhyggjuefni er að Icelandair sé mikilvægasta samgöngu- fyrirtæki þjóðarinnar og það sé goðgá að leika sér með það fjöregg. Nýtt skipulag FL Group ætti að eyða slíkum áhyggjum. Icelandair verður sjálfstætt rekstrarfélag með sterkan bakhjarl ef vel gengur að selja nýtt hlutafé FL Group. Mistök í fjárfestingum FL Group ættu ekki að hafa afgerandi afleiðingar á rekstur flugfélagsins. Nýtt skipulag FL Group felur í sér fleiri tækifæri en hættu, án þess að það sé nokkur trygging í viðskiptum. Þar ráða ákvarðanir stjórn- enda og ytri skilyrði sem vonandi leiða félagið í rétta átt. Stormtech, göngubakpoki. Stormtech, microfleece peysa. Rosendahl, vatnskarafla, tvö glös. Isosteel, hitabrúsi. GÓÐAR GJAFIR STYRKJA GOTT SAMBAND GLEÐJUM STARFSMENN OG VIÐSKIPTAVINI MEÐ VÖNDUÐUM GJÖFUM UM JÓLIN Við höfum áralanga reynslu af sölu á jólagjöfum til fyrirtækja og stofnana. Hafðu samband og athugaðu hvað við getum gert fyrir þig. Erum með fjölbreytt úrval gjafa frá þekktum framleiðendum. BROS AUGLÝSINGAVÖRUR SÍÐUMÚLA 33 108 REYKJAVÍK SÍMI 581 4141 ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Hafliði Helgason RITSTJÓRN: Björgvin Guðmundsson, Eggert Þór Aðalsteinsson, Hjálmar Blöndal, Hólmfríður Helga Sigurðardóttir AUGLÝSINGASTJÓRI: Jónína Pálsdóttir RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@markadurinn.is og aug- lysingar@markadurinn.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Markaðinum er dreift ókeypis með Fréttablaðinu á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Markaðurinn áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Spillingin lifir Economist | Spillingin í Rússlandi fer vaxandi sam- kvæmt athugunum Transparency International og er Rússland komið í hóp Níger og Albaníu yfir spilltustu ríki heims. Er þetta orðið gríðarlegt þjóðfélagsvandamál að sögn Economist. Bent hefur verið á að baráttan gegn tsjetnjeskum hryðjuverkamönnum sé næsta ómöguleg vegna mútugreiðslna og geri aðstæður í þjóðfélaginu vara- samar. Spillingin er komið á annað stig þegar að embættismaður sem þiggur mútur frá einum tekur næstu greiðslur frá hermdarverkamönnum. Í viðskiptalífinu eru mútugreiðslur til embættis- manna daglegt brauð til að fá samninga og verkefni. Árlegar upphæðir, sem atvinnulífið notar til að múta spilltum embættismönnum, eru orðnar á við tvöföld fjárlög sambandsríkisins. Kaupahéðnar verða þess þó áskynja að þeim sem er mútað standa æ sjaldnar við gefin loforð. Þá koma fram skaðlegustu áhrif spillingar á efnahagslíf samkvæmt hagfræðikenn- ingum. Sá breski lofar ágætu Sunday Telegraph | Roger Bootle ber saman hluta- bréfamarkaði Bandaríkjanna og Bretlands í Sunday Telegraph. Þrátt fyrir ládeyðu í bresku efnahagslífi og minnkandi hagnað fyrirtækja, eink- um í smásölu, hefur FTSE-vísitalan hækkað um átta prósent á árinu. Til samanburðar hafa bandarísku markaðirnir staðið í stað. Það er einnig mat hans að bæði fasteigna- og hlutabréfamarkaðir vestan Atlantsála séu yfirverðlagðir. Hagnaður banda- rískra fyrirtækja er hár sem hlutfall af landsfram- leiðslu en verðkennitölur hlutabréfa eru samt háar í sögulegu ljósi. Hagnaður breskra fyrirtækja sem hlutfall af landsframleiðslu er hins vegar nærri langtímameðaltali auk þess sem meðal VH-gildi þeirra eru orðin lægri en langtímameðaltal. Ef hækkandi vextir í Bandaríkjunum fara að hafa neikvæð áhrif á hjól efnahagslífsins þar, sem gæti leitt til samdráttar í öðrum hagkerfum, er lík- legt að Bretland haldi vel sínu striki. Bent hefur verið á að hagkerfi þessara landa fylgjast aldrei eins að. U M V Í Ð A V E R Ö L D Þessi hugmynd byggir á villu um að til sé eitthvað sem heitir rétt verð. Það er af og frá. Netfyrir- tækið Google fór á markað á innan við hundrað dollara á hlut. Var þá rangt verð að greiða tvö hundruð dollara fyrir hlutinn nokkrum mánuðum síðar? Verðið er nú um 370 dollarar á hlut rúmu ári síðar. Er það rangt verð? bjorgvin@markadurinn.is l hjalmar@markadurinn.is l eggert@markadurinn.is haflidi@markadurinn.is l holmfridur@markaðurinn.is Kristján Vigfússon stjórnmálahag- fræðingur og sjálf- stætt starfandi ráð- gjafi O R Ð Í B E L G Sögurnar... tölurnar... fólkið... Stefna Sjálfstæðisflokksins? 16-17 Markadur lesið 25.10.2005 15:34 Page 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.