Fréttablaðið - 26.10.2005, Síða 56
26. október 2005 MIÐVIKUDAGUR20
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli,
andlát og jarðarfarir í smáletursdálkinn hér að
ofan má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 550 5000.
www.steinsmidjan.is Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Þegar andlát ber að
Síðastliðin 15 ár höfum við feðgar
aðstoðað við undirbúning útfara.
Alhliða útfararþjónusta
Símar: 567 9110,
893 8638 og 897 3020
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og sonur,
Kristinn Óskar Magnússon
framkvæmdastjóri Fráveitu Hafnarfjarðar,
Hjallabraut 43, Hafnarfirði,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi, sunnudag-
inn 23. október.
Jarðsett verður frá Víðistaðakirkju 1. nóvember kl. 15.00.
Margrét B. Eiríksdóttir
Berglind M. Kristinsdóttir Ólafur K. Eyjólfsson
Katrín J. Kristinsdóttir Birgir Sólveigarson
Sigríður Ólafía Ragnarsdóttir
Guðrún Sveinsdóttir
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
Halldóra S. F. Thorlacius
frá Bæjarskerjum,
lést að Garðvangi laugardaginn 22. október.
Jarðarförin auglýst síðar.
Ragnhildur Jónasdóttir
Ólafur Jónasson Kristólína Ólafsdóttir
Þórarna Jónasdóttir Sigfús Guðbrandsson
Einar Jónsson
Finnur Thorlacius og Sara Hrund
Ari Thorlacius og Bylgja
Jón og Bjarni Sigfússynir
Elskulegur eiginmaður minn,
Gylfi Jónsson
vélvirki, Fannafold 116,
lést á Landspítalanum í Fossvogi 21. október.
Sigurlaug Einarsdóttir
Elín Ása Jónsdóttir frá Baldurs-
heimi, Eyjafirði, var búsett í
Keflavík, lést á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja þriðjudaginn 18.
október. Útförin hefur farið fram
í kyrrþey.
Kristín Ólafsdóttir hjúkrunarkona
frá Stakkadal á Rauðasandi, Sól-
heimum 27, áður Ljósheimum 8a,
Reykjavík, lést á líknardeild Land-
spítalans í Kópavogi föstudaginn
21. október.
Steingerður Jóhannsdóttir frá
Brekku, Vestmannaeyjum, lést
á Hraunbúðum, dvalarheimili
aldraðra í Vestmannaeyjum, laug-
ardaginn 21. október.
Halldóra S.F. Thorlacius frá
Bæjarskerjum lést á Garðvangi
laugardaginn 22. október.
Kristinn Óskar Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Fráveitu Hafnarfjarð-
ar, Hjallabraut 43, Hafnarfirði, lést
á líknardeild Landspítalans í Kópa-
vogi sunnudaginn 23. október.
Árni Hinrik Jónsson, áður
Suðurgötu 44, Keflavík, lést á
Sjúkrahúsi Keflavíkur laugardaginn
22. október.
JARÐARFARIR
13.00 Guðrún Fanney Óskars-
dóttir kennari, Rauðagerði
65, Reykjavík, verður jarð-
sungin frá Seljakirkju.
15.00 Jón Sigtryggur Zophonías-
son, Gullsmára 10, Kópa-
vogi, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju.
15.00 Minningarathöfn um Þóru
Steinunni Stefánsdóttur
frá Keldunesi, Kelduhverfi,
síðast til heimilis í Löngu-
hlíð 3, Reykjavík, verður í
Háteigskirkju.
Hillary Rodham
Clinton öldunga-
deildarþingmaður er
58 ára.
Guðmundur Guð-
jónsson yfirlögreglu-
þjónn er 58 ára.
Gísli Guðjónsson
réttarsálfræðingur er
58 ára.
Bob Hoskins leikari
er 63 ára.
Egill Heiðar Anton
Pálsson leikari er
31 árs.
MERKISATBURÐIR
1951 Winston Churchill verður for-
sætisráðherra Breta í annað
sinn þegar Íhaldsflokkurinn
sigrar í kosningum.
1958 Pan Am flýgur fyrstu Boeing
707 þotunni frá New York til
Parísar á átta klukkutímum
og 41 mínútu.
1965 Reykjanesbraut, milli
Hafnarfjarðar og Keflavík-
ur, er formlega opnuð til
umferðar.
1986 Hallgrímskirkja í Reykjavík
er vígð. Hún var í smíðum
í 41 ár. Við vígsluna gengu
um tvö þúsund kirkjugestir
til altaris.
1994 Leiðtogar Ísraela og Jórdána
skrifa undir friðarsamkomu-
lag milli þjóðanna.
1995 Tuttugu manns farast þegar
snjóflóð fellur úr Skollahvilft
á byggðina á Flateyri við
Önundarfjörð.
NIKOS KAZANTZAKIS (1883-1957)
LÉST ÞENNAN DAG.
„Allt í þessum heimi
hefur dulda þýðingu.“
NIKOS KAZANTZAKIS VAR GRÍSKUR
HEIMSPEKINGUR OG RITHÖF-
UNDUR. BÓK HANS UM GRIKKJ-
ANN ZORBA VAR KVIKMYNDUÐ
ÁRIÐ 1964.
„Bridds var mikið spilað
heima hjá mér þegar ég
var barn og ég fylgdist vel
með því,“ segir Guðmund-
ur Baldursson, nýkjörinn
formaður Bridgesambands
Íslands, sem telur mikið
verk fyrir höndum á næstu
árum og mánuðum að vekja
ungdóm landsins til með-
vitundar um bridds sem
skemmtun og hugaríþrótt.
„Það gengur ekki alveg
nógu vel að fá unga fólkið
til að spila en stendur þó
til bóta,“ segir Guðmund-
ur. Stefnan er sett á það
að koma bridds meira inn í
skólana en það hefur þegar
verið gert í litlum mæli.
Þó Guðmundur hafi
fylgst með foreldrum
sínum spila bridds sem
ungur drengur fór hann
sjálfur ekki að stunda
spilamennskuna að neinu
gagni fyrr en hann komst
á tvítugsaldur. „Þá fór ég á
sjó á Reykjaborginni og við
vorum á Norðursjó í fjóra
mánuði í einu,“ segir Guð-
mundur en á löngum kvöld-
stundum fjarri heimahöfn
var gott að geta gripið í
spilastokkinn og leitt hug-
ann frá vinnunni. „Við spil-
uðum nokkuð oft, fjórum
fimm sinnum í viku.“
Guðmundur segir ríka
hefð fyrir bridds ríkja á
Íslandi. „Það var mikið
spilað í heimahúsum hér
á árum áður,“ segir hann
en telur þó að bridds sé
nú meira spilað í sölum
hinna þrjátíu aðildar-
félaga Bridgesambands-
ins um land allt. Á fjórða
þúsund manns eru skráðir
félagar í sambandinu en
Guðmundur telur að um
þúsund þeirra séu töluvert
virkir.
„Ég er bara meðalspil-
ari,“ segir Guðmundur
um færni sína í briddsi,
en hann keppir þó á flest-
um mótum sem haldin
eru hér á landi. Jón bróðir
hans hefur hins vegar gert
garðinn frægan erlendis
enda var hann einn þeirra
sem hlutu hina víðfrægu
Bermúdaskál árið 1991
á heimsmeistaramótinu í
Yokohama í Japan.
Bridgesambandið held-
ur fjölda móta á hverju ári.
Íslandsmót í sveitakeppni,
tvímenningi og einmenn-
ingi, jólamót og Íslandsmót
eldri spilara og yngri. Þá
stendur deildarkeppni yfir
um þessar mundir. Hátind-
ur spilaársins er án efa hin
árlega Briddshátíð í febrú-
ar. „Þá kemur mikið af
erlendum spilurum hingað
og spilað er í fjóra daga,“
segir Guðmundur, sem
hlakkar þegar til.
„Þetta er hugaríþrótt og
alltaf eitthvað nýtt að ger-
ast,“ segir Guðmundur um
það hvað sé heillandi við
briddsið. Einnig segir hann
mikinn félagsskap að fá út
úr spilamennskunni enda
hefur hann þannig kynnst
mörgum góðum vinum í
gegnum tíðina.
Þó Guðmundur sé for-
fallinn briddsáhugamaður
gefur hann sér tíma fyrir
önnur áhugamál. „Ég er á
kafi í golfinu,“ segir Guð-
mundur, sem hefur stund-
að íþróttina í sex ár. Það
er þó ekki mikið vandamál
að sameina áhugamálin
tvö. „Golfið er sumaríþrótt
og briddsið vetraríþrótt
þannig að það kemur vel
saman,“ segir Guðmundur,
sem telur góðan briddsspil-
ara vera agaðan og sjá það
sem búi í spilunum.
FORSETI Guðmundur fylgdist með foreldrum sínum spila bridds sem ungur drengur. Hann fór þó ekki að stunda
spilamennskuna að neinu gagni fyrr en hann fór á sjó um tvítugt.
GUÐMUNDUR BALDURSSON: KJÖRINN FORSETI BRIDGESAMBANDS ÍSLANDS
Spilaði bridds á Norðursjó
BRÚÐHJÓN
Anna E.
Karlsdóttir og
Þór Tjörvi Ein-
arsson voru
gefin saman á
Þingvöllum af
séra Sigrúnu
Óskarsdóttir
hinn 21. júlí.
SVIPMYNDIR
Á þessum degi árið 1984 var hjarta
úr bavíana grætt í fjórtán daga
gamalt stúlkubarn. Aðgerðin var
framkvæmd af Leonard L. Bailey
skurðlækni við Loma Linda háskóla-
sjúkrahúsið í Kaliforníu. Þetta var í
fyrsta sinn sem reynt var að græða
hjarta úr bavíana í manneskju.
Stúlkan, sem nefnd var „baby
Fae“ fæddist með vanþroskað
hjarta, en nær alla vinstri hlið þess
vantaði í stúlkuna. Nokkrum dögum
eftir fæðingu barnsins sannfærði
Bailey móður þess að leyfa honum
að skipta hjartanu út fyrir heilbrigt
apahjarta enda væru lífslíkur barns-
ins að öðrum kosti sáralitlar.
Þrisvar áður hafði hjarta úr dýri
verið grætt í menn, síðast árið
1977, en enginn lifði lengur en
rúma þrjá daga. Bailey hélt því
fram að ólíklegra væri að líkami
svo ungs barns myndi hafna hjart-
anu þar sem ónæmiskerfi þess
væri ekki orðið þroskað.
Baby Fae lifði aðgerðina af og
lífsbarátta hennar næstu daga dró
að sér heimsathygli. Hún lifði leng-
ur en nokkur önnur mannvera eftir
slíka aðgerð en þó fór svo að lík-
aminn hafnaði hinu nýja hjarta og
Fae dó úr nýrnabilun vegna þeirra
ónæmisbælandi lyfja sem henni
voru gefin. Fae dó 15. nóvember
1984 eftir tuttugu daga harða bar-
áttu. BABY FAE
ÞETTA GERÐIST > 26. OKTÓBER 1984
Ungbarn fær hjarta úr apa
AFMÆLIANDLÁT